Fyrirspyrjandi (Guðmundur H. Garðarsson):
Virðulegi forseti. Ég er hér með fsp. til utanrrh. um þátttöku Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbandalagsins í byggingu varaflugvallar fyrir alþjóðaflug. Fsp. er svohljóðandi:
,,Hvernig ganga viðræður utanrrh. við Mannvirkjasjóð Atlantshafsbandalagsins um hugsanlega aðild sjóðsins að byggingu fullkomins varaflugvallar fyrir alþjóðaflug yfir Norður-Atlantshafi?``
Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að vera langorður um þessa fsp., hún skýrir sig sjálf, en ég vil aðeins minnast á það að á síðasta þingi var mikið til umræðu í sambandi við byggingu varaflugvallar á Íslandi hvort til greina kæmi að Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins tæki einhvern þátt í byggingu þess flugvallar. Það voru mjög skiptar skoðanir um það hvort svo skyldi vera eða ekki. Í þeim umræðum kom m.a. fram hjá hæstv. utanrrh., ef ég man rétt, að hann teldi ekki nein vandkvæði á því að hann gæti látið fara fram ákveðna forkönnun á því hvort Mannvirkjasjóðurinn gæti ekki komið hér til skjalanna með verulegum fjárframlögum. Þess vegna er fsp. fram komin og ég vænti þess að hæstv. utanrrh. hafi látið framkvæma það.