Viðskiptasamningar við Sovétríkin
Mánudaginn 20. nóvember 1989


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Þá hefst umræða utan dagskrár sem fram fer að beiðni hv. 1. þm. Reykn. og er umræða um síldarsölusamninga við Sovétríkin og samninga tengda þeim. Umræðan fer fram eins og áður er sagt skv. fyrri mgr. 32. gr. þingskapalaga og skal því ekki standa lengur en hálftíma.