Innheimta söluskatts af tryggingaiðgjöldum
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Eins og þingflokksformönnum hefur þegar verið tilkynnt fara hér fram tvær umræður utan dagskrár. Báðar taka þær hálftíma og fara fram skv. fyrri lið 32. gr. þingskapalaga og skulu því ekki standa lengur en hálftíma.
    Sú fyrri fer fram að ósk hv. 8. þm. Reykn. og fjallar um innheimtu söluskatts af tryggingariðgjöldum.