Árni Johnsen:
Virðulegi forseti. Spegilmyndin af ástandi efnahagsmála og atvinnulífsins í landinu í dag er í skötulíki. Spegilmynd slæms ástands, sívaxandi vonleysis fólks um árangur úr hendi þeirra stjórnarherra sem búa við eindæna óvinsældir fólksins í landinu. Ríkisstjórnin sjálf er agalaus og endalausar yfirlýsingar út og suður, eitt í dag og annað á morgun, hafa stórlega dregið mátt úr þjóðfélaginu í heild. Í nær öllum byggðum landsins er illu heilli uppgjafartónn í fólki, bæði forsvarsmönnum heimila og atvinnulífs, vonbrigði og sár reiði í garð núv. ríkisstjórnar.
Um tveggja áratuga skeið hef ég farið æðioft á hverju ári um flestar byggðir landsins og nú bregður við tón sem maður hefur aldrei heyrt fyrr. Aldrei svo almennt vonleysi eins og í dag og það er illt mál.
Yfirlýsingar um þjóðargjaldþrot, árásir á ákveðin byggðarlög sem berjast markvisst til árangurs, gróusögur úr öllum áttum og glasaglaumur úr hófi hefur ært landsmenn meira en nokkru sinni fyrr í nútímaþjóðfélagi.
Þegar rætt er um atvinnustöðu í landinu þá er vert að minnast á þann fádæma atburð þegar sjálfur hæstv. forsrh., fyrr á þessu ári, réðist á íbúa eins byggðarlags, Vestmannaeyja, með þeim orðum að Vestmanneyingum væri nær að greiða skuldir sínar heldur en að fara vítt um land og kaupa skip. Vestmanneyingar hafa skilað meira dagsverki en svo að þeir eigi skilið slík ummæli af hendi sjálfs hæstv. forsrh. Það er víst að Vestmanneyingar skulda ekki meira en aðrir landsmenn í þjóðarbúinu í dag. Því eru slík ummæli hin versta gróusaga. Og forsrh. bætti um betur. Fyrir nokkrum dögum sagði hann á fundi að nú væru það fleiri byggðarlög sem æddu um efni fram, æddu um efni fram og væru í bátakaupum þegar þau ættu að vera að gera allt annað. Stefnan virðist sem sagt sú hjá hæstv. forsrh. að menn eigi að vera allir jafnaumir í því þjóðfélagi sem hann hefur nú stýri á. Verst er þó e.t.v. sú mismunun sem stjórnarherrarnir leggja á heimilin og atvinnufyrirtækin í landinu. Það er spegilmynd af atvinnulífi þjóðarinnar í dag sú staðreynd að fjöldi gjaldþrots- og uppboðsbeiðna hefur slegið öll fyrri met eins og minnst var á hér fyrr í dag í umræðunni og tekin voru dæmi af Suðurlandi. Það er vissulega svört mynd að í Rangárvallasýslu einni skuli vera 300 uppboðsbeiðnir á þessu ári. Og þar ræðir jöfnum höndum um bændur og búalið, þéttbýlisfólk og fyrirtæki. Í þessu rótlausa þjóðfélagi undir ríkisstjórn sem er svo lánlaus að geta hvorki talið kjark né þor í þjóðina er illt að hafa stjórnarherra sem sýna hroka og yfirgang sem lýsir sér best í ógnvekjandi skattaáþján þar sem hið opinbera kerfi á að hafa allt á þurru en atvinnufyrirtækin, heimilin og fólkið í landinu eru gólftuskurnar í þessu óskemmtilega dæmi. Það er ekki glæsileg atvinnusaga sem býr þar að baki.
