Sementsverksmiðja ríkisins
Þriðjudaginn 07. nóvember 1989


     Friðrik Sophusson:
    Herra forseti. Ég vil þakka þær umræður sem farið hafa fram um þetta frv. sem hér er til 1. umr. Ég vil þakka hv. þm. fyrir að lýsa skoðunum sínum, sem mér heyrðust vera jákvæðar, á því frv. sem hér er til umræðu og ekki síst vil ég þakka hæstv. ráðherra sem lýsti því yfir að hann styddi meginmarkmið frv.
    Það kom fram í máli hæstv. ráðherra að hann teldi ekki samstöðu í bæjarstjórn Akraness um öll atriði frv. og það er vissulega rétt. Það er ekki samstaða í bæjarstjórninni af sömu ástæðum og það er ekki samstaða í hæstv. ríkisstjórn. Hitt er annað mál að á sl. vori gafst bæjarstjórninni ekki tækifæri til að ræða málið ítarlega heldur var það bæjarráð sem gerði það og það klofnaði í afstöðu sinni til þessa máls, en báðir hlutarnir lýstu þó því yfir að þeir vildu að lögum um Sementsverksmiðjuna yrði breytt þótt þeir væru ekki sammála um öll atriði.
    Það er enn fremur rétt sem kom fram hjá hæstv. ráðherra að lokaákvörðun um álit á þessu frv. liggur ekki fyrir hjá stjórn Sementsverksmiðjunnar. Hv. iðnn. Nd. fékk 8. maí á þessu ári bréf frá formanni Sementsverksmiðjustjórnarinnar sem bað um lengri frest. Auðvitað var ekki hægt að veita hann því að þá var komið að þinglausnum. Hins vegar sagðist formaðurinn mundu að sjálfsögðu taka málið fyrir, ekki síst ef það kæmi fram á haustþinginu og tími gæfist til þess arna. Verður það þess vegna væntanlega gert nú á næstu mánuðum þegar hv. nefnd mun senda málið til umsagnar.
    Það er enn fremur rétt sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni að forstjórar eða framkvæmdastjórar fyrirtækisins eru sammála efnisatriðum frv. sem ekki þarf að koma á óvart því að þeim var fyllilega kunnugt um það hvernig frv. var til orðið og höfðu áhrif á gerð þess með sínum skoðunum.
    Hæstv. ráðherra sagði síðan að það þyrfti að fjalla betur um málið og vakti athygli á fjórum atriðum. Þessi atriði skal ég nú fjalla um.
    Í fyrsta lagi sagði hann að til athugunar væri að bæta við í lögin ákvæði sem varðaði stjórnarkjör Sementsverksmiðjunnar. Hann benti á að slíkt ákvæði gæti orðið til góðs vegna fordæmisins í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg sálugu, Gutenberg hf. Þess skal getið út af þessari athugasemd að frá mínum bæjardyrum séð er það óeðlilegt þegar stofnað er til hlutafélaga að það sé lögbundið að fulltrúar starfsmanna eigi sæti í hlutafélagsstjórninni og ég veit að hæstv. ráðherra er sammála því. Það er eitt þeirra atriða sem hafa mjög ítarlega verið rædd, m.a. víða annars staðar, ekki síst á Norðurlöndum. Það eru til tvær aðferðir, annars vegar sú að Alþingi kjósi fulltrúa ríkisins í hlutafélagsstjórninni líkt og gerist um sum önnur hlutafélög sem ríkið á aðild að eða sameignarfélög. Má benda á nokkur dæmi um það. Sem sameignarfélag má t.d. benda á Landsvirkjun. Enn fremur getur auðvitað viðkomandi ráðherra eftir eigin óskum og vali skipað þá menn sem honum

