Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Aðeins nokkur orð um þetta að því er virðist sakleysislega frv. svona fljótt á litið. Ég tek undir það sem er meginmarkmið þessa frv. að þeir sem skipa fulltrúa í Lánasjóðinn séu --- ef það verða áfram menntmrh. og fjmrh. að skipunartími sé takmarkaður við þann tíma sem ráðherrar sitja en mér finnst fyllilega koma til greina að líta í heild á skipun stjórnar Lánasjóðsins. Hvort hún eigi að vera skipuð fulltrúum kosnum á Alþingi, óbreytt eða önnur skipan. Ég bendi á að Kvennalistinn hefur fulltrúa í menntmn. deildarinnar og tel ég fyllilega koma til greina að skoða þetta mál í víðara samhengi. En ef um er að ræða óbreytta skipun stjórnarinnar þá finnst mér eðlilegt að fulltrúar menntmrh. og fjmrh. sitji ekki lengur í henni en embættistíma ráðherra sem þá tilnefndu.
Um skipunartímann, hvort þeir sitja í tvö ár eða lengur, skal ég ekki segja á þessu stigi málsins.
Þar sem hér er verið að ræða málefni Lánasjóðs ísl. námsmanna langar mig til að gera að umræðuefni nefnd, sem hér hefur aðeins verið minnst á, sem menntmrh. óskaði eftir tilnefningu í, m.a. af þingflokki Samtaka um kvennalista. Vegna þess sem fram hefur komið í fjölmiðlum varðandi þessa nefnd og haft hefur verið eftir hæstv. menntmrh. varðandi afstöðu Kvennalistans þar sem hann hefur sagt að Kvennalistinn hafi ekki viljað tilnefna fulltrúa í nefnd sem ætti að fjalla um framtíðarverkefni Lánasjóðs ísl. námsmanna. Til þess að skýra þetta mál langar mig til, með leyfi forseta, að lesa hvert verkefni þessarar nefndar átti að vera. Það var í fyrsta lagi ,,að meta fjárþörf Lánasjóðsins til frambúðar með hliðsjón af líklegum fjölda námsmanna og miðað við líklega getu þjóðarbúsins til að standa undir námslánakerfinu`` og í öðru lagi ,,að gera tillögur um fjármál sjóðsins á næsta ári með hliðsjón af fjárlagafrv. fyrir árið 1990 og breytingum á skuldum sjóðsins meðan nýjar lánareglur eru í undirbúningi``. Þetta eru þau tvö aðalverkefni sem nefndinni voru falin. Okkur fannst það afarkostir sem nefndin átti að gangast undir, þ.e. að gera tillögur um fjármál sjóðsins með hliðsjón af fjárlagafrv. þar sem ljóst er að verulega fjármuni vantar upp á að staðið verði við það sem talað hefur verið um varðandi Lánasjóðinn og að Alþingi hefur alls ekki fjallað um fjárlagafrv. Kvennalistakonur töldu sér því ekki fært að skipa í þessa nefnd. Mig langar til, virðulegur forseti, að fá að lesa hér bréf Kvennalistans til hæstv. menntmrh. til að skýra þetta nánar. En svar okkar til menntmrh. hljóðar svo:
,,Kvennalistakonur hafa ætíð látið starfsemi Lánasjóðs ísl. námsmanna sig miklu varða og svo er enn. Menntmrh. hefur nú óskað eftir að Kvennalistinn tilnefni í nefnd sem virðist einkum eiga að hafa það hlutverk að gera tillögur um úthlutunarreglur LÍN á grundvelli þeirra fjárhæða sem ríkisstjórnin`` --- og ég endurtek: ríkisstjórnin --- ,,ætlar LÍN til ráðstöfunar á næsta ári samkvæmt fjárlagafrv. Þar eð Alþingi hefur ekki fjallað um fjárlagafrv. er enn ekki ljóst hver
niðurstaða fjárlaga fyrir 1990 verður. Kvennalistakonur eru reiðubúnar að taka þátt í umfjöllun um framtíðarverkefni LÍN en telja sér að svo stöddu ekki fært að taka þátt í starfi á þeim grunni sem kemur fram í erindi ráðuneytisins.``
Þetta bréf er undirritað af mér fyrir hönd Kvennalistans.
Þarna er blandað saman tvennu, annars vegar hvort kvennalistakonur eru reiðubúnar að taka þátt í nefndarstarfi þar sem framtíðarverkefni Lánasjóðs ísl. námsmanna eru rædd eða hvort verið er að tala um þá upphæð sem ríkisstjórnin er búin að setja í fjárlagafrv. Alþingi hefur ekki ákveðið endanlega niðurstöðu, auk þess sem að sjálfsögðu var gert ráð fyrir að nefndin ætti að ljúka aðaltillögugerð sinni fyrir áramót til þess að hægt væri að því er virðist að segja að allir væru þá orðnir sammála því að þessi upphæð, sem í frv. er, væri hæfileg. Ég skal ekkert um það segja hvað nákvæmlega vantar upp á það sem nauðsynlegt er fyrir Lánasjóðinn. Það er greinilegt að það vantar verulegar fjárhæðir. Ég hef ekki farið ofan í saumana á því hversu mikið eðlilegt væri að þessi upphæð hækki. En þetta er auðvitað allsendis ómögulegt að undirgangast. Mig langar í því sambandi að inna hæstv. menntmrh. eftir því hvort námsmannasamtökin hafi tekið þátt í þessu nefndarstarfi án alls fyrirvara um niðurstöðu Alþingis að því er varðar fjárlagafrv., hvort þeir hafi gengið til þessa samstarfs við nefndina án þess að hafa nokkurn fyrirvara þar á.