Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson):
    Virðulegi forseti. Aðeins örstutt athugasemd vegna fyrstu orða hæstv. félmrh. Því víkur svo við að foreldrar sem hafa fengið fullar greiðslur fram til þessa fengu skerðingu í haust og það án þess að nokkuð hafi breyst í sambandi við þjónustu við þá og það var að því sem ég var að ýja í máli mínu.