Frestun virðisaukaskatts
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Hæstv. forseti. Hv. málshefjandi spurði um álit viðstaddra ráðherra á þessari fsp. hans um það hvort menn teldu að framkvæmd virðisaukaskattsins mundi ganga eftir eins og lög kveða á um. Það er auðvitað ljóst að það er margt sem fylgir því að gera svo róttæka kerfisbreytingu á skattamálum og skattalögum og ýmis vandamál eða viðfangsefni sem þarf að leysa og er nú verið að vinna við. Svipaðar efasemdir voru uppi þegar staðgreiðslukerfi skatta var komið á. Þá höfðu menn líka uppi efasemdir um að það tækist að framkvæma það eins og til var stofnað og áskilið var. Mál þetta er auðvitað í verkahring fjmrh. og fjmrn. og starfsmanna þess sem nú vinna að þessu af fullum krafti þessa dagana eins og vera ber og við treystum því auðvitað að sú framkvæmd verði eins og lög kveða á um, eins og við höfum unnið að, þetta takist að gera á tilsettum tíma.
    Þess vegna er það, ég vil láta það koma alveg ljóst fram, mín skoðun og okkar framsóknarmanna að það beri að vinna að þessu áfram af fullum krafti og að okkur takist að taka upp virðisaukaskattskerfið um áramót og koma því á. Um efasemdir hv. málshefjanda um það að um það náist samstarf í ríkisstjórninni vil ég segja að auðvitað mun okkur takast að ná þessu fram og við komum okkur saman um það hvernig að þessum atriðum, sem enn er ekki búið að taka endanlega ákvörðun um, verður staðið. Það verður gert þessa dagana og við munum vinna að þessu áfram eins og fjmrh. og hans menn eru að vinna að nú.