Stjórnarráð Íslands
Miðvikudaginn 08. nóvember 1989


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Herra forseti. Ég þakka forseta fyrir að taka mál þessi á dagskrá nú og jafnframt þakka ég þingmönnum fyrir að greiða fyrir því að svo gæti orðið og ekki síst þingmönnum stjórnarandstöðunnar.
    Á síðasta þingi lagði ég fram frv. um umhverfisráðuneyti. Það varð ekki útrætt. Ég tilkynnti þá að ég mundi láta skoða þau mál á milli þinga og leggja fram að nýju frv. um umhverfisráðuneyti nú á haustþingi. Nefnd skipaði ég síðan til að yfirfara þessi mál og hún gerði það mjög ítarlega, hélt fjöldann allan af fundum, átti fundi með mörgum stofnunum sem þessi mál varða, mörgum áhugafélögum sem láta sig umhverfismálin varða og fór yfir þær umsagnir sem höfðu borist í meðferð hv. allshn. á þessu máli á síðasta þingi. Þau tvö frv. sem ég leyfi mér að mæla hér fyrir samsíða eru árangurinn af því starfi.
    Sú meginbreyting er hér gerð að nú er lagt fram frv. til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands þar sem fyrst og fremst er bætt við í upptalningu á ráðuneytum umhverfisráðuneyti en jafnframt eru þar ákvæði til bráðabirgða sem ég mun koma að síðar.
    Hins vegar er flutt frv. til laga sem á dagskránni er nefnt yfirstjórn umhverfismála og fjallar um þær fjölmörgu breytingar sem þarf að gera á ýmsum lögum sem þessu tengjast.
    Ég ætla nú ekki að hafa langa ræðu því tíminn er afar takmarkaður en vil þó segja bæði nokkur almenn orð um umhverfismálin og svo að sjálfsögðu lýsa þeim frv. sem hér eru til umræðu.
    Segja má að viðhorf manna til umhverfismála greinist í þrennt. Í fyrsta lagi eru þeir sem ekki telja þörf á því að setja á fót sérstakt umhverfisráðuneyti og telja að sinna megi þeim málum með samstarfi hinna ýmsu ráðuneyta sem að umhverfismálunum koma. Á hinum kantinum eru svo þeir sem vilja setja á fót umhverfisráðuneyti og fela því mjög mikil og víðtæk verkefni sem má segja að tengist öllum atvinnuvegum og veita slíku ráðuneyti jafnframt mjög víðtækar heimildir til að grípa inn í ef talið er að umhverfi spillist af athöfnum manna eða fyrirtækja. En síðan eru aðrir sem kjósa fremur að fara þarna meðalveginn, setja á fót sérstakt umhverfisráðuneyti en fylgja þeirri meginreglu að viðkomandi atvinnuvegir eigi að vera ábyrgir fyrir umhverfi sínu, ábyrgir fyrir að lagfæra það sem úrskeiðis kann að hafa farið og halda því við sem nauðsynlegt er til að umhverfið geti talist hreint. Þau frv. sem hér eru lögð fram fylgja þessari millileið.
    Um þetta má að sjálfsögðu lengi ræða og lengi deila. En ég vek athygli á því að í mjög umræddri skýrslu fyrrv. forsrh. Noregs, Gro Harlem Brundtland, Brundtland-skýrslunni svonefndu, er einmitt lögð áhersla á að viðkomandi atvinnuvegir verði að vera meðábyrgir í meðferð umhverfisins og ýmsir hafa talið þar með eðlilegt að þeir væru ábyrgir fyrir lagfæringum á því sem úrskeiðis kann að fara.
    Hér er því t.d. fylgt að þetta ráðuneyti ákveður

ekki veiðiheimildir á fiskistofnum heldur er það sjútvrn. áfram sem gerir það. Hafrannsóknastofnun er því ekki flutt yfir til umhverfisráðuneytisins, þótt að sjálfsögðu fiskistofnarnir í kringum landið séu ein mikilvægasta auðlind okkar og ekki megi ofnýta þá, ekki megi ganga á fiskistofnana eins og með ofveiði kynni að verða gert.
    Ég nefni þetta vegna þess að þeir sem lengst hafa gengið hafa sumir hverjir talið að jafnvel slík ákvörðun ætti að vera í umhverfisráðuneyti. Hins vegar hefur umhverfisráðuneyti að sjálfsögðu eftirlit með mengun sjávar og kemur það fram í því sem ég mun ræða hér á eftir, bæði geislavirkni sjávar, olíumengun, efnamengun o.s.frv.
