Sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum
Miðvikudaginn 08. nóvember 1989


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur orðið og undirtektir hv. þingdeildarmanna við meginefni þessa frv. og vil láta það koma fram svo að ekki fari á milli mála að þó að ég hafi áðan beðið um að málinu yrði hraðað svo sem kostur er, þá er það vitaskuld í þeim tilgangi ekki síður að málið verði skoðað hér í meðförum þingsins eins og nauðsynlegt er og vera ber.
    Það komu fram hér fáeinar fyrirspurnir til mín í þessu sambandi, aðallega frá hv. 6. þm. Vesturl. og þó ég sé kannski vanbúinn að svara þeim öllum á stundinni, þá ætla ég að gera til þess tilraun.
    Ég get tekið undir það að forvarnarstarf í þessu efni er auðvitað aðalatriði málsins og skiptir öllu í sambandi við þennan málaflokk á hvaða stigi sem er. Þess vegna get ég lýst samþykki mínu við það sem hv. þm. sagði um það efni. Þingmaðurinn spurði um það hvaða þróun væri um mannafla hjá lögregluliði í þessu sambandi. Ég er nú ekki með tölur hér við höndina en mig minnir að í fíkniefnadeild lögreglunnar hér í Reykjavík séu um 14 stöðugildi og í fjárlagafrv. núna er gert ráð fyrir fjölgun um 6 stöðugildi í lögregluaflanum hér almennt. Það er ekki tekið fram hvernig hún skiptist á milli deilda. Hins vegar munu vera tveir aðilar á Reykjavíkursvæðinu sem vinna að forvörnum sérstaklega á vegum lögregluliðsins hér í Reykjavík.
    Ég held að það fari ekkert á milli mála að þessi mannafli er allt of lítill miðað við umfang þess verkefnis sem hér er um að ræða.
    Þingmaðurinn spurði hvort fyrir dyrum stæði fræðsluherferð í því sambandi. Ég get svarað því til að nefnd hefur starfað á vegum þriggja ráðuneyta í þeim tilgangi, á vegum félmrn., menntmrn. og dómsmrn. Á vegum þeirrar nefndar er gert ráð fyrir fræðslustarfi sem ekki er formlega hafið enn þá nú á þessum vetri. Meginefni þessa frv. er, eins og hér hefur áður komið fram, að það er farið fram á þann möguleika að fjölga í þessum dómi þegar sérstaklega stendur á. Og frv. er flutt vegna þess að í dómsmrn. voru menn ekki á eitt sáttir um það hvort sú heimild væri fyrir í lögum. Flutningur frv. er fyrst og fremst til þess að taka af öll tvímæli í því efni.