Sífellt fleiri landsmenn sem eiga við fjárhagslegan vanda að stríða láta gossa í gjaldþrot. Stolt og virðing
fyrir rétti og skyldum er á undanhaldi og eins og almenningur gafst á sínum tíma upp við það á verstu verðbólgutímum að fylgjast með hækkun nauðsynjavöru, eins og t.d. kaffi flokkast undir, þá hefur fólkið í landinu gefist upp við það nú að fylgjast með endalausum vitleysum ríksstjórnarinnar. En eitt skilur þó þorri allra landsmanna og það er að þessi ríkisstjórn er ekki nauðsynjavara, hún er sannarlega eitthvað sem þorri landsmanna vill ekki búa við. Enda hefur ríkisstjórnin valdið gengisfalli á íslensku þjóðlífi með hrökkálshætti sínum. Þetta eru stór orð en þau standa.
Í umræðunni hér í dag hefur verið minnst á einstaka þætti atvinnulífsins, m.a. skipasmíðaiðnaðinn sem á nú mjög í vök að verjast en skiptir vissulega miklu máli í íslenskum þjóðarbúskap bæði með tilliti til nútíðar og framtíðar. Þar er verk að vinna og verk sem þarf að snúast við og taka á eins myndarlega og unnt er, en það er ekki auðleyst mál, það er jafnauðséð og margt annað sem við fjöllum um.
Það er hins vegar furðulegt hvernig væntanlegt nýtt fólksflutningaskip milli lands og Eyja, Herjólfur, hefur komið inn í þessa umræðu. Það er eins og það sé allt í einu ástæða til þess að smíða nýjan Herjólf af því að það er atvinnuleysi í skipasmíðaiðnaðinum í landinu. Alþingi Íslendinga hefur þrívegis samþykkt lánsfjárlög vegna nýsmíði Herjólfs og um nær tveggja ára skeið hafa ráðherrar tafið framgang þess máls. Nýr Herjólfur er ekki á borðinu vegna þess að ekki sé þörf fyrir hann, nýr Herjólfur verður að koma vegna þess að núverandi skip er úrelt, óöruggt og ekki boðlegt í þeirri umfangsmiklu starfsemi sem á sér stað á sjóleiðinni milli lands og Eyja þar sem 60 þús. farþegar fara á milli árlega. Málið er einfalt, núverandi Herjólfur er úreltur. Það er löngu tímabært að smíða nýtt skip.
Menn hafa gælt við það hér í umræðunni á hæstv. Alþingi að það sé hægt að smíða þetta skip innan lands. Það er engin skipasmíðastöð hér innan lands sem getur smíðað skip eftir þeirri teikningu sem búið er að hanna og leggja mikla vinnu í af færustu sérfræðingum og unnið hefur verið að um nokkurra ára skeið. Það er enginn slippur sem tekur upp það skip sem hér er um að ræða. Eða á kannski að smíða lítið skip af því að það er atvinnuleysi í
skipasmíðaiðnaðinum í landinu? Ekki trúi ég að menn gangi svo langt. Það er hins vegar ugglaust mögulegt að smíða skrokk þess skips sem teikningar liggja fyrir að erlendis og flytja hann hingað heim ef mönnum þykir það fýsilegur kostur og vinna síðan innréttingar og önnur verk innan skips sem hægt er að vinna hér heima. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að íslenskir iðnaðarmenn mundu leysa það verk vel af hendi. En þá kemur að peningahliðinni og það er kannski stór þáttur í dæminu sem menn verða að horfast í augu við. Það er mikill munur á hinu íslenska tilboði sem er upp á tæpar 1700 milljónir en ekki 1600 eins og hér hefur verið fjallað um í dag og svo þeim norsku og hollensku tilboðum sem eru um 1000--1200 millj. kr., það eru miklir peningar í mismun sem þar um
ræðir.
Það er talað um erfiðleika í skipasmíðaiðnaði vegna þess að það eru slæm tíðindi úr þeirri átt þessa dagana. En almennt atvinnuleysi veður áfram í borg og bæ til sjávar og sveita í ýmsum þjónustugreinum og iðnaði vegna þess að núv. ríkisstjórn hefur gert þjóðarlíkamann máttvana með slælegum tökum við stjórn þjóðarskútunnar. Skipasmíðaiðnaðurinn er aðeins afmarkaður þáttur í þessu dæmi, Herjólfur er líka afmarkaður þáttur í atvinnudæmi og þjónustudæmi. En þess verður að krefjast að ráðherrar í ríkisstjórn, hæstv. ráðherra samgöngumála og hæstv. ráðherra fjármála, taki af skarið eins og þeir hafa umboð til til þess að heimila nú þegar samning um smíði nýs Herjólfs. Það er einnig krafa um atvinnuréttindi í því byggðarlagi sem á að njóta þjónustu þess skips sem um ræðir. Lengur er ekki við unað, þolinmæði fólks er á þrotum yfir slíkum eindæma vinnubrögðum sem minna helst á uppdráttarsýki.
