Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Það mál sem hér er rætt að frumkvæði hv. 1. þm. Reykn. er á allalvarlegu stigi. Það er ljóst að fyrir fjölmörg byggðarlög er hér mikið í húfi og það eru horfur á því að það tjón sem orðið er vegna þess dráttar að samningar séu staðfestir verði varla bætt.
Ég vil nefna það í sambandi við þetta mál að í marsmánuði öndverðum átti hæstv. fjmrh. viðræður í Moskvu við þarlend stjórnvöld ásamt sendiherra Íslands í Moskvu og þá kom fram, sem menn vissulega höfðu heyrt áður, að verulegar breytingar væru orðnar á viðskiptaháttum í Sovétríkjunum og enn frekari breytingar væru væntanlegar, þar á meðal varðandi saltsíldarviðskipti. Ég hef handa á milli skýrslu frá þessum viðræðum. Ég held að hún hafi birst opinberlega í fyrravor. Hún var rædd hér á Alþingi. Ég hef ítrekað gengið eftir því í utanrmn. Alþingis að utanríkisviðskiptaráðuneytið og hæstv. utanrrh. legði fram greinargerð um sitt mat á stöðu og horfum varðandi viðskipti við Sovétríkin, m.a. í ljósi þeirra upplýsinga sem hæstv. fjmrh. reiddi fram eftir viðræður sínar í Moskvu í marsmánuði. Þessi greinargerð hefur ekki enn borist mér þrátt fyrir ítrekaðar óskir þar að lútandi og ég skil ekki hvers vegna alþm. fá ekki viðbrögð við slíkum beiðnum. Ég vísaði m.a. í væntanleg saltsíldarviðskipti í þessu sambandi.
Hér kemur fram í fréttatilkynningu Síldarútvegsnefndar frá í gær að það hafi verið afar bagalegt í samningaviðræðum að upplýsingar um stöðu viðskipta milli landanna lægju ekki fyrir. Þetta virðist ekki vera í lagi. Hér verður að taka á málum með öðrum og ákveðnari hætti. Það er ekki nýtt að það dragist að ganga frá saltsíldarsamningum, en það var ljóst fyrir fram að það mátti reikna með erfiðari róðri í þessum efnum heldur en áður af nefndum ástæðum.