Ástandið í atvinnumálum
Mánudaginn 06. nóvember 1989


     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Mér féll það mjög vel að hæstv. iðnrh. skyldi hafa lýst því yfir að hann vilji beita sér fyrir því að innlendum skipasmíðastöðvum verði auðveldað að taka eldri skip upp í ný sem eru í smíðum hér á landi. Ég met þessa yfirlýsingu mjög mikils og fullyrði að einmitt þetta atriði var haft í huga þegar ákvörðun var tekin um það á árinu 1987 að efna til þeirrar nýsmíði sem er í Slippstöðinni á Akureyri. Ég vek athygli á því að hæstv. iðnrh. tók mjög skýrt fram hér áðan að erfiðleikar skipasmíðaiðnaðarins stöfuðu að verulegu leyti af þeim erfiðleikum sem eru í íslenskum sjávarútvegi, sem er auðvitað laukrétt og skýrir þá litlu fjárfestingu sem nú er í endurbótum og meiri háttar viðhaldi á fiskiskipastólnum sem ég fullyrði að í einstökum tilvikum sé of lítill, en á hinn bóginn er það líka rétt að nauðsynlegt er að fækka skipum þannig að það getur einnig haft sína kosti.
    Ég þarf náttúrlega ekki að útskýra að sú gengisumræða sem hér hefur farið fram hefur orðið til vegna ummæla forsrh. En hitt er rangt ef ég man rétt, nú væri fróðlegt að fletta upp og gá hvor man betur, þá man ég ekki til þess að sú nefnd, sem hæstv. iðnrh. vitnaði til á sl. sumri og kennd var við Einar Flateyring, hafi orðið til á vordögum og starfað allt sumarið. Sú nefnd var skipuð í ágústmánuði ef ég man rétt. Og áður en það varð hafði verið látið á það reyna í ríkisstjórninni hvort samkomulag næðist um það að láta gengið síga um þessi 3% sem við vorum að tala um áðan. Þessi orðaskipti urðu einu sinni milli mín og hæstv. iðnrh. í Ed. og ég skoraði þá á hann að hafa þessi ummæli eftir þegar þáv. hæstv. forsrh. væri viðstaddur og hlýt að gera það enn. Ég veit ekki hvort hv. 1. þm. Reykv. Friðrik Sophusson var viðstaddur þegar þetta gerðist, en þarna stangast á fullyrðingar. Það er alveg ljóst að gagnvart okkur sjálfstæðismönnum var það ljóst að á þessum tíma vildi Alþfl. ekki nýta þetta svigrúm og er auðvelt að sýna fram á ótal tilvitnanir í blöð og yfirlýsingar bæði formanns Alþfl. og, ja, ég skal ekki segja viðskrh. en a.m.k. formanns Alþfl. frá þessum tíma. (Gripið fram í.) En ég hef aðrar heimildir um þetta mál. Ég hef nú einu sinni aðrar heimildir um þetta mál og sakna þess að þessar umræður skuli ekki fara fram þegar hæstv. þáv. forsrh. var viðstaddur --- og þykir mér vænt um að mismæla mig með þeim hætti að kalla hann hæstv. formann Sjálfstfl. En sem sagt, ég leiðrétti það hjá hæstv. iðnrh. að allt það sumar hafi nefndin verið að störfum. Það voru mismæli hjá iðnrh. sem hann hefur nú leiðrétt. ( Viðskrh.: Þá leiðrétti ég það.) Þá leiðréttir hann það. ( Viðskrh.: Í byrjuðum júlí.) Endaðan júlí, um mánaðamótin júlí/ágúst. Ég skal ekki segja hvort það var, það er hægt að finna dagatalið.
    Í öðru lagi er það ekki rétt að ég hafi í minni ræðu hér áðan talað um að hæstv. iðnrh. hafi skammað núv. stjórn Slippstöðvarinnar. Hins vegar sagði ég að bæði hann og hæstv. sjútvrh. hafi viðhaft ummæli sem séu óþingleg og ég vil ítreka það og

endurtaka. ( Viðskrh.: Fjarstæða.) Iðnrh. segir að það sé fjarstæða, já. Það er líka rangt hjá iðnrh. að ég hafi sagt að sjávarútvegur mætti ekki njóta bestu kjara. Athugasemd mín beindist að þeim ummælum hæstv. iðnrh. í dag að hann talaði þá um að við ættum að þiggja niðurgreiðslur í öðrum löndum á skipasmíðaiðnaði og gaf engan kost á því að hann vildi með neinum hætti koma til móts við þarfir skipasmíðaiðnaðarins nú, hins íslenska og þá nýsmíði sem hér er verið að vinna að. Þess vegna er ég mjög þakklátur hæstv. iðnrh. fyrir að hann skuli hafa sýnt skilning á því að ekki er hægt að halda uppi þeim öfluga skipasmíðaiðnaði sem er hér á landi nema honum verði gefinn kostur á nýsmíði með því að hæstv. iðnrh. hefur lýst því yfir að það eigi að gefa íslenskum skipasmíðastöðvum kost á því að taka önnur skip upp í. Það er talað um sambærilega stærð. Tel ég í rauninni að þetta mál hljóti að vera unnið. Ég vil ekki trúa því að hæstv. sjútvrh. standi á móti vilja iðnrh. í þessu efni og vænti þess að ekki þurfi lengi eftir því að bíða að ríkisstjórnin muni tilkynna með hvaða hætti hún kemur til móts við óskir skipasmíðaiðnaðarins að þessu leyti.