Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Virðulegur forseti. Ég hafði skilið það svo að hér ætti að fara fram almenn umræða um stöðuna í atvinnumálum, en reyndin hefur orðið sú að hér hefur fyrst og fremst verið talað um skipasmíðaiðnað og þá sérstaklega stöðu eins fyrirtækis, en svo vill til að þetta fyrirtæki er í meirihlutaeigu ríkisins. Ég hafði nú haldið að þeir sem hófu þessa umræðu mundu líta á atvinnulíf Íslendinga í breiðara ljósi og er nánast furðulegt að hefja umræðu utan dagskrár undir þessu nafni. Það hefði þá verið nær að gera það undir öðrum formerkjum. En vera má að það sé vegna þess að umræða hafði áður farið fram utan dagskrár um málefni Slippstöðvarinnar á Akureyri og því hafi verið nauðsynlegt að skipta þar um heiti.
En þó er það nú svo að það hefur lítillega verið talað um atvinnumál í breiðara ljósi, breiðara samhengi og hv. þm. Friðrik Sophusson sagði hér áðan að það væri aðalatriðið að núv. ríkisstjórn færi frá, svo hægt væri að fara að gera eitthvað af viti. Það verður hins vegar að krefjast þess af hv. þm., vegna þess að ég skil hann svo að hann sé að bjóða sig fram í verkið eins og eðlilegt er um stjórnmálamann, að hann segi þá eitthvað um það hvernig hann ætli að hafa þetta og hvað eigi að gera. Því ég segi það alveg eins og er að ég botnaði ekki nokkurn skapaðan hlut í ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals að því er þetta varðaði og minnti helst á það þegar flokkar hér áður fyrr sem voru í stjórnarandstöðu og töluðu þá mikið um kauprán og kjararán hófu upp rödd sína hér á Alþingi fyrir um svona eins og áratug síðan. En sem betur fer eru þessir flokkar löngu hættir því og kemur á óvart að Sjálfstfl. hefji nú upp sama sönginn.
Það sem hv. þm. sagði í stuttu máli var það að verðbólgan væri allt of mikil, gengisbreytingarnar hefðu farið allt of hægt, hefðu átt að vera miklu hraðari, en kaupmáttur launa væri allt of lágur og það ætti að hækka kaupið hið snarasta. Þetta var boðskapurinn. En sagði jafnframt að raungengið hefði ekki lækkað nægilega mikið. Ja, hvað hefur raungengi lækkað? Það hefur lækkað það mikið að það nálgast nú nokkuð og á ekki langt í land að ná meðaltali ársins 1986. Þeir félagar hafa haldið því fram að hér hafi átt að fara mun hraðar. Það má vel vera að það megi færa að því rök og ég get úr af fyrir sig tekið undir það að æskilegt hefði verið að fara hraðar í upphafi, þó sérstaklega á árinu 1987 og á árinu 1988, en þá studdum við sömu ríkisstjórnina, ég og hv. þm. Halldór Blöndal. En aðalatriðið er að ná árangri. Og ég er nokkuð viss um það að ef hraðar hefði verið farið þá hefði raungengið ekki lækkað jafnmikið. En það var nú ekki aldeilis það hljóð í hv. þm. Halldóri Blöndal nú að það ætti að reyna að viðhalda þessu raungengi því hann boðaði það hér í sinni ræðu að nú væri ekkert annað að gera en að hækka kaupið og tók undir með mörgum áróðursmeisturum á því sviði að launin skiptu bara engu máli í okkar þjóðarbúskap.
Launin eru nú ekki nema rúmlega 70% af
landsframleiðslunni og hafa farið verulega upp á undanförnum árum, hvort sem hv. þm. Halldóri Blöndal líkar betur eða verr. En það gæti verið að þetta væri boðskapurinn sem Sjálfstfl. ætlaði nú að boða í komandi tekjuskiptingu sem fer fram á næsta vetri hér í landinu. Ef svo er þá held ég að hv. þm. Friðrik Sophusson ætti ekki að bjóða sig fram til þess að takast á við verkefnin því ef á að halda uppi slíkum málflutningi þá er það að sjálfsögðu ekkert annað en blekkingar.