    Þeirri sömu reglu er fylgt hér varðandi t.d. landbúnaðinn að umhverfisráðuneyti gegnir þar mjög viðamiklum verkefnum í eftirliti með gróðri, graslendi, skógrækt og þess háttar. En landbúnaðurinn heldur áfram hjá sér þeirri ábyrgð að bæta og halda við því gróðurlendi sem til landbúnaðar er notað. Kem ég einnig nánar að því hér á eftir.
    Lýsing á verkefnum ráðuneytisins kemur allítarlega fram í grg. og ætla ég að fara yfir meginþætti þeirra. Rétt er að geta þess strax að í meðferð nefndarinnar á þessu máli hefur töluvert verið aukið við verkefni umhverfisráðuneytis frá því sem var í því frv. sem ég flutti í fyrra, þó fyrst og fremst sé þar um að ræða að flytja ýmsar stofnanir sem koma að umhverfismálum til þessa nýja ráðuneytis. Má segja að þannig séu í flestum tilfellum dregnar hreinni línur. Þó eru þau tilfelli hér þar sem umhverfisráðuneytinu er ætlað að starfa með öðrum ráðuneytum og með stofnunum sem heyra undir önnur ráðuneyti.
    Með viðfangsefnum umhverfisráðuneytisins er m.a. talið:
    1. Mál er varða náttúruvernd, þjóðgarða, landgræðslu að því er tekur til gróðurverndar, varna gegn gróðureyðingu, friðunar og eftirlits með ástandi gróðurs, verndun, friðun og eftirlit með náttúrulegum birkiskógum og skógum til útivistar, útivist og aðstöðu til náttúruskoðunar, jarðrask og efnistöku,
aðgerðir til að stjórna stofnstærð villtra dýra, dýravernd og efling alhliða umhverfisverndar. Þó eru þarna á þær undantekningar sem ég nefndi t.d. áðan með sjávardýr og sömuleiðis hvað varðar gróðureyðingu o.s.frv., þar hafa Landgræðslan og Skógræktin eftir sem áður mikilvægum hlutverkum að gegna.
    2. Mál er varða varnir gegn mengun á landi, í lofti og legi, eyðingu eða endurvinnslu hvers konar úrgangs frá byggð og atvinnuvegum, mál sem varða meðferð eiturefna og varnir gegn skaðlegri geislun og mál sem varða hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit.
    3. Skipulags- og byggingarmál, friðlýsing húsa, gerð landnýtingaráætlana og mál er varða landmælingar.
    4. Rannsóknir á sviði umhverfismála í samráði og samvinnu við aðra aðila, veðurspár, veðurathuganir og aðrar mælingar á ástandi lofthjúps jarðar, og alþjóðleg samvinna á því sviði.

    5. Fræðslu- og upplýsingastarfsemi á sviði umhverfismála.
    6. Frumkvæði að samræmingu á aðgerðum ráðuneyta, einstakra ríkisstofnana og sveitarfélaga í málaflokkum sem snerta framkvæmd umhverfismála, svo sem í löggjöf um losun úrgangsefna og varnir gegn loft-, hávaða-, titrings-, geislunar-, ljós-, varma- og lyktarmengun.
    7. Mál er varða alþjóðasamskipti og samvinnu þjóða á sviði umhverfismála og framkvæmd á alþjóðasamningum um það efni.
    Til að framkvæma þessi mörgu og miklu verkefni er gert ráð fyrir því að eftirgreindar stofnanir og embætti komi undir umhverfisráðuneytið:
    1. Náttúruverndarráð.
    2. Hollustuvernd ríkisins.
    3. Eiturefnanefnd.
    4. Geislavarnir ríkisins.
    5. Siglingamálastofnun ríkisins að því er varðar varnir gegn mengun sjávar.
    6. Skipulagsstjóri ríkisins og skipulagsstjórn.
    7. Landmælingar ríkisins.
    8. Húsfriðunarnefnd.
    9. Embætti veiðistjóra.
10. Náttúrufræðistofnun Íslands.
11. Veðurstofa Íslands.
    Eins og fram kemur af þessari upptalningu eru fleiri stofnanir en áður var gert ráð fyrir færðar til umhverfisráðuneytisins. Þess skal getið að í nefndinni sem þetta vann var fullt samkomulag um þær stofnanir sem hér hafa verið nefndar. Segja má að umhverfisráðuneytið sé þannig stórum öflugri heild heldur en gert var ráð fyrir í upphaflegri mynd eins og ég lagði hana fram í fyrra.
