Fæðingarorlof
Fimmtudaginn 09. nóvember 1989


     Ragnhildur Helgadóttir:
    Frú forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á þessu og hæstv. ráðherra fyrir þær upplýsingar sem hann hefur hér veitt. Það var hins vegar atriði í síðari ræðu hv. fyrirspyrjanda sem varð þess valdandi að ég bað um orðið. Það er sú túlkun Tryggingastofnunar að sú staðreynd að vinnuveitandi ætli að bæta launþega upp það sem á vantar full laun þegar viðkomandi fær greidda út fæðingardagpeninga eigi að valda því að viðkomandi fái ekki fæðingardagpeninga. Ég er ekki sammála um þá túlkun. Ég vil geta þess sem flm. frumvarpa um fæðingarorlof og síðar um fæðingardagpeninga og fæðingarstyrki, frumvarpa sem síðar urðu að lögum, að það var einmitt ein af röksemdunum og forsendunum fyrir því að ákvarðanir voru í lögunum með þeim hætti sem varð að það væri ævinlega frelsi fyrir vinnuveitanda og launþega að semja um það sem á vantaði fullar greiðslur, svo að heildartekjur næmu hinu sama og full laun viðkomandi hefðu verið. Ég tel það vera fyllilega heimilt.
    Fyrstu lögin um þetta sem samþykkt voru á árinu 1975 voru einmitt þannig úr garði gerð að þar voru greiðslur sem í ýmsum tilfellum voru jafnvel lítið eitt hærri en laun launþegans, það gat hugsast í fáum tilfellum þó. Þetta voru upphæðir úr Atvinnuleysistryggingasjóði, ákvarðaðar eftir þeim reglum sem þar giltu. En þá var einmitt ætlunin þegar á vantaði að þessar greiðslur næmu fullum launum, sem auðvitað var oft, að þá væri að sjálfsögðu opin leið að semja um þá upphæð, mismuninn sem á vantaði, við vinnuveitandann. Lögin áttu einmitt að greiða fyrir því að mæðurnar gætu haldið fullum launum þennan tíma því að það var fyrirtækjunum í flestum tilvikum ofviða að greiða alla upphæðina. Þess vegna urðu þessi lög til þess að styðja mjög réttindi kvenna og barna og ég vonast til að sú túlkun eigi eftir að fá framgang, að þetta sé heimilt.