Flm. (Árni Johnsen):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um forkönnun á gerð jarðganga milli lands og Eyja, nánar tiltekið milli Vestmannaeyja og Landeyja eða Eyjafjalla. Í tillgr. er lagt til að ríkisstjórnin láti gera forkönnun á gerð tveggja akreina jarðganga milli Vestmannaeyja og lands og að kannaðir verði tæknilegir möguleikar á hagkvæmni og fjárhagslegri arðsemi með tilliti til fólks- og vöruflutninga.
Hér er um að ræða mannvirki sem mundi hafa mikil áhrif á atvinnustöðu Vestmannaeyja og nærliggjandi byggða á Suðurlandi.
Vestmannaeyjar hafa frá alda öðli má segja verið afkastamikil verstöð og alveg frá síðustu aldamótum ein stærsta verstöð landsins með miklum tilþrifum í útgerð og atvinnulífi. Umfangsmiklir flutningar hafa átt sér stað um langt árabil milli lands og Eyja, bæði fólksflutningar og vöruflutningar, og á síðustu árum lætur nærri að um 120 þúsund farþegar ferðist árlega milli lands og Eyja með flugvélum og skipum en íbúar Vestmannaeyja eru um 5000 talsins. Hér áréttast því enn einu sinni hve gerð jarðganga milli lands og Eyja mundi skipta miklu máli atvinnulega.
Nú stendur yfir um þessar mundir forkönnun á gerð jarðganga undir utanverðan Hvalfjörð og þar fæst væntanlega reynsla sem má nýta við önnur neðansjávargöng á Íslandi. Þar er bæði litið til ganga í bergi og stokks eða pípu á botni. Kostnaður við Hvalfjarðargöng er áætlaður um 3 milljarðar kr. við fimm km berggöng og svipað fyrir tveggja km stokk og fyllingar yfir fjörðinn frá báðum ströndum. Sjávardýpi á áætluðu gangasvæði í Hvalfirði er mest 40 m, en dýpi á fast berg er mest um 100 m og dýpi á göng yrði þá mest 130--140 m eða 30--40 m neðar en botn fastabergsins er, hið efra lag.
Milli lands og Eyja eru hins vegar 10 km, helmingi lengri vegalengd en yfir Hvalfjörðinn og það má auðveldlega miða við ákveðna vegalengd sem allir þekkja. Hringbrautin og Miklabrautin, það er vegalengdin sem er milli lands og Eyja. Ímynd fjarlægðarinnar er ugglaust miklu meiri, en þetta er í rauninni örstutt. Það er mest sjávardýpi á milli lands og Eyja í svokölluðum Ál, 90 m, en að öllu jöfnu er 30--50 m dýpi á þessu svæði. Göng í bergi þyrftu að sjálfsögðu að vera eitthvað lengri en 10 km, einkum þar sem djúpt er á berg í landi, á fastalandinu, en grjótvarðar fyllingar út frá Landeyjum og Eyjum mundu hins vegar stytta stokk eða pípu á botninum að miklum mun. Berggöng yrðu þó væntanlega að mestu í móbergi eins og við sumar virkjanir hér á landi.
Erlendis hefur undanfarin ár fengist mikil reynsla og framfarir orðið við gerð neðansjávarganga. Menn þekkja hugmyndir um gerð ganga yfir Ermarsund og á allra síðustu árum hefur tækninni fleygt svo fram að sú smíði er nú möguleg og í vinnslu. En þarna kemur fyrst til mikill mismunur á berglögum. Það eru kalksteinslög sem göng undir Ermarsund urðu að fara í gegnum og þau eru mjög óstöðug og voru til skamms tíma ótraustvekjandi í gerð slíkra ganga. En
nú hefur tæknin gert þetta mögulegt og með ólíkindum má segja hve miklar framfarir hafa orðið í gerð jarðganga í heiminum á síðustu árum. Japanar eru þar e.t.v. fremstir í flokki, en þeir búa að mörgu leyti við svipaðar jarðfræðilegar aðstæður og Íslendingar, þ.e. virk eldfjöll og lifandi náttúru. Nýlega luku Japanar við gerð lengstu jarðganga í heimi, Seikan-göngin milli eyjanna Hokkaido og Honshu, en þau eru alls um 54 km að lengd og þar af eru 24 km undir hafsbotni.
