Sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum
Þriðjudaginn 14. nóvember 1989


     Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson):
    Herra forseti. Í tilefni orða hv. 4. þm. Vesturl. langar mig að bæta við nokkrum orðum og kannski meira frá mínu eigin brjósti um það sem ég tel ábótavant í framkvæmdinni.
    Ég er sammála hv. 4. þm. Vesturl. um að það skref sem stigið var með því að koma á fót sérstökum sakadómi í ávana- og fíkniefnamálum hafi ekki verið rétt skref. Það er skoðun lögmanna og dómara, svo mikið sem ég hef heyrt, að sérdómstólar séu mjög óæskilegt fyrirbrigði í dómskerfinu. Því er sú breyting eða skipan sem komið hefur verið á með lögum um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds mjög tímabær. Ég minntist einmitt á það hér á síðasta þingi, þegar það frv. var til afgreiðslu, að þarna væri verið að taka á mjög stóru vandamáli. Einmitt því að þarna er verið að koma skipan dómsvalds í mjög gott horf með því að fella sakadóm í ávana- og fíkniefnamálum undir hið almenna kerfi um sakadóm.
    En það sem var nú aðallega tilefni þess að ég kom hér upp aftur var að það er rétt sem fram kemur hjá hv. 4. þm. Vesturl., að hér er eiginlega verið að breyta lögum vegna tilviks sem er að koma upp. Það er mjög óæskilegt að Alþingi taki á málum bara eins og þau koma fyrir, en samt er hér um slíkt mál að ræða að nauðsyn krefur, til þess að þeir aðilar sem þarna eiga hlut að máli geti fengið eðlilega og réttláta meðferð, að dómurinn skuli skipaður þremur mönnum. Þar sem um það er samkomulag hjá öllum aðilum málsins, ekki aðeins dómaranum sem slíkum heldur öllum öðrum málsaðilum, að svo skuli vera þá væri mjög óeðlilegt að við stæðum í vegi fyrir því. Og það kom fram hjá framkvæmdastjóra Lögmannafélagsins að það væri mjög eðlileg skipan að þrír aðilar sætu dóminn í svo umfangsmiklu máli sem hér er verið að ræða um.
    Eitt er það sem ég vildi þó bæta við. Þó svo að aðilar sem fyrir nefndina komu hafi ekki verið á eitt sáttir um ágæti lagafrv. sem slíks þá féllust þeir allir á þá niðurstöðu sem varð sú endanlega og brtt. er flutt um og einnig var einhugur í nefndinni um þá afgreiðslu.