Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 13. nóv. 1989:

    ,,Halldór Blöndal, varaformaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Ólafur G. Einarsson er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Ellert J. Eiríksson sveitarstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Ellert J. Eiríksson sveitarstjóri hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.

    Þá hefur einnig borist svohljóðandi bréf, dags. 13. nóv. 1989:

    ,,Steingrímur Hermannsson forsrh. hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Níels Árni Lund, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Árni Gunnarsson,

forseti Nd.``


    Níels Árni Lund hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.

    Þá hefur þriðja bréfið borist, dags. 13. nóv. 1989:

    ,,Eiður Guðnason, 3. þm. Vesturl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Sveinn G. Hálfdánarson innheimtustjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Jón Helgason,

forseti Ed.``


    Sveinn G. Hálfdánarson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.