Ég minntist á Ermarsundsgöngin sem nú eru vel á veg komin og Stórabeltisgöngin eru í undirbúningi. Norðmenn frændur okkar standa mjög framarlega í þessum framkvæmdum. Þar í landi eru fullgerð eða í byggingu a.m.k. átta neðansjávargöng fyrir bílaumferð, alls um 25 km. Þau dýpstu fara allt að 155 m undir sjávarmál, en af göngum sem eru á skoðunar- eða undirbúningsstigi í Noregi, alls yfir 100 km löng, fara þau dýpstu allt að 630 m undir sjávarmál. Norðmenn hafa einnig gert töluverðar rannsóknir og hönnun á flotgöngum, þ.e. pípu sem er í kafi en er stöguð við hafsbotninn með ákveðnum festingum af stærri gráðu en við höfum hingað til þekkt miðað við að við notum orðið stag.
Það er ástæða til að skoða þetta mál í fullri alvöru og merkilegt í raun og veru að það kostar í sjálfu sér ekki ýkja mikið að skoða svo umtalsvert mannvirki sem hér um ræðir.
Forkönnun á gerð tveggja akreina jarðganga milli lands og Eyja er æskilegt að gera í tveimur áföngum:
1. Tekin yrðu saman öll tiltæk gögn um jarðfræði svæðisins, en þau eru þegar til töluverð og sum mjög ný, og tæknilegar lausnir kannaðar út frá þeim upplýsingum. Þá yrði safnað upplýsingum erlendis frá um verkefni af svipuðum toga og gerð spá um fólks- og vöruflutninga milli lands og Eyja. Kostnaður yrði metinn miðað við erlenda reynslu og innlenda og hagkvæmni könnuð miðað við hugsanlega umferð um göngin. Í skýrslu um þennan áfanga kæmu einnig tillögur um framhaldsrannsóknir. Áætlaður kostnaður við þessa vinnu er um ein millj. kr.
2. Æskilegt yrði að í öðrum áfanga yrðu gerðar rannsóknir á botni og aðstæðum í Eyjum og í landi. Gera yrði skýrslu um hagkvæmustu tillögu og tæknilega lausn og um staðsetningu. Þá yrði kostnaðaráætlun endurmetin með tilliti til aukinna upplýsinga. Áætlaður kostnaður við þennan þátt er 5 millj. kr.
Mun umfangsmeiri og dýrari rannsóknir þyrfti síðan að gera til undirbúnings framkvæmda. Til greina kemur að fela ákveðnum aðila gerð og rekstur jarðganga af stærðargráðu sem um er að ræða milli lands og Eyja.
Þá er vert að minnast á að fjöldi ferðamanna hefur farið vaxandi til Vestmannaeyja, mjög vaxandi á undanförnum árum, en samgöngur eru þó að mörgu leyti erfiðar vegna veðurfars, bæði með tilliti til flugferða og sjóferða. Þó eru um 120 þús. manns sem árlega fara milli lands og Eyja undanfarin ár. Jarðgöng milli Vestmannaeyja og fastalandsins mundu
valda byltingu í samgöngum og atvinnulífi við þennan mikla athafna- og ferðamannabæ því þarna mundi í rauninni opnast nýtt atvinnusvæði. Það yrði þá ekki nema 5--10 mínútna akstur milli lands og Eyja ef slík göng yrðu að veruleika.
Það er margt sem mundi verða hagkvæmt við gerð slíkra ganga sem má nefna, svo sem að þar væri hægt að leggja lagnir fyrir rafmagn, vatn, síma og annað sem er mjög dýrt með því fyrirkomulagi sem nú er og er mjög dýrt að endurnýja. Einn rafstrengur í lögn milli lands og Eyja kostar nærri 200 millj. í dag.
Ef slíkt mannvirki gæti verið traustvekjandi og niðurstöður sýndu að það væri fýsilegt, þá koma inn í þættir eins og að það væri minni þörf fyrir skip milli lands og Eyja, en þetta er auðvitað mál sem þarf að skoða inn í framtíðina og dregur ekki úr mikilvægi þess að nú þegar verði hafist handa við smíði á nýjum Herjólfi sem brýn nauðsyn ber til, bæði af öryggisástæðum og öðrum ástæðum.
Það er tímabært að opna þennan möguleika til skoðunar. Það þarf að vanda mjög vel til hans. Það kostar um eina milljón að gera forkönnunina, 5 millj. þá könnun sem mundi hugsanlega fylgja í kjölfarið og er ekki eftir neinu að bíða með að taka af skarið í þessum efnum.
Ég legg til að að lokinni fyrri umr. verði málinu vísað til atvmn. Sþ.