sýnist í stjórn verksmiðjunnar og hlýtur þá ráðherra á hverjum tíma að taka tillit til ýmissa sjónarmiða. Núv. hæstv. ráðherra, ef hann yrði sá sem með þetta mál færi á þeim tíma sem af stofnun félagsins yrði, væri auðvitað í lófa lagið að setja einn af starfsmönnum og jafnvel fleiri og jafnvel eingöngu í stjórn fyrirtækisins því að hann hefur fullt vald á málinu. Þetta mál er auðvitað mjög auðleyst.
    Í öðru lagi sagði hæstv. ráðherra að það þyrfti að ræða stofnun hlutafélagsins við fulltrúa bæjarins og ástæða væri til þess að kanna hvort bæjarstjórnin ætti að tilnefna mann í stjórn eða hvort ætti að stofna til einhvers konar lögbundins samstarfs við bæinn. Þetta getur auðvitað hæstv. ráðherra gert hvenær sem er, án þess að það sé lögbundið, alveg með nákvæmlega sama hætti og hann getur sett í stjórn fyrirtækisins fulltrúa starfsmannanna. Hér er ekki um lagaatriði að ræða heldur getur hæstv. ráðherra fylgt fram sínum vilja ef honum sýnst svo.
    Eins getur auðvitað hv. nefnd tekið þetta mál upp og gert hugmyndir ráðherrans að sínum með því að birta viljayfirlýsingu í nál. þegar frv. verður afgreitt úr nefndinni.
    Í þriðja lagi sagði hæstv. ráðherra að það þyrfti að kanna rækilega aðild að nýjum fyrirtækjum. Ég bendi á að það er skýrt tekið fram í frv. í 2. mgr. að félaginu sé heimilt að gerast eignaraðili í öðrum hlutafélögum eða sameignarfélögum. Með öðrum orðum, þessu þriðja atriði sem hæstv. ráðherra nefndi er fullnægt nú þegar í frv.
    Að lokum nefndi hæstv. ráðherra tvö framkvæmdaratriði. Hann sagði að annars vegar þyrfti að kveða skýrar á um mat á eignum verksmiðjunnar. Það er að sjálfsögðu hægt að gera. Það þarf ekki neitt lagaákvæði um það og mun ég bera þau boð inn í nefndina og tel að það beri að taka fullt tillit til þess. Mér finnst þetta sjálfsagt, ekki síst vegna reynslunnar af Gutenberg. Eins sagði hæstv. ráðherra að það þyrfti kannski að nota aðra aðferð við stofnun félagsins en notuð var við stofnun félagsins um Gutenberg, t.d. að skipa undirbúningsnefnd sem afhenti síðan hlutafélaginu og stjórn þess fyrirtækið. Undir þetta get ég fyllilega tekið. Þetta er hægt að gera annaðhvort með bráðabirgðaákvæði eða hreinlega með viljayfirlýsingu nefndar og hæstv.
ráðherra.
    Aðalatriði málsins er auðvitað það að öll þau atriði sem hæstv. ráðherra ræddi hér um er auðvelt að leysa í nefndinni ef nægilegur pólitískur meiri hluti næst fyrir því í hv. iðnn. Nd. Og ég lýsi því hér yfir að ef hæstv. ráðherra vill ná þessu máli fram getur hann að sjálfsögðu beitt sér fyrir því að stjórnarflokkarnir, sumir, einhverjir eða allir, styðji framgang þessa máls með þeim breytingum sem hann vill að gerðar verði á frv. eða með þeim tilmælum sem borin eru fram annaðhvort af hans hálfu eða af hálfu nefndarinnar. Og ég verð að skilja yfirlýsingu hæstv. ráðherra um það að hann styðji markmið frv. á þann veg að hann hafi þar með sagt að hann telji að frv. eins og þetta eigi að ná fram á yfirstandandi þingi. Það kann að

vera metnaðarmál hæstv. ráðherra að flytja stjórnarfrv. um þetta mál. Ég held að það skipti mun meira máli að ná árangri en að svala þeim metnaði og ég hygg að hæstv. ráðherra geti, ef hann vill, notað sín miklu áhrif til þess að beina tilmælum til virðulegrar nefndar. Ég minni á að oft kemur það fyrir að hæstv. ráðherrar beinlínis biðja þingnefndir um að flytja mál fyrir sig. Mér þykir sjálfsagt að ræða hæstv. ráðherra verði lögð fram í nefndinni eða jafnvel kallað eftir áliti ráðherrans þannig að nefndin geti nú þegar unnið að þessu máli, enda er nefndin kannski besti vettvangurinn og sá þinglegasti til þess að ná meirihlutaáliti um það mál sem hér er til umræðu og tekið hefur verulegum breytingum á undanförnum árum.
    Þrátt fyrir yfirlýsingu ráðherrans um að hann hyggist flytja stjórnarfrv. síðar á þessu þingi, sem ég hef nokkrar efasemdir um að honum takist, leyfi ég mér að líta svo á að það sé hæstv. ráðherra þóknanlegt að hv. nefnd taki til við að vinna úr þeim gögnum sem fyrir liggja og ég leyfi mér að vonast til þess að hæstv. ráðherra hvetji a.m.k. sinn flokksmann í hv. iðnn. Nd. til þess að afgreiða frv. með jákvæðum hætti og skal þá ekki standa á mér, sem er einn nefndarmanna, að taka fyllsta tillit til sjónarmiða hæstv. ráðherra.