Matthías Á. Mathiesen:
Virðulegi forseti. Ef ég hefði ekki verið þingvanur maður, þá veit ég ekki hvernig ég hefði átt að taka öllum þessum skotum sem heyrðust hér í þingsal.
Ég hef leyft mér að óska eftir þessum umræðum hér vegna þeirra atvika sem nú eru að gerast í sambandi við síldarsamninga sem sýnast vera komnir í strand. Hér er um að ræða sölu á sjávarafurðum fyrir tæpan einn milljarð íslenskra króna. Þeir samningar sem hafa verið gerðir, en ekki undirritaðir, eru byggðir á rammasamningi við Sovétríkin frá 1985, þar sem gert er ráð fyrir 200--250 þúsund tunna kaupum á saltsíld af hálfu Sovétríkjanna. Það er ljóst að af viðskiptum við Sovétríkin á árunum 1986, 1987 og 1988 er viðskiptahalli upp á 38 millj. dollara og það er reiknað með halla á þessu ári.
Það hefur valdið íslensku samninganefndinni miklum erfiðleikum við samningaborðið að ekki hefur verið samræmi á milli þeirra upplýsinga sem komið hafa frá íslenskum stjórnvöldum og svo því sem haldið hefur verið fram við þá þar sem þeir hafa verið að semja austur í Moskvu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem Síldarútvegsnefnd hefur gefið út og undirstrikar það hver vandræði hafa hlotist af í þessum efnum.
Þær umræður sem áttu að hefjast fyrr á þessu ári hófust ekki fyrr en 23. okt. og var það vegna beiðni Sovétmanna. Samkomulag tókst 4. nóv. um sölu á 150 þús. tunnum ásamt og með viljayfirlýsingu um að ná samkomulagi um 50 þús. í viðbót eða síðar. Þegar þetta samkomulag var síðan borið undir sjávarútvegsráðherra þar eystra, þá hafnaði hann þessu á grundvelli verðsins, en verðið var skv. samkomulaginu óbreytt frá sl. ári en vegna hækkunar á verði til annarra viðskiptaaðila var hér um aukinn magnafslátt að ræða sem Sovétríkin hafa ævinlega fengið.
Á meðan þessar umræður fara fram og áður en til niðurstöðu á þeim er komið er undirritaður samningur um olíuviðskipti sem líka rúmast innan þess rammasamkomulags sem gert var 1985. Það er undirritaður samningur um kaup á olíu af Sovétmönnum á árinu 1990. Það sem gerist í þeim efnum bendir til þess að samgöngur innan ríkisstjórnarinnar hafi verið mjög slæmar. Hæstv. sjútvrh. hefur upplýst að hann hafi ekki haft hugmynd um þetta. Enn fremur má lesa í dagblöðum að þeir sem hafa unnið og vinna að útflutningi telji að hér hafi verið ástæða til að bíða og þeir hafi beint þeirri beiðni til hæstv. viðskrh. Svipuð aðstaða kom upp 1986. Þá leysti þáv. hæstv. viðskrh. Matthías Bjarnason þetta mál. Hann tók það fyrir í ríkisstjórn og þremur ráðherrum var falið að vinna að lausn þess. Samgöngurnar voru betri innan þeirrar ríkisstjórnar, enda vildi svo til að viðskrh. sem þá var líka samgrh. þeirrar ríkisstjórnar. Það tókst að leysa þetta mál.
Núna stöndum við frammi fyrir því að síldarvertíðinni er senn að ljúka. Of mikið magn af þeim kvóta sem heimilt er að veiða hefur farið til verksmiðja og verði ekki á næstu dögum undirritaður
samningur, þá sjáum við hverju við töpum, hverju íslenskt þjóðarbú tapar á þessu. Við heyrum það að austan að fólkið er að flytjast suður og ég veit að suður í Grindavík eru 100 manns sem bíða eftir því hvort samningar náist eða ekki. Spurning mín er því til hæstv. ríkisstjórnar: Hvað hyggst ríkisstjórnin gera? Árið 1986 hvöttu menn þáv. viðskrh. til þess að fara til Sovétríkjanna. Hann leysti málið með öðrum hætti. Hvað hyggst hæstv. utanrrh. sem fer með þessi mál nú gera? Hvað hyggst hann gera? Hvað hyggst viðskrh. gera og sjútvrh., sem ég veit að hefur fylgst með þessum málum þó að hann hafi ekki fengið vitneskju um þann olíusamning sem undirritaður hefur verið og hef ég hans eigin orð fyrir því.