Samningaviðræður við EB
Fimmtudaginn 09. nóvember 1989


     Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):
    Virðulegur forseti. Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að síðustu mánuði hafa farið fram viðræður milli embættismanna EFTA og EB um þátttöku EFTA-ríkjanna í innri markaði Evrópubandalagsins. Viðræður síðustu mánuði eru undirbúningsviðræður sem miða að því að löndin 18 sem eru í EB og EFTA myndi eitt efnahagssvæði eins og það hefur verið kallað. Í því felst að vörur, þjónusta, fjármagn og vinnuafl geti flust óheft milli þessara 18 landa.
    Það hlýtur öllum að vera ljóst, og ekki síður hæstv. fjmrh. en öðrum, að fara verður að með gát að því er varðar öll þessi atriði. Það er því í samræmi við hve stórt og mikið mál þarna er á ferðinni að hæstv. utanrrh. hefur ítrekað sagt að ekki verði gengið til samninga við Evrópubandalagið í þeim farvegi sem nú er stefnt að innan EFTA nema leitað verði eftir formlegu samþykki Alþingis. Ég er hæstv. utanrrh. alveg sammála. Auðvitað verður að leita eftir formlegu samþykki Alþingis þegar um slíkt mál er að ræða sem getur haft afdrifaríkar afleiðingar um ókomna framtíð. Það er ekki síst í ljósi þessa sem ég undrast þá staðhæfingu á bls. 276 í grg. með fjárlagafrv. þar sem segir, með leyfi forseta:
    ,,Ljóst er að á næsta ári munu hefjast umfangsmiklar samningaviðræður við Evrópubandalagið ...``
    Getur verið að ríkisstjórnin ætli að hundsa Alþingi í þessu máli? Hefur hún e.t.v. þegar tekið afstöðu til samningaviðræðna eða er það bara hæstv. fjmrh. sem hefur tekið ákvörðun fyrir sitt leyti um að ganga til samninga við EB áður en lokið er könnunarviðræðum embættismanna sem lauk í síðasta mánuði? En fjárlagafrv. kom fram áður en þessum umræðum var lokið eins og kunnugt er. Hann virðist því vera kappsmeiri en hæstv. utanrrh. að fylgja EFTA-sporinu inn í innri markaðinn eða evrópskt efnahagssvæði eins og það er kallað. Þess vegna hef ég borið fram þá fsp. sem er á þskj. 70 til hæstv. fjmrh. og hljóðar svo:
    ,,Hvað liggur að baki staðhæfingar í grg. með fjárlagafrv. (bls. 276) varðandi utanrrn. þar sem segir: ,,Ljóst er að á næsta ári munu hefjast umfangsmiklar samningaviðræður við Evrópubandalagið ...``?
    Hefur ríkisstjórnin þegar tekið afstöðu til samningaviðræðna við EB?``