Frestun virðisaukaskatts
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegi forseti. Ályktun flokksstjórnar Alþfl. gefur ekkert tilefni til þeirra ályktana sem hv. málshefjandi dró af henni hér áðan. Hún gefur ekki tilefni til ályktana um innri styrk núv. ríkisstjórnar, né klofning í röðum hennar, né heldur lýsir hún vantrausti á störf hæstv. fjmrh.
    Ég vil af þessu tilefni taka eftirfarandi skýrt fram:
    Í fyrsta lagi. Það er enginn ágreiningur um nauðsyn virðisaukaskatts, hvorki í röðum Alþfl., né í röðum stjórnarflokkanna, né eftir því sem ég best veit í röðum þingheims. Ég held að um það sé ekki ágreiningur. Síst af öllu í Alþfl., sem reyndar hafði á hendi verkstjórn þegar núgildandi lög um það mál voru sett.
    Í annan stað. Ályktunin sem gerð var á flokksstjórnarfundinum gefur ekkert tilefni til þess að efna til eldhúsdags eða lýsa yfir vantrausti á störf fjmrh. Það er rétt sem hv. málshefjandi sagði, á þessari stundu hafa ekki verið teknar endanlegar ákvarðanir um ýmis álitamál sem lengi hafa verið til umfjöllunar, m.a. í þingnefndum og nú í þingnefnd sem fulltrúar allra þingflokka eiga sæti í. Ég t.d. hef ekki ástæðu til að ætla annað en það verði unnt að ná sæmilega farsælum málalyktum í því máli út af fyrir sig.
    Spurningin er hins vegar um mat manna á því hvort ástæða sé til að fresta gildistöku virðisaukaskattsins um sex mánuði, fyrst og fremst af eftirfarandi ástæðum:
    Virðisaukaskattslög eru mjög mikil kerfisbreyting. Þau fela í sér að nú verða skattskyldir, skv. virðisaukaskattslögum, mörg þúsund nýir aðilar sem ber að standa skil á þeim skatti og hafa ekki gert það áður. Margir þessara aðila eru mjög smáar rekstrareiningar, smá fyrirtæki. Þau þurfa mjög á því að halda að njóta ráðgjafar á fyrsta ári þegar verið er að framkvæma skattkerfisbreytinguna. Þess vegna var það að þegar við fluttum frv. og lögin voru fyrst sett þá var miðað við gildistöku á miðju ári, m.a. vegna þess að allir ráðgjafar sérfróðir, endurskoðendur og fleiri sem þarna munu um véla, eru mjög í önnum vegna uppgjörstímabils um áramót, en hefðu betri aðstöðu til að sinna þessu verki um mitt ár. Að sjálfsögðu skil ég ákaflega vel að hæstv. fjmrh. sé það metnaðarmál að standa við núverandi áætlun sem fyrir liggur. Ég hef hins vegar enga ástæðu til að ætla annað en að honum hljóti líka að vera það metnaðarmál að við náum með farsælum hætti þeim árangri sem við stefnum að, m.a. að tryggja verðlækkunaráhrif virðisaukaskatts, sem eiga að verða í ýmsum greinum, og jafnframt að tryggja framkvæmdina með þeim hætti að skattskil verði vandræðalaus. Ef nánari skoðun þess máls leiddi sameiginlega til þeirrar niðurstöðu að þetta væri unnt að gera og þar með framkvæmdin betur tryggð, þá held ég að það væri út af fyrir sig fagnaðarefni. Ef hins vegar er unnt að sýna fram á það að stjórnarflokkarnir, fjmrn. og okkar

skattframkvæmdakerfi, slíkt sem það er, geti svo sannanlegt sé tryggt þá fræðslu- og upplýsingastarfsemi sem við erum hér að tala um, nú þá er það auðvitað til bóta.
    Ég lýk máli mínu, virðulegur forseti, með því að segja: Þetta mál verður að sjálfsögðu ekki útkljáð í tveggja mínútna umræðum utan dagskrár á Alþingi. Þetta er verkefni sem verður tekið upp til viðræðu og umfjöllunar á milli stjórnarflokkanna og fulltrúa þingflokkanna.