Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Það er fyrst út af fyrirspurn hv. 12. þm. Reykv., þá er svarið að sjálfsögðu það að auðvitað ganga námsmenn ekki til samstarfs í nefnd af þessu tagi öðruvísi en með mjög skýra fyrirvara svo að segja í bak og fyrir með alla sína hagsmuni. Það getur auðvitað ekki gerst öðruvísi. En í því bréfi sem hv. þm. vitnaði til var reyndar talað um að það ætti að hafa hliðsjón af tillögum í fjárlagafrv. fyrir árið 1990 og þar var líka, í bréfinu, vísað til skuldbreytinga á lánum Lánasjóðs ísl. námsmanna eða skuldum LÍN, en skuldir sjóðsins eru gífurlegar og afborganir og vextir Lánasjóðs ísl. námsmanna á næsta ári eru 1100 millj. kr. að óbreyttu, þannig að skuldbreytingarátak fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna getur með verulegum hætti styrkt stöðu hans frá því sem yrði að óbreyttu í þeim efnum.
Ég vil, herra forseti, þakka fyrir þær undirtektir sem þetta mál hefur fengið hér. Um hugmyndir hv. 2. þm. Reykv. mætti út af fyrir sig margt segja. Ég tel að nauðsynlegt sé að hafa það í huga við skipun stjórnar Lánasjóðs ísl. námsmanna að þar séu fulltrúar ríkisvaldsins annars vegar og fulltrúar námsmanna hins vegar af því að þessir aðilar eiga í raun og veru að semja um þetta grundvallaratriði sem eru lán á vegum Lánasjóðs ísl. námsmanna, sem eru þáttur í kjörum námsmanna og því eðlilegt að líta á þetta sem viðræðuvettvang og samningsvettvang en ekki aðeins ákvörðunarvettvang. Þetta held ég satt að segja að sé nauðsynlegt að hafa í huga. Og ég vil segja út af þeim hugmyndum sem hér hafa komið fram um að Alþingi kjósi í stjórnina að fyrir mitt leyti mundi ég óttast að það yrði fljótlega niðurstaðan eftir það að námsmenn misstu sína fulltrúa út úr stjórninni vegna þess að menn segðu sem svo: Ja, það er Alþingi sem ákveður þessa fjármuni og því eðlilegt að það ákveði útgreiðslur úr sjóðnum þá og þá. Ég bendi á þær hugmyndir sem eru uppi núna, og hafa verið í umræðum, um að breyta samsetningu stjórna mikilvægra lánasjóða þannig að fulltrúar utan Alþingis missi þar sinn seturétt. Ég vil því satt að segja áreitnislaust af minni hálfu lýsa því yfir að ég teldi að það væri mjög óvarlegt að fara út á þessa braut. Alla vega verður það að vera alveg ljóst að allar breytingar á lögum Lánasjóðsins þurfa að gerast í mjög víðtæku og nánu samráði og helst samkomulagi við námsmannasamtökin.
Ég vil aðeins víkja að því sem hér hefur komið fram í sambandi við fjármál sjóðsins og segja þetta: Fjárlagafrv. byggir á tilteknum forsendum sem greint er frá í fjárlagafrv. og auðvitað verður við afgreiðslu þess tekið tillit til þeirra breytinga sem orðið hafa frá því að fjárlagafrv. var samið í ágúst/september. Breytingar á í fyrsta lagi verðlagi, í öðru lagi fjölda námsmanna og í þriðja lagi þeim áhrifum sem tekjur námsmanna hafa á lánagetu og starfsemi sjóðsins. Þetta eru auðvitað fastir punktar sem liggja fyrir og verða að sjálfsögðu teknir með inn í myndina þegar fjármál Lánasjóðs ísl. námsmanna fyrir árið 1990
verða afgreidd. Auk þess ber auðvitað að skoða það svigrúm sem skuldbreytingar geta gefið eins og ég gat um hér áðan. Mér þykir það leitt að tveir stjórnarandstöðuflokkar af þremur skyldu ekki tilnefna fulltrúa í þessa nefnd. Við því er auðvitað ekkert að gera og ekkert að segja af minni hálfu. Flokkarnir taka auðvitað sínar ákvarðanir sjálfir í þeim efnum. Ég bendi á að þingflokkur frjálslyndra hægrimanna kaus að skipa fulltrúa í þessa vinnu og eru þeir þó óneitanlega hluti af stjórnarandstöðunni og að sjálfsögðu eru þeir ekki með því að skuldbinda sig til eins eða neins varðandi niðurstöðuna. Þeir vilja með þessu reyna að hafa áhrif á hana, orða það örugglega þannig að þeir vilja reyna að hafa vit fyrir ríkisstjórninni, og mér finnst alveg upplagt að þeir hagnýti sér þennan vettvang í því skyni þó að ég gæti út af fyrir sig margt sagt um hugmyndir hv. þm. Hreggviðs Jónssonar, en það er mál sem við ræðum við tækifæri.
Aðalatriðið með Lánasjóð ísl. námsmanna er auðvitað það að þetta er gríðarlega stór sjóður og þetta eru gríðarlega mikil verkefni sem hann hefur að sinna. Þetta eru mörg, mörg þúsund fjölskyldur sem hér eiga hlut að máli. Ríkið er hér með gífurlega hagsmuni upp á marga milljarða kr. Námsmönnum mun fara fjölgandi á næstu árum og þess vegna held ég að óhjákvæmilegt sé að við leitum leiða til að mynda eins víðtæka samstöðu um framtíðarskipan þessa kerfis og mögulegt er og það verður reynt að vinna með þeim hætti.
Ég endurtek þakkir mínar til hv. þm. sem hér hafa talað fyrir undirtektir þeirra í þessu máli.