Skráningarkerfi bifreiða
Mánudaginn 13. nóvember 1989


     Ásgeir Hannes Eiríksson:
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka V 344 og F 136, ef ég man rétt, og sérstaklega V 344, fyrir að hafa vakið athygli á þessu máli.
    Ég get sagt eins og hv. flm. að þetta er kannski ekki stórmál í hugum margra, en þetta er í mínum huga eins og steinn í skó. Þetta er búið að pirra mig frá því þessi breyting varð. Ég er þess heils hugar fylgjandi í rauninni að gamla númerakerfið verði tekið upp aftur, að það verði liður í því að leggja niður Bifreiðaskoðun Íslands eins og hún er í dag. En það er nú önnur saga. Ég tel að það sé mikið atriði að við sem erum sama sinnis hér í þinginu komum okkur saman um einhverja þá eina lausn sem hefur hér meirihlutafylgi þannig að hægt sé að breyta þessu áður en lengra er haldið á þeirri braut sem við erum komnir á.