Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með og hlusta á þessa umræðu sem hér hefur farið fram í allan dag og þá sérstaklega að hlusta á þá hæstv. ráðherra sem hér hafa talað. Ég tók eftir því í máli hæstv. hagstofuráðherra, sem nú leiðir starf um mótun nýrrar atvinnustefnu í landinu, að hann boðar okkur nýja stefnu í landbúnaðarmálum. Hann boðaði aukna framleiðslu og aukinn útflutning á landbúnaðarafurðum sem að vissu leyti er gott og ég get tekið undir og hef sjálfur viðrað svipaðar hugmyndir, en ég saknaði þess að heyra álit landbrh. á þessum nýju hugmyndum því að eins og menn vita, þá er hans stefna í landbúnaðarmálum allt önnur. Hún er sú að draga framleiðsluna niður í það sem innanlandsmarkaður þarfnast.
Við heyrðum einnig hæstv. iðnrh. lýsa nýrri stefnu í þá veru að nýta okkur niðurgreiðslur annarra þjóða varðandi skipaiðnaðinn. Þá má allt eins spyrja líka hvort þetta eigi ekki við um aðrar atvinnugreinar og taka þá aftur sem dæmi landbúnaðinn sem ég tel nú að hafi verið hugðarefni þeirra alþýðuflokksmanna um langan tíma. Þannig hefur margt komið hér fróðlegt fram og er spurning hvað kemur út úr þeirri vinnu sem hæstv. hagstofuráðherra leiðir um mótun nýrrar atvinnustefnu sem gárungar kalla dönsku nefndina og velta svona fyrir sér hvaða tungumál sé talað á fundum þar.
Það er einnig einkennilegt að heyra hæstv. hagstofuráðherra lýsa því yfir að að hans mati verði skipasmíðaiðnaður undirstöðuatvinnugrein á Íslandi innan fárra ára og stangast það verulega á við raunhæft mat sjútvrh. á þessum iðnaði. Ég sakna þess að hafa ekki heyrt, alla vega ekki þann tíma sem ég hef verið hér í salnum og hef ég þó setið hér mestan hluta dagsins, rætt um aðrar atvinnugreinar og er ég þá kannski einna helst með verslun og þjónustu í huga þar sem verulegur vandi er nú á ferðinni og verið að segja upp fólki í stórum stíl, fyrirtæki að loka, verslanir að loka, fyrirtæki, verslanir og heimili að
verða gjaldþrota og fólk að missa eignir sínar. Um þennan þátt fjallar enginn, alla vega enginn af ráðamönnum þjóðarinnar. Engu að síður lýsti hæstv. forsrh. því yfir hér um daginn þegar verið var að ræða skattlagningu á skrifstofu- og verslunarhúsnæði, undir nákvæmlega þeim lið lýsti ráðherrann því yfir að mestur vandi í íslensku atvinnulífi í dag væri einmitt í verslun og þjónustu á nákvæmlega sama tíma og hann var að leggja til að framlengdur yrði skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Auðvitað átti hann að nota tækifærið þegar hann gerir sér svona vel grein fyrir stöðu þessara atvinnuvega og í það minnsta lækka þennan skatt, þó allra helst að fella hann niður því að þarna er skattur sem mismunar atvinnugreinum mjög. Ég vil því leyfa mér að spyrja hæstv. viðskrh. hvort að hans mati komi ekki til greina að taka á þessari skattlagningu og ef ekki að fella hana niður, þá alla vega að lækka hana eitthvað.
Það málefni sem hefur verið hér mest til umræðu
í dag er eðlilega málefni skipasmíðaiðnaðar, enda er það mjög á döfinni í þjóðfélaginu um þessar mundir. Það er upplýst að búið er að segja nú þegar upp um 400 manns og förum við ekki varhluta af því í því kjördæmi sem ég er kjörinn á þing fyrir, þ.e. Vesturlandi, þar sem öllu starfsfólki Skipavíkur í Stykkishólmi hefur verið sagt upp og mér er tjáð að í farvatninu getið svipað verið á döfinni hjá Þorgeiri og Ellert á Akranesi. Alla vega sér það fyrirtæki ekki fram á mikil verkefni á næstu vikum.
Iðnrh. furðaði sig á því að frsm. þyrfti hér 1 1 / 2 tíma til að fjalla um stöðu skipasmíðaiðnaðar á landinu. Ég furða mig aftur á móti á því að frá 10. september, þegar þessi stjórn var sett á laggirnar, og fram að 28. október hefur staða íslensks skipasmíðaiðnaðar ekki verið rædd í ríkisstjórninni. Það hlýtur að vera mjög alvarlegt mál. Það kom berlega fram í viðtali sem haft var við hæstv. hagstofuráðherra í Degi laugardaginn 28. okt., en þar segir hann, með leyfi forseta:
,,Málefni skipasmíðaiðnaðarins hafa ekki verið rædd í ríkisstjórn síðan Borgaraflokkurinn gerðist aðili að henni.`` Þetta mál var ekki rætt í heila tvo mánuði. Nú getur iðnrh. náttúrlega leiðrétt, ekki mig, heldur hagstofuráðherra ef þetta er rangt.
