Flm. (Árni Johnsen):
Hæstv. forseti. Þessi till. til þál. um hitalögn í Suðurlandsveg í Hveradalabrekku miðar að því að kannaður verði kostnaður og hagkvæmni við slíka hitalögn. Í skemmstu máli er þarna um að ræða svæði sem er nokkuð hættulegt í umferð. Það er mest slysatíðni á leiðinni austur fyrir fjall á þessu svæði, mun meiri en t.d. í Kömbum. Það er nægur jarðhiti á þessu svæði og t.d. er hann nýttur af þeim sem reka Skíðaskálann í Hveradölum. Virðist við fyrstu sýn mjög auðvelt að komast inn í mikinn hita og slík hitalögn er ekki neitt nýtt hér á landi. Reykjavíkurborg hefur t.d. lagt slíkar lagnir í erfiðustu brekkur í Breiðholtshverfi og það hefur gefist mjög vel. Brekkur sem voru ófærar marga vetrardaga hafa síðan þessi lögn var lögð í þær verið eins og vegir um sumardag. Sjálfur bý ég við eina slíka götu og þekki því vel hvað þetta þýðir. Það er þó allmikill munur á snjóþyngslum í 100 m hæð í Breiðholti eða uppi á Hellisheiði. Það þarf 50--60 gráðu hita til þess að halda vegum auðum og ef hagkvæmt er að gera þetta að könnuðu máli, þá er það nokkuð fýsilegur kostur.
Ég legg til að þessi till. fari til allshn. Sþ. að lokinni fyrri umr.