    Þess má jafnframt geta að á vegum forsrn. er verið að athuga uppstokkun Stjórnarráðsins á miklu breiðari grundvelli. Það verk er nokkuð langt komið en þó langt frá því að vera lokið. Sá flutningur stofnana sem hér er gert ráð fyrir er í samræmi við þær hugmyndir sem nú liggja fyrir um slíkt.
    Um einstök atriði í frv. vil ég nefna sérstaklega Hollustuvernd ríkisins sem nú er gert ráð fyrir að flytja alla yfir til umhverfisráðuneytinsis, en í fyrra frv. var gert ráð fyrir að henni yrði skipt, þ.e. að eftirlit með mengun umhverfis yrði flutt til umhverfisráðuneytisins en eftirlit með eitrun matvæla yrði áfram hjá heilbrrn.
    Ég skal viðurkenna það að fyrir mitt leyti hefði ég frekar kosið að eftirlit með eitrun matvæla yrði áfram hjá heilbrrn., en á því voru taldir afar miklir vankantar, m.a. af starfsmönnum þessarar stofnunar, að skipta henni. Og það var farið eftir þeirra tillögum, m.a. að hún flyttist þá heldur öll yfir. Út af fyrir sig á það ekkert að draga úr eftirliti með eitrun matvæla eða efnum í matvælum sem ekki eru leyfð.
    Eiturefnanefnd er færð yfir og Geislavarnir ríkisins. Um það hefur töluvert verið rætt. Eins og nú er ástatt annast Geislavarnir ekki síst, og reyndar fyrst og fremst, eftirlit með geislun á sjúkrahúsum og þess háttar. Hins vegar eru allir sammála um að eftirlit

með geislavirkni í hafi og á landi muni aukast mjög mikið og miklar skyldur muni hvíla á okkur Íslendingum í því sambandi. Því taldi nefndin, og á það hefur verið fallist, rétt að Geislavarnirnar flyttust sem slíkar yfir til umhverfisráðuneytisins. En að sjálfsögðu munu þær eftir sem áður veita þá þjónustu sem nauðsynleg er á sjúkrahúsum.
    Þá er gert ráð fyrir því, eins og ég sagði, að Skipulagsstjóri og Landmælingar flyttust yfir sem ekki var áður.
    Nokkuð hefur verið rætt um flutning Veðurstofu Íslands. Veðurstofan annast allar mælingar sem fara fram t.d. á súrnun andrúmslofts og yfirleitt þeirri mengun sem finnst í andrúmsloftinu og því var talið eðlilegt að hún flyttist. Náttúrufræðistofnun Íslends yrði að öllum líkindum, ef samþykkt verður, sú rannsóknarstofnun sem ekki síst yrði byggt á í þeirri umhverfisvernd sem hér er gert ráð fyrir, a.m.k. hvað varðar landið, gróðurinn og ýmislegt sem því viðkemur.
    Ég vil svo geta sérstaklega um helstu álitamál. Reyndar má segja að frá hendi nefndarinnar sé það fyrst og fremst eitt, þ.e. landgræðsla og skógrækt, sem einnig var mjög umdeilt við meðferð málsins á síðasta þingi og sumir hafa talið að ætti að flytjast að öllu leyti yfir til umhverfisráðuneytis. Nú verður því að sjálfsögðu ekki neitað að fyrir landbúnaðinn er afar mikilvægt að hafa stofnanir sem sinna því að bæta gróðurlendi sem að sjálfsögðu er undirstaða landbúnaðar hérlendis. Sömuleiðis gera menn sér vonir um að skógrækt geti orðið landbúnaður, geti orðið atvinnugrein. Vil ég því taka undir það sem ýmsir fulltrúar landbúnaðarins hafa sagt þegar þeir telja óhjákvæmilegt að þetta verði hjá landbúnaðinum a.m.k. að hluta.
    Um þetta var mikið rætt og má segja að niðurstaðan hafi orðið sú sem kemur fram í athugasemdum við ákvæði til bráðabirgða. Ákvæði til bráðabirgða gera ráð fyrir því að eftir gildistöku laga þessara skipi umhverfisráðherra nefnd til þess að semja frv. til laga um umhverfisvernd.