Á síðasta þingi var til umræðu þáltill., flutt af hv. 3. þm. Norðurl. v. Stefáni Guðmundssyni, sem bar yfirtitilinn ,,Bætt samkeppnisstaða innlends skipaiðnaðar``. Þar vil ég fá að vitna í hæstv. viðskrh., iðnrh. Jón Sigurðsson, þar sem hann sagði undir þessum lið í þessari umræðu, með leyfi forseta:
,,Ég talaði hér í umræðunni fyrr, sem að vísu er nokkuð langt um liðið, um efni þeirrar þáltill. sem hér liggur fyrir hv. þingi og ætla ekki að orðlengja um það, en vildi eingöngu segja það að ég legg þar mesta áherslu á að veita innlendum skipasmíðaiðnaði jafna aðstöðu hvað varðar útvegun fjármagns vegna meiri háttar endurbóta á skipum.``
Nú leikur mér forvitni á að vita, hvað gerði ráðherrann til að jafna þessa aðstöðu? Ég held áfram, með leyfi forseta: ,,Nú sjást þó merki þess að hlutur
innlendra skipasmiðja í viðgerðum sé að aukast að nýju.`` Ég spyr enn: Hvað gaf þetta til kynna? Hvaða merki voru það sem ráðherra sá sem gáfu það til kynna að viðgerðir mundu aukast að nýju? Annað hefur komið í ljós. Og enn held ég áfram, með leyfi forseta: ,,Það kemur mjög glöggt fram í athugun sem gerð hefur verið á því máli. Að vísu er það rétt að vegna breyttra aðstæðna í sjávarútvegi verða minni verkefni bæði til nýsmíða og meiri háttar endurbóta hjá íslenska fiskiskipaflotanum á árinu 1989 heldur en var á undanförnum árum, en það er mjög greinilegt að hlutur innlendu stöðvanna fer vaxandi í þessu og ég mun fyrir mitt leyti gera það sem ég get til þess að sú þróun haldi áfram.`` Og ég verð að spyrja enn einu sinni: Hvað var það sem gerði það svo greinilegt að hlutur stöðvanna mundi fara vaxandi? Hvað hefur breyst svona mikið, hvað hefur villt ráðherranum sýn? Hvar fór hann út af veginum? Hvar fór hann út af sporinu? Ég vil vekja athygli á því að þessi umræða
fór fram, ekki í fyrra og ekki í hittiðfyrra, hún fór fram á þessu ári. Það eru aðeins 7 mánuðir, 8 mánuðir síðan þessi umræða fór fram. Hvað hefur breyst svona mikið í íslensku þjóðfélagi að þessi fagra framtíðarsýn og þessi fögru loforð sem hæstv. ráðherra gaf 9. febrúar, að við þau hefur ekki verið hægt að standa?
Hæstv. forseti. Það er búið að ræða hér mikið um stöðu atvinnumála í landinu, en eins og ég sagði fyrr, mest um skipasmíðaiðnaðinn og ég tel það eðlilegt í þeirri stöðu sem nú er uppi. Það er hins vegar ljóst að atvinnuleysi eykst hér verulega og hefur sennilega aldrei verið eins slæmt, alla vega síðustu fjöldamörg árin, eins og farið hefur verið yfir hér í dag. Ég vildi gjarnan fá að nota þetta tækifæri og inna ráðherra iðnaðarmála eftir þeirri hugmynd eða þeirri umræðu sem er í gangi núna m.a. uppi á Akranesi um þilplötuverksmiðju sem hugsanlegt er að þar geti verið reist. Verði af því er það náttúrlega mikil búbót og hagur fyrir Akraneskaupstað að fá slíkt atvinnutækifæri á staðinn og virðist ekki veita af eins og málum er háttað í dag.
Ég saknaði þess, hæstv. forseti, að fá ekki svar við eða heyra ekki sjútvrh. útlista sína skoðun á ummælum hæstv. hagstofuráðherra um skipasmíðaiðnaðinn þar sem hann fullyrti hér eða staðhæfði úr þessum ræðustól að sjútvrh. vildi þennan iðnað feigan. Ég hefði gjarnan viljað fá hreint og klárt svar við því hvort ríkisstjórnin er klofin í þessu máli eða ekki því að ef marka má ummæli hagstofuráðherra, sem ég hef nú tekið fullt mark á fram að þessu, þá hlýtur það að vera rétt. En hæstv. iðnrh., sem nú er eini hæstv. ráðherrann sem situr hér fund, mun e.t.v. gera tilraun til að svara þessu.
Hæstv. forseti. Ég held að ég þurfi ekki að bæta meiru við þessa umræðu og læt því máli mínu lokið.