Lyfjadreifing
Miðvikudaginn 08. nóvember 1989


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Ég skal reyna að hafa ekki mjög mörg orð um þetta í viðbót. Það er rétt hjá hv. 3. þm. Reykv. að mér láðist það áðan að ræða svolítið um það sem hér kemur fram í 1. gr. frv. og kallað er ,,læknastöð.``
    Það kann að vera og ég verð þá að taka undir það með hv. þm. að hér sé ekki um að ræða nægjanlega skýra skilgreiningu vegna þess að það sé hægt að heimfæra hana eða láta hana falla yfir starfsemi sem ekki er fyrirhugað að láta ákvæðið ná yfir eins og það er hér sett fram. En það sem heilbrrn. miðaði við og það sem var í umræðu þar þegar þetta frv. var í undirbúningi voru nokkrar læknastöðvar hér á höfuðborgarsvæðinu sem í dag vinna hliðstæð störf og heilsugæslustöðvar. Ég get nefnt stöð sem hefur venjulega gengið undir nafninu Álftamýrarstöðin svo að ég taki eitthvert dæmi til viðmiðunar.
    En það er vissulega rétt hjá hv. þm. að það eru auðvitað miklu fleiri staðir hér á þessu svæði og sjálfsagt víðar á landinu þar sem tveir, þrír, fjórir læknar starfa saman í húsnæði án þess að um sé að ræða sameiginlega starfsemi þeirra að öðru leyti. En við í heilbrrn. höfðum fyrst og fremst í huga þá starfsemi sem er hliðstæð heilsugæslustöðvunum, þar sem læknar eru með sameiginlega þjónustu og aðgerðarstofu og þurfa þess vegna að hafa lyfjaforða eða aðgang að lyfjum til þess að nota inni á þessum stofnunum.
    Ég ítreka að það er sjálfsagt fyllilega réttmæt ábending hjá hv. þm. að þetta þurfi að skoða nánar og skilgreina eilítið skýrar en hér er gert í frumvarpstextanum eins og hann liggur fyrir því að eins og hv. þm. hefur bent á getur auðvitað verið um að ræða aðra sameiginlega starfsaðstöðu lækna sem væri erfitt að skilgreina hvort ætti að falla undir þetta ákvæði eða utan við það.
    Varðandi það að ráða til starfa lyfjafræðing að heilsugæslustöðvunum og læknastöðvunum eða hafa aðgang að þjónustu lyfjafræðingsins vil ég aðeins
segja það og ítreka að það hlýtur auðvitað að fara mjög eftir stærð stofnunarinnar. Nú er þetta svo að sjúkrahúsin þurfa að hafa aðgang að þessari þjónustu. Sum þeirra hafa ráðið lyfjafræðing. Þar starfa lyfjafræðingar á stærri stofnununum. Önnur hafa gert það á þann hátt að þau hafa ráðið lyfjafræðing í hlutastarf, greiða lyfjafræðingi að einhverjum hluta til fyrir þá þjónustu sem þar er veitt og er nauðsynlegt að veita til þess að framfylgja lögunum að öðru leyti og enn önnur hafa samið við viðkomandi apótekara, þar sem um er að ræða minnstu stofnanirnar, um að hann hefði þetta eftirlit eins og hér segir í greinargerðinni og hv. þm. las upp ,,umsjón með og beri ábyrgð á,, þessum lyfjaforða sem þarna er. Það hlýtur því að fara mjög eftir stærð stöðvanna, eðli og umfangi. Það er auðvitað alveg ljóst að á stórri heilsugæslustöð, við getum tekið einhverja stóra stöð hér á höfuðborgarsvæðinu eða á Akureyri, þar sem

starfa tugir manna, þar er auðvitað um að ræða allt aðra starfsemi og hlýtur að þurfa að hafa þar þjónustu lyfjafræðings með nokkuð öðrum hætti en kannski í lítilli stöð, H-1 stöð einhvers staðar úti á landi þar sem starfsemin er miklu umfangsminni og auðvitað algjörlega útilokað eins og aðstæður eru á þeim stöðum, a.m.k. í dag, að þar verði ráðinn lyfjafræðingur í fullt starf. Þar er kannski ekki einu sinni lyfjafræðingur á staðnum. Og þá hlýtur að verða að gera samning eða samkomulag við lyfjafræðing í næstliggjandi byggð eða apótek, að hann hafi umsjón með eða beri ábyrgð á þessum lyfjaforða sem þarna kynni að vera í heilsugæslustöðinni eins og hér er reyndar kveðið á um.
    Ég vona að hafi ég talað eitthvað ónákvæmlega um það áðan líka þá skiljist það ekki svo að þetta sé lítils virði á þann hátt að þetta sé svona rétt til þess að hringja í og ráðfæra sig við eins og hv. þm. sagði og túlkaði mín orð á þann veg. Það var alla vega ekki meiningin. Hins vegar tel ég að það hljóti að vera hægt að ná samkomulagi við lyfjafræðinga um að veita þá ráðgjöf og hafa umsjón og bera ábyrgð á þessum forða án þess að um sé að ræða útgjaldasaman lið fyrir litla heilsugæslustöð.