    Þá er í öðru lagi gert ráð fyrir því að fyrir 1. nóv. 1990 skuli umhverfisráðherra í samráði við viðkomandi ráðuneyti beita sér fyrir endurskoðun á lögum um Siglingamálastofnun ríkisins, nr. 20/1986 --- það er vegna þess að þar blandast að sjálfsögðu hagsmunir --- um Landgræðslu ríkisins, nr. 17/1985, og Skógrækt ríkisins, nr. 3/1955, með síðari breytingum, svo og öðrum lögum og reglum sem tengjast verksviði umhverfisráðuneytis.
    Í skýringum við 1. og 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða segir um 1. tölul.:
    ,,Við samningu frv. til laga um umhverfisvernd verður m.a. fjallað um sérstaka umhverfisverndarstofnun. Hún taki að sér þau verkefni á sviði landgræðslu og skógræktar sem heyra undir umhverfisráðuneyti og yfirstjórn þess samkvæmt athugasemdum hér á eftir og drögum að reglugerð í fskj. I.``
    Í þessu sambandi þarf að sjálfsögðu að athuga

hvernig þetta tengist Náttúruverndarráði og Náttúrufræðistofnun. Það er ekki ætlunin hér að fara að setja fleiri aðila inn í þetta en með því sem, og ég kem að því síðar, Náttúruverndarráði er falið þá er verksvið þess náttúrlega stórlega útvíkkað og það komið að sumu leyti út í framkvæmdir og rannsóknir sem það hefur ekki haft með að gera áður. Það er því nauðsynlegt að samræma þessa starfsemi alla og því sett hér fram að það mætti gera með sérstakri umhverfisverndarstofnun.
    Um 2. tölul. ákvæðis til bráðabirgða segir, með leyfi forseta:
    ,,Við endurskoðun laga um landgræðslu og skógrækt skulu eftirtalin málefni verða á verksviði umhverfisráðuneytis:
    1. Gróðureftirlit og gróðurrannsóknir.
    2. Gróðurvernd, þar á meðal hvers konar varnir gegn gróðureyðingu, án þess að búist verði við að á móti komi arður eða efnahagslegar nytjar.
    Á verksviði landbrn. verði eftirtalin málefni:
    1. Ræktun ógróins eða lítt gróins lands með það í huga að fá af því beinar nytjar, t.d. að rækta beitilönd og tún.
    2. Breytingar á landi til að bæta gróðurfar þess í atvinnuskyni og renna þannig fleiri stoðum undir landbúnaðinn, t.d. með ræktun nytjaskóga.``
    Í þessu sambandi er nauðsynlegt, eins og forseti hefur leyft, að vísa til frv. til laga um yfirstjórn umhverfismála, þar sem í 1. gr. er fjallað einmitt um Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins og segir, með leyfi forseta:
    ,,Ráðið skal ásamt Landgræðslu ríkisins vinna að gróðurvernd og hafa eftirlit með ástandi gróðurs. Getur ráðið falið gróðurverndunarnefndum slíkt eftirlit.
    Ráðið skal ásamt Skógrækt ríkisins vinna að verndun og eftirliti með náttúrulegum birkiskógum og skógum til útivistar.
    Þrátt fyrir ákvæði laga um landgræðslu, nr. 17 24. apríl 1985, og laga um skógrækt, nr. 3 6. mars 1955, með síðari breytingum, getur umhverfisráðherra að fengnum tillögum Náttúruverndarráðs fyrirskipað sérstakar friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar skv. 4. og 5. mgr.``
    Hér er með öðrum orðum í fyrsta lagi lögð áhersla á samstarf þessara stofnana og umhverfisráðuneytis, en umhverfisráðuneytinu þó heimilað að grípa inn í ef gróður er talinn vera í alvarlegri hættu. Ég vil leggja á það áherslu í þessu sambandi, af því að mjög hefur verið um það rætt, að að sjálfsögðu hefur landbúnaðurinn áfram öll tök á nauðsynlegum rannsóknum sem hann þarf til að bæta búskaparaðstöðu og ég vek athygli á því að Rannsóknastofnun landbúnaðarins er hinn öflugasti aðili á þessu sviði. Og af því að sumir hafa óttast að rannsóknir verði þá algjörlega teknar í burt frá stofnunum landbúnaðarins, þá er vitanlega alls ekki um það að ræða. Langsamlega öflugustu rannsóknirnar á gróðurlendi eru hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Hins vegar er jafnframt eðlilegt að umhverfisráðuneytið sinni t.d. ýmissi uppgræðslu þar

sem engra hagsmuna er að gæta hjá landbúnaðinum, svo sem á hálendi þar sem ekki er um beit að ræða og menn vilja bæta landið, svo dæmi séu nefnd, en geti jafnframt gripið í taumana eins og annars staðar ef um hættu er talið að ræða. Það er því von mín að með þessu móti hafi tekist að sætta að nokkru ólík sjónarmið og hef ég reyndar orðið var við það í viðræðum sem ég hef átt við ýmsa aðila um þessi mál.
