Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Það var reyndar eitt sem ég fékk ekki svar við. Það var skýrgreiningin á læknastöð og ég hlýt að gera athugasemd við það því að það þarf ekki annað en að nokkrar lækningastofur séu í sama húsi til þess að unnt sé að kalla það læknastöð og þá er spurning: Hvaða rétt eiga þrír læknar í sama húsi fram yfir einn lækni í einhverju öðru húsi? Þetta er með öðrum orðum atriði sem er ekki nægilega skýrt. Ef þetta frv. fær brautargengi þarf nú í fyrsta lagi að hafa þetta atriði skýrara.
Í öðru lagi þykir mér líka losaraleg hugmynd hæstv. ráðherra um hlutverk lyfjafræðingsins. Hæstv. ráðherra sagði í skýringarræðu sinni, hinni síðari, að hér væri ekki um það að ræða að ráða lyfjafræðinga, heldur að það væri aðgangur að lyfjafræðingi eða unnt að spyrja lyfjafræðing ráða, skildist mér nánast. Ég hefði ætlað að það væru í sjálfu sér engin vandkvæði á slíku að öllu óbreyttu. Hins vegar segir svo í grg. frv., með leyfi hæstv. forseta:
,,Ráðuneytið telur því nauðsynlegt að lögum verði breytt þannig, að þau standi beinlínis ekki í vegi fyrir því að lyfjaheildsalar geti selt slíkri starfsemi lyf, enda sé í fyllsta máta eðlilegt að svo sé gert, þar sem þjónustan er hin sama og veitt er á sjúkrahúsum``, sem ég sé ekki að þurfi nú að vera skv. þeirri upptalningu sem er í sjálfri frumvarpsgreininni. Og enn segir í greinargerðinni, með leyfi hæstv. forseta:
,,Í þessu tilviki er rétt að benda á að því aðeins kæmi til sala á lyfjum í slíkum tilvikum að uppfyllt séu önnur ákvæði lyfjadreifingarlaga, t.d. um að þar starfi lyfjafræðingur sem hafi umsjón með og beri ábyrgð á öflun lyfja og eftirliti með notkun innan hlutaðeigandi heilsugæslustöðva og læknastöðva.``
Þetta er miklu meira hlutverk en það að unnt sé að ná í lyfjafræðing og spyrja hann ráða. Þetta er miklu viðameira hlutverk og hér er beinlínis talað um ráðningu þannig að mér sýnist nú ekki alveg ljóst hvernig slík lög yrðu túlkuð ef einhver vafi risi upp þegar hæstv. ráðherra segir eitt og í greinargerðinni stendur í raun og veru annað.
Á þetta vildi ég benda og enn fremur það að ég sé ekki hvaða nauðsyn ber til þess að taka þetta frv. og meðhöndla það hér í Alþingi aðskilið frá þeim frumvörpum sem ég vonast til að komi fram um lækkun lyfjakostnaðar. Mér virðist hafa verið unnið svo viðamikið og mikilsvert starf að það sé sjálfsagt með hagsmuni þegnanna fyrir augum að skoða þessi mál í samhengi en ekki að taka út úr mál sem er ekki nægilega skýrt hvernig túlkað verður eða hvernig framkvæmt verður og hvort hafi e.t.v., sem mér virðast allar líkur benda til, aukinn kostnað í för með sér.