En hvað um það. Ég næ þessu ekki heim og saman en ég fullyrði að það eru allt önnur og betri starfsskilyrði í dag fyrir íslenskan sjávarútveg en mjög lengi hefur verið. Hitt er svo annað mál að þessi skilyrði mega að sjálfsögðu batna en þau hefðu heldur aldrei náðst nema með starfsemi Atvinnutryggingarsjóðs og þeim miklu skuldbreytingum sem þar hafa átt sér stað og er með ólíkindum að þm. Sjálfstfl. skuli ekki sjá þessar staðreyndir. Hvernig í ósköpunum ætluðu þeir að koma þessum fyrirtækjum fyrir vind án þess að til slíkra skuldbreytinga væri gripið og tímabundinna greiðslna úr Verðjöfnunarsjóði? Þessar greiðslur hafa hins vegar lækkað og munu lækka meira, væntanlega vegna þess að það eru að eiga sér stað lítils háttar verðbreytingar á erlendum mörkuðum.
En hér hafa þessi mál ekki fyrst og fremst verið til umræðu heldur málefni skipasmíðaiðnaðarins sem er mikilvægur iðnaður í okkar landi, mikilvægur fyrir atvinnustarfsemi í ákveðnum byggðarlögum og mikilvægur fyrir íslenskan sjávarútveg. Hins vegar verða menn að skilja það að íslenskur sjávarútvegur getur ekki staðið undir sérstökum umframkostnaði vegna þessa iðnaðar en hann verður að sjálfsögðu að njóta sannmælis.
Það er ekki íslenskum sjávarútvegi til hagsbóta að það sé verið að bjóða niðurgreidd skip erlendis frá sem m.a. hefur orðið til þess að meiri
endurnýjun skipa hefur átt sér stað í sjávarútveginum en nauðsynlegt var. En hér hefur m.a. verið lýst yfir að menn séu undrandi á því að Fiskveiðasjóður skuli hafa hafnað því að fjármagna það skip sem nú stendur nær fullbúið norður á Akureyri. Ég skil ekki þá menn sem tóku ákvörðun um að smíða það skip og enn
þá síður skil ég þá menn sem ætluðu sér að smíða tvö slík skip, því það var hið upprunalega plan ráðamanna fyrirtækisins. Ég veit að fyrrv. hæstv. iðnrh. getur staðfest það að mér hefur aldrei litist á þetta plan og er eiginlega furðulegt að láta sér detta í hug að smíða skip fyrir 300 millj. kr. án þess að vita neitt um framhaldið. Ég hélt að menn hefðu fengið nóg af því að ganga í gegnum erfiðleikana í sambandi við raðsmíðaskipin og hvernig þurfti að koma þeim fyrir í veiðunum hér við land og ég hélt að menn hefðu þá reynt að stengja þess heit að gera slíka hluti aldrei aftur. Auðvitað var heldur ekkert vit í því plani eins og að því var staðið á sínum tíma þó bærilega tækist að koma þeim skipum til veiða, en það hefur m.a. orðið til þess að annar hluti flotans þurfti að draga saman veiðar vegna þeirra skipa á sínum tíma.
Það er að sjálfsögðu ekki hægt að leysa vandamál þessa skips með því að setja það inn í fiskiskipaflotann án þess að annað skip fari þar út á móti.
Sú áætlun sem send var stjórn Fiskveiðasjóðs byggðist upp á því að þetta skip veiddi samkvæmt veiðiheimildum hins fyrra skips, sem átti að fara út á móti, en það eru samtals 518 þorskígildi. Að sjálfsögðu var ekki hægt að borga niður allan kostnað með þeim veiðiheimildum svo gert er ráð fyrir því í fjárhagsáætlun að skipið skili 150 tonnum af frystri grálúðu og tæpum 1000 tonnum af frystum karfa. Þessi veiði er samtals 80% af tekjum þessa skips.
