Frestun virðisaukaskatts
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Ég þakka fyrir. Mér vannst ekki tími til að svara því hér áðan. Það er auðvitað alveg ljóst og hefur komið fram opinberlega að innan hv. ríkisstjórnar, á milli þingflokka ríkisstjórnarinnar hefur verið gert samkomulag um það að þegar virðisaukaskatturinn verður tekinn upp þá verður reiknaður 13% virðisaukaskattur á framleiðslustiginu, á kjöt, mjólk, innlent grænmeti og fisk, þannig að það verður annars vegar 26% almennt stig og síðan reiknað 13% stig á framleiðslustiginu á þessar vörur.