Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Með frv. því til l. um breytingu á lögum nr. 76/1982, um lyfjadreifingu, með síðari breytingum sem ég mæli hér fyrir er ætlunin að heimila lyfjaheildsölum að selja lyf til annarrar lækningastarsemi en þeirrar sem flokkuð er sem sjúkrahús skv. lögum nr. 109/1983, um heilbrigðisþjónustu.
Skv. gildandi lögum um lyfjadreifingu, sbr. 36. gr., síðustu mgr. laga nr. 76/1982, er lyfjaheildsölum óheimilt að selja lyf öðrum en þeim sem leyfi hafa til smásölu lyfja, svo og til notkunar á sjúkrahúsum og þeim tilraunastofnunum sem leyfi hafa til tilrauna með lyf.
Nái breyting sú, sem ég mæli hér fyrir, fram að ganga mundu bætast við heilsugæslustöðvar og læknastöðvar. Það liggur ljóst fyrir að sú starfsemi sem fram fer á heilsugæslustöðvum og læknastöðvum er sambærileg við þjónustu sjúkrahúsa í mörgum tilfellum og er því óeðlilegt að ekki gildi um þessa starfsemi sömu reglur gagnvart kaupum á lyfjum í heildsölu, en það er mikið hagsmunamál fyrir þessa aðila að geta keypt lyf af lyfjaheildsölunni.
Það er skoðun ráðuneytisins og Lyfjaeftirlits ríkisins að nauðsynlegt sé að heilsugæslustöðvar og læknastöðvar sem fengið hafa viðurkenningu ráðuneytisins í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu búi við sömu kjör hvað lyfjakaup varðar og annar hliðstæður rekstur. Hér er um að ræða starfsemi sem jafna má til starfsemi sjúkrahúsa eins og áður greinir frá.
Sem stendur standa lög beinlínis í vegi fyrir því að lyfjaheildsalar geti selt heilsugæslustöðvum og læknastöðvum lyfin og hlýst af því margvíslegt óhagræði og röskun, ekki síst fyrir þá sjúklinga sem leita þjónustu þessara aðila og þurfa því ekki að leggjast inn á sjúkrahús. Skv. lyfjadreifingarlögum þarf að tryggja ákveðna þjónustu lyfjafræðinga, nái frv. þetta fram að ganga, þ.e. lyfjafræðingar hafi umsjón með og beri ábyrgð á öflun lyfja og eftirliti með notkun innan heilsugæslustöðva og læknastöðva. Í sjálfu sér þyrfti ekki að ráða lyfjafræðing nema í hlutastarf við þessar stofnanir þannig að ekki er um teljandi kostnað að ræða þar. Rétt er að geta þess að með þessu er ekki verið að veita heilsugæslustöðvum og læknastöðvum heimild til þess að nota lyf utan stöðvanna, hvað þá að afhenda hlutaðeigandi sjúklingum lyf, heldur er eingöngu um að ræða notkun á stöðvunum sjálfum.
Ég sé ekki ástæðu til þess, hæstv. forseti, að fara um þetta frv. mikið fleiri orðum. Það skýrir sig nokkuð vel sjálft og er einfalt í eðli sínu. Ég legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn. að lokinni þessari umræðu.