Lyfjafræðslunefnd
Þriðjudaginn 14. nóvember 1989


     Flm. (Árni Johnsen):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um lyfjafræðslunefnd. Markmið þessara laga er að skipuleggja og vinna að lyfjafræðslu til þess að draga úr því heilsutjóni sem misnotkun og ofnotkun lyfja veldur. Það er lagt til í frv. í 2. gr. að heilbr.- og trmrh. skipi þriggja manna nefnd, lyfjafræðslunefnd, til fjögurra ára í senn, og að í nefndinni eigi sæti menn með þekkingu á vandamálum sem stafa af ofnotkun lyfja.
    Hlutverk þessarar nefndar á að vera að gera tillögur til stjórnvalda um ráðstafanir til að sporna við ofnotkun og misnotkun lyfja, að vinna í nánu samstarfi við landlæknisembættið og Lyfjaeftirlit ríkisins, að veita alhliða leiðbeiningar varðandi lyf, m.a. með útgáfu fræðslurita og annarra fræðslugagna, að dreifa upplýsingum um skaðsemi misnotkunar og ofnotkunar lyfja, að gera tillögur til heilbr.- og trmrh. umn ráðstöfun fjár skv. 3. gr., en þar segir að greiða skuli 1% gjald af cif-verði innfluttra lyfja og 0,8% gjald af heildsöluverði ákveðins stofns innlendrar lyfjaframleiðslu samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.
    Þessi ákvæði eru sett til þess að tryggja fjármagn til þessa lyfjafræðslustarfs, og miðað við innflutning á t.d. árinu 1987 hefði þarna verið um tæplega 10 millj. kr. að ræða til forvarnastarfs og fræðslustarfs um lyfjamisnotkun sem er sívaxandi vandamál, ekki bara í hinum stóra heimi í kringum okkar, heldur einnig í okkar landi. Það er ótrúlega dýrt vandamál og sársaukafullt þegar ótalinn fjöldi ungs fólks sem eldra verður háð ofnotkun lyfja. Þarna er því verkefni sem verður að sporna við ef við ætlum ekki að láta það vaxa okkur yfir höfuð. Benda má á að ýmsar vestrænar þjóðir hafa tekið mjög markvisst á í þessum efnum með því að tryggja fjármagn til þess að berjast gegn því vandamáli sem ofnotkun lyfja er.
    Þetta er tiltölulega einföld aðferð. Hún hefur sýnt sig að vera skilvirk hér á landi með þessu móti. Það eru tiltölulega fáir menn sem vinna verkið og gjaldtakan af lyfjasölunni er aðeins brotabrot af því sem hugsanlega væri hægt að stilla upp miðað við álagningu og annað sem viðkemur lyfjasölu í þessu landi.
    Að lokinni 1. umr. legg ég til að málinu verði vísað til heilbr.- og trn.