    Hér eins og á fjölmörgum öðrum sviðum svona viðamikils máls verður reynslan að skera úr. Meðferð umhverfismála kemur ekki fullsköpuð með samningu þessara frv. Hér er um það að ræða að margar stofnanir þurfa að vinna saman og móta ef vel á að takast.
    Eins og rætt hefur verið um liggur hér jafnframt fyrir frv. til laga um yfirstjórn umhverfismála þar sem breytt er þeim ýmsu lögum í einum bandormi í 22 greinum sem með fyrra frv. sem ég hef lýst, ef að lögum verður, falla undir umhverfisráðuneytið.
    Ég tel mig ekki þurfa að rekja það í neinum smáatriðum því að í raun og veru felst það í þeirri lýsingu sem ég hef gefið á verkefnum unhverfisráðuneytisins og læt það því nægja.
    Ég vil síðan að lokum, herra forseti, aðeins leggja áherslu á það að á þessum málum er okkur Íslendingum ekki á öðru stætt en að taka af mikilli festu. Við erum ekki einir í heiminum og þótt við fögnum því nú að sjórinn í kringum landið er talinn tiltölulega hreinn, þá er ekki að vita hvað svo verður lengi. Við hljótum að láta okkur mjög varða það sem gerist í löndunum í kringum okkur. Óhreinindi sjávar berast hingað fyrr eða síðar ef við tökum ekki þátt í að sporna við því og til að geta gert það þurfum við að sjálfsögðu að vera hér með öfluga starfsemi á sviði mengunar sjávar.
    Við getum sömuleiðis þakkað það að hér mælist tiltölulega lítið súrt regn og sömuleiðis höfum við ekki hér skóga sem eyðast af súru regni. En það vex stöðugt hér og getur eytt fiski í vötnum og við munum ekki fara varhluta af áhrifum iðnaðarmengunar í himinhvolfinu á gróður jarðar í gegnum gróðurhúsaáhrifin, bráðnun jökla o.s.frv., sem reyndar mundi gæta hér gífurlega mikið. Vitanlega hlýtur sú krafa að vera gerð til okkar að við komum í veg fyrir slíka mengun frá okkar atvinnurekstri og verðum að taka það mjög föstum tökum. Ég tel að því verði alls ekki á móti mælt að uppblástur gróðurlendis heldur áfram, þótt víða hafi töluvert áunnist á einstökum svæðum, og er eitthvert allra mesta umhverfisvandamál sem við eigum við að stríða. Á öllu þessu verðum við að taka og okkur ber sömuleiðis nauðsyn til þess að taka þátt í þeirri alþjóðlegu starfsemi á þessu sviði sem fer mjög ört vaxandi og hefur reynst okkur erfið m.a. af því að ábyrgð í þessum málum hefur verið óljós og mjög dreifð á milli hinna ýmsu ráðuneyta.
    Ég vildi leyfa mér að vona að hér sé farin sæmileg meðalleið sem menn geta sætt sig við í þessum efnum en um leið þá líka tekið á þeim af þeirri festu sem

óhjákvæmilegt er. Hér þarf vitanlega að breyta reglugerð um Stjórnarráð Íslands í framhaldi af samþykkt þessara frumvarpa, ef verður, og sú reglugerðarbreyting er rakin hér. Sömuleiðis er ljóst að þessu fylgir nokkur kostnaður og er það rakið hér í lok síðustu bls. frv. Áætlað er að kostnaður verði samtals um 15 millj. kr. á árinu 1990, þ.e. launaútgjöld og svo önnur gjöld á árinu verði um 11 millj. kr. Nokkur stofnkostnaður verður á þessu ári og er hann líka rakinn hér. Í þessu felst að sjálfsögðu mikill flutningur starfsliðs hjá stofnunum á milli ráðuneyta og því ekki um neina aukningu þar að ræða. Hins vegar er ekki gert ráð fyrir því að starfsmenn einstakra ráðuneyta sjálfra flytjist þarna á milli nema í takmörkuðum mæli, en það verður vitanlega til endurskoðunar í tengslum við lög um Stjórnarráð Íslands.
    Ég vil svo, herra forseti, leggja til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.