Ég skil varla í að nokkur maður sé undrandi á því að Fiskveiðasjóður hafni slíkri beiðni því þarna er gengið út frá því að viðkomandi skip geti þröngvað sér inn í veiðar sem ekki er raunhæft að byggja á og má t.d. geta þess að stórir togarar á norðursvæði hafa heimildir til að veiða miklu minna af karfa en þarna er gert ráð fyrir.
Þetta vildi ég nú upplýsa í þessu sambandi því það er að sjálfsögðu ekki maklegt, þó að beri að gagnrýna stjórn Fiskveiðasjóðs eins og aðrar stjórnir sjóða og stofnana hér á landi, þá er ekki maklegt að gera það með þessum hætti. Ég held það væri nær fyrir stjórn Slippstöðvarinnar sem tók þessa ákvörðun á sínum tíma að líta með dálítilli sjálfsgagnrýni á sjálfa sig. Hins vegar er nauðsynlegt að meta með raunhæfum hætti möguleika þessa fyrirtækis til frambúðar. Mennirnir sem tóku þessa ákvörðun á sínum tíma hafa að sjálfsögðu skert möguleika þessa fyrirtækis til langrar frambúðar því ég óttast að mjög erfitt muni verða að selja þetta skip.
Hins vegar er það slæmt vegna þess að hér er um að ræða grundvallarfyrirtæki sem tengist íslenskum sjávarútvegi og það er vart hægt að hugsa sér að fyrirtæki sem þetta leggist niður, svo mikilvægt er það sérstaklega í viðhaldsþjónustu við flotann. En bæði eigendur þessa fyrirtækis og aðrir eigendur skipasmíðastöðva verða að átta sig á því að það eru engar líkur á að skipasmíðar verði stundaðar hér á landi fyrir fiskiskipaflotann af nokkrum krafti næstu árin. Ég er líka fullviss um að það verður nánast ekkert unnið við smíði á skipum fyrir Íslendinga á erlendum vettvangi heldur, af þeirri einföldu ástæðu að við þurfum ekki fleiri skip og við eigum þegar of mörg. Við þurfum að breyta okkar fiskveiðistjórnun með þeim hætti að alls ekki fjölgi skipum í flotanum. Það er heldur engin ástæða til þess, þótt einhver skip hverfi úr flotanum, að smíða önnur í þeirra stað.
Þetta eru nú staðreyndir málsins og auðvitað verða aðilar að skipuleggja sinn rekstur út frá því en ekki að láta sig dreyma um það að hægt sé að smíða hér skip á lager.
Það má vel gagnrýna það að mörg skip hafa verið smíðuð erlendis á undanförnum árum en ég hygg þó að raunhæft sé að halda því fram að innlendar skipasmíðastöðvar hefðu ekki getað tekið að sér mörg af þeim verkefnum þó það hefði verið hugsanlegt í einhverjum mæli.
Ég veit ekki betur en að það hafi verið þokkaleg verkefni hjá flestum skipasmíðastöðvanna nú á undanförnum árum og þar hefði ekki verið hægt að bæta miklu við en hins vegar er dauflegt um að litast fram undan og það á við flotann í heild sinni, jafnt innlendan skipasmíðaiðnað og verkefni sem hugsanlega væru unnin fyrir okkur erlendis.
Ég vildi nú fyrst og fremst upplýsa þetta en bréf um þetta efni var skrifað sjútvrn. á sl. vori, nánar tiltekið í lok maí, og erindi Slippstöðvarinnar um hugsanlega endurnýjun vegna þessa skips svarað 13. júní.
En án þess að ég sé að óska sérstaklega eftir því að hv. þm. Friðrik Sophusson geri betri grein fyrir stefnu flokksins í atvinnumálum sem ég vænti að hann muni gera á síðari stigum því ég er ekki að biðja hér um umræður langt fram eftir nóttu, þá verð ég að lýsa yfir undrun minni á því hvernig þeir ætla að koma þessari stefnu sinni saman. Eftir að ég hafði hlustað á hans ræðu og ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals þá botnaði ég lítið í samhenginu en á síðari stigum vænti ég þess að það verði leiðrétt þannig að ég fái skilið hvert þeir eru að fara.