Einn afmarkaðan atvinnuþátt má nefna í þessu dæmi þegar við fjöllum um atvinnulífið í landinu. Það eru verktakasamtökin sem hafa aflað sér mikillar reynslu og þekkingar á löngu árabili þar sem miklar framkvæmdir hafa verið í landinu. En það er eins og stjórnvöld virðist vilja þessi samtök, þessa reynslu, feiga með áformum um virðisaukaskatt á alla þætti verktakavinnunnar í stað söluskatts á vélavinnu eins og nú er. Hitt er ekki síður alvarlegt hvernig stjórnvöld auka á samdráttinn í lægðum eins og nú ganga yfir vegna heimatilbúins vanda þeirra sem ráða ríkjum.
Hæstv. forsrh. réðst fyrir nokkrum mánuðum á stjórnendur Reykjavíkurborgar fyrir það að standa í miklum framkvæmdum á stórum mannvirkjum í Reykjavík. Taldi það til skammar fyrir land og þjóð að slíkar framkvæmdir stæðu yfir. Nokkrum mánuðum seinna áttaði hæstv. forsrh. sig á því að það vantaði vinnu í landinu og gaf þá út þá yfirlýsingu að hugsanlega mundi ríkisstjórnin standa að því að skapa aukin atvinnutækifæri með opinberum framkvæmdum. Úr því hefur að vísu ekki orðið en ugglaust hefur athafnasemi stjórnenda Reykjavíkurborgar létt róðurinn í þessu efni með þeim glæsilegu og spennandi byggingum sem nú eru byggðar á vegum borgarinnar.
Það er eins og fyrri daginn að það hvorki gengur né rekur í stjórn landsins. Það eitt gerist að það miðar aftur á bak í flestu. Vissulega gera menn góða hluti en þegar á heildina er litið þá er þjóðarlíkaminn sífellt meira og meira máttvana. Í þessari umræðu hefur verið vikið að gámaútflutningi og hv. þm. Stefán Valgeirsson sagði að með ferskfiskútflutningi væri minna til skiptanna þegar upp væri staðið. Málið er ekki svo einfalt. Þótt vissulega sé ástæða til þess að skoða til hlítar hvernig eigi að stýra afla og vinnslu á Íslandsmiðum, bæði með tilliti til markaðar heima og heiman, þá er það bláköld staðreynd að aðalatvinnuvegur Íslands, útvegur og fiskvinnsla, býr við morkinn grundvöll og það er engin tilviljun orðtakið: Neyðin kennir naktri konu að spinna. Menn í þessum atvinnuvegi verða og neyðast til þess að
hugsa fyrst um afkomu sinna tækja, sinna skipa, sinna fyrirtækja og reyna að láta þau halda velli því að hagsmunir þeirra og þess fólks sem vinnur hjá þeim fara saman í þessu efni. Fjármagnskostnaður í þessari höfuðatvinnugrein er svo mikill að engu er líkt. En um hvað snýst gámaútflutningurinn? Hann snýst um peninga og aftur peninga, peninga og möguleikann að lifa af. Það er ástæða til þess að nefna aðeins dæmi um hvað ferskfiskútflutningurinn vegur þungt í útgerð skips sem stundar slíkan útflutning. Á trollbátum sem hafa flutt út afla á þessu ári, hefði meðalskiptaverðið verið 40 kr. hér heima, meðalskiptaverðið úti 80 kr. 100% munur. Þá er búið að taka út allan kostnað bæði við útflutning og sölu. Björg VE er dæmigerður gámabátur, nýr bátur, dugmikill skipstjóri og áhöfn. Verðið hjá Björgu í meðalskiptum varð 78 kr. í sumar erlendis, en hefði verið 40 kr. ef allur aflinn hefði farið í 1. flokk hér heima, og það fer ekki allur afli