Eyjólfur Konráð Jónsson (um þingsköp) :
Virðulegur forseti. Hér kom fram áðan ákveðin fyrirspurn til hæstv. fjmrh. af hálfu eins aðalstuðningsmanns og tryggasta þessarar ríkisstjórnar, hv. þm. Stefáns Valgeirssonar. Mér finnst það ekki við hæfi að ráðherrann svari ekki þeirri fyrirspurn og mér finnst eðlilegt að gefa honum --- og ég veit að allur þingheimur mun fallast á það að hann fái aukatíma til að svara þessum stuðningsmanni sínum og þarf ég varla að rekja hver fyrirspurn hans var. Hún var um það hvort það hefði ekki verið ákveðið að hækka skattprósentu virðisauka í 26% þar sem ættu að vera tvö skattstig og annað ætti þá að vera lægra, fá þá að vita hvert það lægra skattstig er sem fyrirhugað er eða hvort þetta sé einhver misskilningur af hálfu hv. þm. Stefáns Valgeirssonar, sem ég trúi nú ekki að sé.