Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Aðeins nokkur orð. Það kom fram í fyrra þegar umræður urðu um þetta mál að ég var með miklar efasemdir um það hvort besta leiðin væri að stofna umhverfisráðuneyti. Þetta varð þó að samkomulagi, enda var dr. Bjarni Guðleifsson í þeirri nefnd sem fjallaði um þetta mál og okkar sjónarmið komu fram í þessari nefnd.
Ég vil sérstaklega taka undir þau orð hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands að það sem er átt við í þessum lögum er það að eftirlitsþátturinn sé í höndum ráðuneytis umhverfismála, en að öðru leyti séu þessi mál í höndum landbrn. Okkar stefna var alltaf sú, og ég vona að það verði ofan á, að þetta verði sem mest í höndum byggðanna sjálfra með einhverjum hætti því að nýtingin og verndunin, ef vel á að fara, eiga að fara saman.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með ræðu hv. 12. þm. Reykv. Hún talar um að við höfum ekki lesið Brundtland-skýrsluna. Ég held að hún hafi ekki, því miður, lesið þær umsagnir og þær samþykktir sem hafa verið gerðar um þetta mál. Það eru t.d. búnaðarþing, búnaðarsamböndin. Fólk yfirleitt sem ég hef heyrt í úti á landi vildi alls ekki stíga það skref að þetta færi frá landbrn. og ég vonast til þess að það verði samkomulag hér á þinginu um þá leið sem hæstv. ríkisstjórn hefur farið.
Ég ætla tímans vegna ekki að fara út í þessi mál frekar hér og nú. E.t.v. geri ég það við 2. eða 3. umr. eftir því hvernig mál þróast í nefnd.
En út af ummælum hv. 2. þm. Reykn. áðan langar mig, með leyfi forseta, að lesa hér eina setningu. Hún er úr ræðu hv. þm. Pálma Jónssonar sem þá var framsögumaður fjvn. Þetta er við 3. umr. fjárlaga 1987, og þar stendur m.a.:
,,Orkustofnun. Tekinn verði upp nýr liður, 10 millj. kr., sem tengist sérgreindu verkefni við fiskeldi, einkanlega til að rannsaka náttúrleg skilyrði vatns og upptöku sjávar fyrir fiskeldi, þar á meðal vegna slíkra rannsókna í Öxarfirði.``
Af þessum 10 millj. fór ekki ein einasta króna í Öxarfjörð, heldur annað. Ekki ein einasta. Og hv. 2. þm. Reykn. fer með ruglið úr sjónvarpsstöð 2 um þetta efni án þess að athuga hvað er verið að tala um. Það er heldur ekki styrkur til Silfurstjörnunnar heldur til Seljalax. Það geta menn fengið að sjá í reikningum þessara fyrirtækja. Sem sagt, öll fréttin úr Stöð 2 og endurtekningin hér á þingi er rugl, enda er þessi sjónvarpsstöð þekkt að því að forðast sannleikann eins og heitan eldinn.