á einum bát í 1. flokk. Gandí er annar dæmigerður gámabátur, með 38 kr. skiptaverð hér heima, 82 kr. úti. Það er ekki að furða þótt menn freisti þess að fara þá leið í sölu sinna afurða. Nú er talað um Björgu VE sem bát sem landi öllum sínum afla erlendis. Það er hins vegar staðreynd að Björg hefur frá því hún kom til landsins landað tæplega 30% af aflanum hér heima. þó svo það væri vissulega kannski meira spennandi að selja þann afla erlendis. En neikvæður áróður á þessum vettvangi hefur veikt ýmsa þætti í útgerðarrekstrinum og nú er svo komið að það rísa upp heildsalar hér og þar sem selja útflutningsleyfi og útdeila þeim fyrir peninga. Menn í útgerð í
sjávarplássum landsins þurfa jafnvel að leita til Egilsstaða til þess að kaupa útflutningsleyfi fyrir sinn fisk, til einhverra manna sem hafa fengið úthlutað leyfum til þess að ráðskast með og braska með. Útflutningsleyfið hefur verið selt fyrir upp í 50 þús. kr. Utanrrn. úthlutar þessum leyfum. Aðilar sjávarútvegsins fá í engu að vita hvert leyfin fara. Þetta er eitt af leyndarmálum utanrrn., óþolandi hráskinnsleikur, sem ætti að leggja af nú þegar og hæstv. ríkisstjórn ætti að sjá sóma sinn í að taka á. Margoft hefur formaður Landssambands ísl. útvegsmanna, Kristján Ragnarsson, bent á þessa veilu, þessa skömm. En í engu bregðast stjórnarherrar við og sukkið og svínaríið heldur áfram. Það er verið að búa til milliliði sem eru faldir á bak við tjöldin, milliliði sem grípa inn í veika rekstrarstöðu útgerðarinnar og ástunda brask sem er fyrir neðan virðingu íslensks þjóðlífs. Enginn fær að vita hvert leyfin eru veitt frá hinu háa íslenska utanrrn.
Eðlileg umboðslaun fyrir sölu af einum gámi, góða sölu, gætu verið 25--30 þús. kr. Í fyrsta lagi ættu þessi umboðslaun að fara beint til þeirra sem eru að flytja út fiskinn, ekki einhverra heildsala sem er verið að smíða hér og þar um landið. Í öðru lagi er óþarfi að búa til kerfi þar sem menn geta farið að okra og braska með þessi leyfi.
Það er grundvallaratriði þegar rætt er um stöðu atvinnulífsins í landinu að skapa eðlilegan grundvöll
fyrir höfuðatvinnuveginn sem og aðra atvinnuvegi til þess að menn geti haft eðlilega viðmiðun og eðlilega samkeppni heima og heiman. Með eðlilegum grundvelli mundi minnka það vandamál sem er vissulega í því fólgið að flytja fisk í miklum mæli óunninn til annarra landa. Það er mikil fjárfesting í okkar landi sem nýtist ekki nema að takmörkuðu leyti með þessari aðferð og því er þeim mun meiri ástæða til þess að taka á en ella.
Ýmsir stjórnarsinnar hafa kvartað undan því í umræðunum hér í dag að stjórnarandstæðingar hafi ekki lýst nógu miklu svartnætti í íslensku þjóðlífi. Vitna skal til hv. þm. Skúla Alexanderssonar. En auðvitað er það að æra óstöðugan að taka í stuttum ræðum á því dapra andrúmi sem ríkisstjórnin veldur í þjóðfélaginu. Mál er að linni, mál er að þessi ríkisstjórn fari frá völdum. Hún er heltekin doða sem dregur mátt úr íslensku þjóðlífi, mátt úr íslensku atvinnulífi sem þessi umræða snýst um.