Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Hér hefur verið rætt um varaflugvöll og það hljóta allir að vera sammála því að við þurfum að hafa varaflugvöll fyrir Íslendinga og fyrir millilandaflug en að blanda því ekki saman við hernaðarmannvirki. Það er greinilegt að ef Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins tekur þátt í uppbyggingu flugvallar hér á landi, þá er það að sjálfsögðu hernaðarmannvirki. Það þarf enginn að velkjast í neinum vafa um það og það er einkennilegt að heyra það að þrátt fyrir alla þíðu í heiminum telji alþingismenn koma til greina frekari hernaðaruppbyggingu hér á landi og að flækja okkur þar með enn fastar í það hernaðarnet sem við erum nú þegar flækt í. Það er ömurlegt að hlusta á þetta hér á þessum tímum.