Lyfjadreifing
Miðvikudaginn 08. nóvember 1989


     Ragnhildur Helgadóttir:
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýringuna á orðinu ,,læknastöð`` í frv. og ég er því fegin að hæstv. ráðherra vill að þetta verði betur eða skýrar orðað í frv. á síðara stigi. Hæstv. ráðherra tók hér dæmi af Álftamýrarstöðinni, læknastöðinni þar sem svo var nefnd áður, en Álftamýrarstöðin er í raun og veru heilsugæslustöð og starfar sem slík og samkvæmt samningi við hið opinbera, þ.e. einkarekin heilsugæslustöð þannig að það ætti nú að vera vandalaust að kveða skýrar á um þetta.
    En ég tel, herra forseti, að það sé nauðsynlegt að nefndin, og þá þingið á síðara stigi, fái áætlun hæstv. ráðherra um það hve marga lyfjafræðinga þarf til þessara starfa ef heilsugæslustöðvum er veittur þessi réttur almennt, en þær eru margar í landinu. Að vísu segir í grg. frv. að þessum stofnunum megi alveg jafna til sjúkrahúsa, en ég hefði haldið að það væri einmitt eitt af grundvallaratriðum í heilbrigðisþjónustulögunum að þær hefðu annað hlutverk, þar væri frumheilsugæslan og sjúkrahúsin hefðu eðli sínu samkvæmt umönnun og lækningu sjúkra með höndum.