Fyrirspyrjandi (Lára V. Júlíusdóttir):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra skýr og greinargóð svör og ég þykist þess fullviss að þessar upplýsingar muni koma sér vel í þeirri vinnu sem fram undan er í þessum málum varðandi þessa samræmingu. Það er ýmislegt í þessum tölum sem vekur athygli, m.a. það hversu illa gengur að fá feður til að taka hluta fæðingarorlofs og einnig það að ekki sé haldið saman upplýsingum um synjun á fæðingarorlofsgreiðslum, en það vekur upp spurningar um það hvernig ástatt er þegar þannig hefur samist milli vinnuveitanda og starfsmanns að vinnuveitandi hyggst bæta starfsmanni það sem upp á vantar greiðslu fæðingarorlofs frá Tryggingastofnun. Ef slíkt á sér stað þá synjar Tryggingastofnun um greiðslu fæðingarorlofs, þ.e. Tryggingastofnun telur það ekki standast lög um fæðingarorlof að vinnuveitandi vilji bæta launamanni það sem á vantar í fæðingarorlofi. Þetta m.a. hefur staðið í vegi fyrir því að aðilar vinnumarkaðar gætu samið um viðbætur á fæðingarorlof í kjarasamningum.
En ég ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðherra.