Stefán Valgeirsson:
Virðulegi forseti. Þeir sem sjá og skilja hvernig staðan er í okkar þjóðfélagi í dag hljóta að reyna að kryfja það til mergjar hvaða ástæður eru fyrir því hvernig komið er. Ég held að aðalástæðan sé augljós. Í fyrsta lagi óhóflegur fjármagnskostnaður, í öðru lagi óhóflegur fjármagnskostnaður og í þriðja lagi óhóflegur fjármagnskostnaður, þó að margt annað fleira komi til.
Því er haldið hátt á lofti að frelsi á öllum sviðum muni fyrr eða síðar leiða af sér jafnrétti og réttlæti á milli þegnanna. Frelsi í þess orðs fyllstu merkingu eru mikilvæg mannréttindi. En frelsið í okkar landi er fyrst og fremst frelsi fjármagnseigenda. Ef hver einstaklingur hefði það mikla jafnréttiskennd og siðferðisþroska að ganga aldrei á rétt annarra, þá væri þarflaust að setja lög eða reglur. En því er nú ekki þannig varið. Frelsið sem nú er leiðir til þess að lágtekjustéttirnar eru fjötraðar til fátæktar og framleiðslan er blóðsogin. Þetta er það frelsi sem blasir við.
Hvað eru frjálsir vextir og hvað hafa þeir leitt af sér? Ég veit ekki betur en frelsið á vöxtum hafi leitt það af sér að í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar tvöfölduðust þeir á nokkrum mánuðum. Við höfum svo heyrt vitnisburðinn. Við höfum heyrt vitnisburðinn alls staðar að. Það eru gjaldþrot og þeir sem eru svo að missa yfirvinnuna núna og hafa barist í bökkum að reyna að standa í skilum geta það ekki lengur. Það er verið að ganga að eignum þessa fólks. Það eru margir að flytja úr landi, ekki vegna þess að þá langi til að flytja úr landi, heldur vegna þess að þeir sjá enga möguleika aðra. Þetta ætti í raun og veru að vera nóg til þess að sýna okkur hvar við þurfum fyrst og fremst að taka á málum.
Það er auðvitað margt fleira sem þarf að athuga í okkar þjóðfélagi. Þetta frjálsa útboð á nýsmíði og viðgerðum skipa eins og það er framkvæmt hefur leitt það af sér að um 80% af nýsmíðum eru framkvæmd erlendis. Það að flytja óunninn fisk til útlanda leiðir auðvitað af sér að við erum að flytja vinnuna burtu eins og í hinu tilvikinu og þess vegna er minna sem við höfum til skipta. Eftir því sem við getum meira framkvæmt sjálf til okkar eigin þarfa, hvort sem það er til framleiðslu eða uppbyggingar, er meira til skipta. Við getum komið í veg fyrir atvinnuleysi, að það verði stórfellt. Og hvaða vit er í því að reyna ekki að halda þannig á málum að það sé ekki atvinnuleysi? Og borga svo þessu fólki, sem auðvitað verður að gera, 80% af dagvinnulaunum. Það getur enginn á því lifað, það er annað mál, enginn.
Ég held að það þurfi að verða mikil viðhorfsbreyting í þessu landi í því að fara eftir hinni gömlu kenningu að reyna að lifa að eins miklu leyti og það er hægt á eigin framleiðslu. Enn þá eru uppi raddir um að það sé um að gera að flytja inn meira að segja landbúnaðarvörur. Þó er vitað að mikið af þeim vörum sem fluttar eru inn, t.d. grænmeti, er frá löndum sem eru þau menguðustu í Evrópu, eins og
t.d. Hollandi. Svíar reyna að forðast þennan innflutning og ef hann er leyfður á annað borð, þá verður það að vera undir alveg sérstöku eftirliti. Það er af mörgum ástæðum sem þarf að fylgjast með þessum hlutum.
Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir okkur á öllum sviðum, bæði í skipaiðnaði okkar og öðrum atvinnugreinum að halda þannig á málum að vinnan fari ekki frá okkur. Eitt sem þarf að skoða mjög vandlega er hvað má kosta mikið meira að smíða t.d. skip innan lands til þess að það sé samt hagnaður af því fyrir þjóðfélagið. Ég ætla ekki að slá neinu fram um það hvað þetta má vera mikill munur, en hitt veit ég að hann má verða töluverður þegar á allt er litið. Og ekki síst miðað við það að fólkið í þessum greinum sé atvinnulaust og sé jafnvel á atvinnutryggingarbótum.
Mér fannst nú að meginhlutinn af ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals væri ekki um það að reyna að laga ástandið eða koma með tillögur um það. Kjarninn í hans ræðu var allt annar. En hvar í flokki sem við stöndum verðum við að reyna að ná saman um það að breyta til, meta þessa hluti á annan veg en hefur verið gert. Hvaða vit er í því, svo að ég taki eitt dæmi, að lítið samfélag sem hefur orðið að taka mikil lán á síðustu árum, að fjármagnið taki allt til sín, að framleiðslan eða þeir sem gera út og vinna fiskinn nái ekki endum saman og það sé ekki hægt að borga kaup við slíkar aðstæður, að það skuli vera alltaf þannig og það þyki alveg sjálfsagt. Og ekki eru fjölmiðlarnir að halda öðru fram en það sé sjálfsagt að fjármagnið hafi allt sitt og meira til og það er talað um gamla fólkið og allt það í því sambandi. Hvaða vit er í svona stefnu? Eru menn ekki farnir að sjá það loksins til hvers hún leiðir? Þarf allt að hrynja áður, allt í rúst?
Ég fyrir mitt leyti tel að það þurfi að reyna að breyta viðhorfi okkar hvar í stétt sem við erum. Jónas Jónsson sagði fyrir rúmum 70 árum: ,,Eru fátæklingarnir réttlausir?`` Á það ekki við nú, fólkið sem er að flýja land, fólkið sem er að missa íbúðirnar sínar, fólkið sem þarf að vera í tvöfaldri vinnu og dugar ekki samt?
Ég veit um þrjár konur sem eru að fara bara í þessari viku með tvö og þrjú börn til annarra landa af því að þær sjá ekki neina möguleika til þess að sjá
sér farborða. Konur sem eru neyddar til að fara. Ég gæti þess vegna haldið hér klukkutíma ræðu um ástandið í þjóðfélaginu, t.d. um þá 1200 bækluðu sem biðu um síðustu áramót eftir að komast til aðgerða, sem eru komnir sumir á fjóra fætur en er hægt að hjálpa í flestum tilvikum. Er þetta það jafnrétti sem við viljum?
Nei, við þurfum að fara að meta hlutina öðruvísi. Við þurfum að halda uppi atvinnulífi. Við þurfum að líta á hlutina frá þeim sjónarhól að hver okkar flytur á einum, eins og Bólu-Hjálmar sagði, ,,þú flytur á einum eins og ég allra seinast héðan``. Það ættu menn að hafa í huga í sambandi við það misrétti sem við horfum á, sumir ekki sjá og aðrir taka ekki tillit til
þess jafnvel þó þeir sjái það.