Hollustuhættir og heilbrigðiseftirlit
Þriðjudaginn 14. nóvember 1989


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Það hlýtur að vekja athygli þegar einn af hv. þm. hæstv. ríkisstjórnar lýsir því jafnafdráttarlaust yfir að hann sé á móti stjfrv. eins og hv. 2. þm. Vestf. hefur gert þegar hann mótmælir framlögðu frv. hæstv. heilbrrh. sem er ráðherra sem kemur úr sama þingflokki og hv. þm. Orðalag sem hv. þm. notaði í sinni ræðu var líka nokkuð sérkennilegt og ábúðarmikið, enda var hv. þm. mikið niðri fyrir, og það er sjálfsagt ekki oft sem hv. þm. verða vitni að því að einn úr þeirra hópi kalli embættismenn hrokagikki og hrokafulla embættismenn, lýsi hæstv. ráðherrum sem halaklipptum hundum sem séu á flótta og að hér sé á ferðinni frv. sem jafnvel yrði ekki boðlegt á þjóðþingum þar sem þau eru fyrir í svörtustu Afríku. Hugsanlegt sé þó, eins og hv. þm. sagði, að slíkt frv. gæti komið fram í einhverju af Suður-Ameríkuríkjunum.
    Þetta frv. snýst um það hvort Hollustuvernd ríkisins eigi að fá sömu úrræði og heilbrigðisnefndir hafa sem vinna á vegum sveitarstjórna, eins og hæstv. ráðherra lýsti. Ég tek undir það með hv. þm. að það hlýtur ávallt að vera álitamál þegar framkvæmdarvaldið fær jafnmikið úrskurðarvald í hendurnar eins og gerist ef þetta frv. verður samþykkt.
    Við sjálfstæðismenn munum að sjálfsögðu skoða þetta mál vandlega í nefnd. Við höfum ekki fyrir fram ákveðna skoðun á þessu, við viljum kanna það og höfum hlustað á hv. þm. og rök hans. En aðalástæðan fyrir því að ég kem hér upp í ræðustól er þó sú að mig langar til að spyrja að því og spyr þá hæstv. ráðherra: Er það algengt að stjfrv. séu lögð fram með þeim hætti að það megi búast við að hv. þm. stjórnarinnar komi upp og mótmæli frv. jafnkröftuglega og hér hefur verið gert? Hefur þetta frv. verið borið upp í öðrum stjórnarflokkum og hefur hæstv. ráðherra kynnt sér það til hlítar að fullur stuðningur sé við þetta frv. í stjórnarherbúðunum? Ástæðan fyrir þessari spurningu er augljós: Hv. þm. hefur mótmælt mjög kröftuglega og segir að nái þetta frv. fram að ganga sé verið að troða á mannréttindum, eðlilegum mannréttindum. Mér finnst að hæstv. ráðherra þurfi að gera grein fyrir því hvernig mál eru unnin hjá hæstv. ríkisstjórn því það er auðvitað spurning hvenær stjfrv. svokölluð eru stjfrv. í eiginlegri merkingu. Ég óska þess vegna eftir því að hæstv. ráðherra geri grein fyrir sínum sjónarmiðum og svari auðvitað þeim ásökunum sem komu fram hjá hv. þm., þó að ég búist nú ekki við því að hæstv. ráðherra geti afsannað það að hæstv. ráðherrar séu halaklipptir hundar. Það er dálítið erfitt að afsanna það. Ég skal viðurkenna það. En það er þó full ástæða vegna orða hv. þm. að hæstv. ráðherra geri frekari grein fyrir sínu máli.
    Að lokum vil ég ítreka að þetta mál verður auðvitað kannað af hálfu Sjálfstfl. og fulltrúa hans í heilbr.- og trn. Við höfum hlustað rækilega á það sem hv. þm. hefur haft fram að færa en væntum þess að hæstv. ráðherra gefi frekari skýringar á því hvernig

undirbúningi málsins var háttað.