Alexander Stefánsson:
Virðulegi forseti. Þegar lögin um virðisaukaskatt voru hér til afgreiðslu á Alþingi gerði ég grein fyrir atkvæði mínu þannig:
,,Ég er fylgjandi því að taka upp virðisaukaskatt í stað núverandi söluskatts. Það er ljóst að virðisaukaskattskerfið verður því aðeins skilvirkt að undanþágur séu sem fæstar. Með því er hægt að hafa skattprósentuna lægri, jafnvel lægra gjald á matvörur.
Í meðferð Alþingis kemur í ljós að ótal mikilvæg atriði í frv. eru ekki frágengin. Jafnframt er búið að setja í frv. fjölmargar undanþágur á aðila sem síst skyldi og vinnur það augljóslega gegn skattinum. Ég tel að skynsamlegast sé að fresta afgreiðslu málsins til næsta þings, skipa milliþinganefnd til að kanna betur hin fjölmörgu vafa- og ágreiningsefni. Að samþykkja frv. með öllum þessum vafaatriðum ófrágengnum tel ég rangt. Ég get því ekki samþykkt þessa málsmeðferð og greiði ekki atkvæði.``
Milliþinganefnd var skipuð. En þessi milliþinganefnd Alþingis hefur alls ekki unnið verkið eins og til stóð. Það sýnir umfjöllun nú síðustu vikurnar. Við framsóknarmenn höfum sett ákveðna kröfu fram til ríkisstjórnarinnar og krafan er sú að það verði tvö stig í virðisaukaskatti, lægra verð á matvælum og þannig verði unnt að fullnægja þeirri kröfu landsmanna að draga úr matarskattinum eins óvinsæll og vitlaus og hann er. Ég tel að ef þetta tekst í ríkisstjórninni þá sé nægur tími til áramóta til að ganga frá þessu máli. En það verður bara að taka ákvörðun um það hvernig á að standa að þessu. Það er það sem vantar og við treystum því að ríkisstjórnin, meðan við ekki vitum annað, standi við það að skera úr um það hvort gengið verður að þessum kröfum eða ekki. Ef það verður er engin þörf á því að fresta gildistöku skattsins. ( Gripið fram í: En ef það verður ekki?) Ef það verður ekki, þá horfir málið öðruvísi við. Að sjálfsögðu.