Fyrirspyrjandi (Kristín Einarsdóttir):
Virðulegur forseti. Ég vil þakka ráðherra svör hans þó að mér sé ekki ljóst af þeim hvort ríkisstjórnin er þegar búin að taka afstöðu í þessu máli eða hvað hann hefur nákvæmlega í huga með þessum svörum. Ég ætla nú samt að láta þau nægja þrátt fyrir það. Ég átta mig ekki almennilega á þessum setningum þarna í fjárlagafrv. vegna þess að ráðherra hlýtur að vera ljóst að við höfum haft mikil samskipti við Evrópubandalagið. Eins og hann nefndi þá er stærsti hluti okkar útflutnings inn á þetta svæði. Og við höfum gert samninga, tvíhliða samninga við Evrópubandalagið t.d. árið 1972. Á grundvelli Lúxemborgaryfirlýsingarinnar 1984 höfum við líka haft mikil samskipti við lönd EB og í gangi eru ein 20 samstarfsverkefni milli Íslands og EB á mörgum sviðum, ekki eingöngu viðskipta, heldur líka menningar og vísinda og fleiri sviðum. Það eru því engin ný sannindi að við erum í samningaviðræðum og í samskiptum við EB. Það hlýtur að hafa verið gert ráð fyrir því fyrr í fjárlögum fyrir utanrrn. að við hefðum samskipti við þessar þjóðir.
Það sem kom mér á óvart í máli ráðherrans var að hann skyldi telja að það væri hægt að fara eitthvert sambland af öllum þeim þrem leiðum sem hann nefndi hér. Ég tel nánast útilokað að hægt sé að fara í samningaviðræður með EFTA-ríkjunum, síðan líka í tvíhliða viðræður og loks í viðræður við einstök ríki. Það hlýtur að vera ljóst að varðandi þennan innri markað er um að ræða viðræður við Evrópubandalagið í heild en ekki við einstaka ráðherra í einstökum ríkisstjórnum. Þó að ég sé ekki að gera lítið úr því í sjálfu sér, þá er það samt heildin, Evrópubandalagið, sem þarna ræður ferðinni. Ég tel það mjög óráðlegt að fara út í þær samningaviðræður, sem mér sýnist því miður samningamaður ríkisstjórnarinnar, hæstv. utanrrh., stefna beint í, þ.e. að EFTA-ríkin semji saman við EB. Ef við förum þá leið hlýtur að felast í skoðun hæstv. fjmrh. að við eigum að fara þessa leið ásamt öðrum, sem ég skil nú ekki hvernig er hægt. Ef farin yrði fyrsta leiðin sem hann nefndi, að fara EFTA-leiðina sem verið er að undirbúa núna, þá verður búið að binda okkur það mikið að það verður ekki aftur snúið. Við verðum búin að taka það mikið á okkur að það verður ekki hægt. Hingað til hefur því verið haldið fram að tvíhliða viðræður við Evrópubandalagið komi ekki til greina. Ég vil í því sambandi benda á að í ræðu Delors frá 26. sept. kemur fram að hann telur að EFTA-ríkin hafi um tvo möguleika að velja, annars vegar að mynda sameinaða blokk og semja við Evrópubandalagið, en þá þurfi þau að hafa yfirþjóðlegar stofnanir og skipuleggja sig betur, eða, ef þau kjósa svo sjálf, að fara í tvíhliða viðræður. Það er þeirra eigin val og þá leið held ég að við ættum að velja.