Fjáraukalög 1989
Fimmtudaginn 09. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en umræða hefst vil ég skýra frá því að forseti hélt fund með þingflokksformönnum sl. mánudag og þar varð að samkomulagi að reynt yrði eins og hægt væri að koma fjáraukalögum til nefndar á þessum degi, þrátt fyrir þann yfirlýsta vilja að fimmtudagsfundir séu ekki eins langir og mánudagsfundirnir, en það var litið til þess með velvilja af hálfu þingflokksformanna að umræða hér yrði nokkuð lengri ef þess gerist þörf í dag.