Björgunarþyrla
Fimmtudaginn 09. nóvember 1989


     Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir:
    Virðulegi forseti. Á árinu 1988 hófst fiskverkunarkona á Vestfjörðum, frú Kristjana Vagnsdóttir á Þingeyri, handa um að sameina konur í að hefja undirskriftasöfnun til styrktar björgunarþyrlu. Yfirskriftin var eins á öllum listunum og vil ég lesa hann, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Við undirritaðar erum allar sjómannskonur og unnustur sjómanna, mæður, dætur, systur eða á annan hátt nákomnar sjómönnum. Við skorum á ríkisstjórn, okkar þingmenn eða þá sem fjármálin fara í okkar landi að sjá um að keypt verði björgunarþyrla með afísunarútbúnaði sem tekið getur a.m.k. 25 manns auk áhafnar þyrlunnar sjálfrar og verði ekki beðið með það heldur gert sem allra fyrst.``
    Þessi listi fór á alla landshluta og eftir því sem við fórum í gegnum listann þá taldist okkur til að þarna mundu vera nálægt 3000 nöfn eða hátt á þriðja þúsund. Það skal tekið fram að listarnir lágu frammi á bensínstöðvum og svona hingað og þangað. En fyrir þeim var enginn verulegur áróður. Kristjönu voru sendir listarnir og hún sendi þá aftur til mín og í vörslu okkar Inga Björns, hv. 5. þm. Vesturl., eru þeir, og ætlum við að sameina þá og koma þeim í vörslu Alþingis. Ég vil aðeins taka það fram að það væri yfirleitt ekki hátt risið á slysavörnum á Íslandi ef konur, og þá kannski fyrst og fremst þær sem næst standa sjómönnunum, hefðu ekki lagt sín mörk á vogarskálina. Og þær eiga þann fyllsta rétt á því að eftir þeim sé tekið.