Viðskiptasamningar við Sovétríkin
Mánudaginn 20. nóvember 1989


     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Hvort er nú svo komið að silfur hafsins er ekki lengur sú matvara sem síldin var áður fyrr eða hefur markaðssetning og útflutningshættir okkar brugðist? Ég spyr hvort hv. 1. þm. Reykn. þyki það sæma að brjóta sinn eigin rammasamning og hvort honum þyki það gott og gilt að stöðva bestukjarasamninga okkar um olíu. Það væri skammtímalausn. Hefur hv. málshefjandi gert sér grein fyrir því að það skiptir Sovétmenn engu hvort þeir selja okkur olíu eða bifreiðar? Hvort tveggja eru vörur sem þeir geta selt á sama verði eða betri á öðrum mörkuðum.
    Við höfum hins vegar haft mikla hagsmuni af þessum rammasamningi og höfum selt mikið af vörum til Sovétríkjanna sem ekki hafa fundist aðrir markaðir fyrir. Minna skal á að upphaf þessara viðskipta má rekja til þeirra atburða þegar Bretar settu hafnbann á Íslendinga í landhelgisstríðinu fyrr meir. Það hlýtur einnig að vekja upp spurningar hjá hverjum og einum þingmanni af hverju við getum ekki selt ýmsar vörur sem við höfum selt til Sovétríkjanna, svo sem síld, ullarvörur, fisk og lagmeti, á öðrum mörkuðum. Erum við ekki með vörur sem standast gæða- og verðkröfur Vesturlanda? Hafa íslenskir atvinnurekendur sofið á vaktinni og gleymt sér í vernduðu umhverfi sósíalismans? Hafa menn tapað áttum í þoku opinbers forræðis og sjóða sem ævinlega eru settir á stofn til að hlaupa undir bagga með atvinnurekstrinum, alveg sama hversu vitlaus sá rekstur er?
    Ég spyr: Er þetta upphlaup í dag viðurkenning á því að Sjálfstfl. sé sósíaliskur flokkur sem vill forræði ríkisins í einu og öllu? Eða vilja sjálfstæðismenn, eins og Frjálslyndi hægriflokkurinn, sjálfstæðan, óháðan og samkeppnishæfan atvinnurekstur sem selur gæðavörur á markaðsverði eins og Marel hf. hefur selt tölvuvogir sínar á heimsmarkaðsverði til Sovétríkjanna
fyrir hundruð millj. kr.? Valið stendur um markaðsbúskap eða ríkissósíalisma. Sovétmenn eru á leiðinni til markaðsbúskapar. Frjálshyggjan hefur haldið innreið sína í Moskvu. Þetta verða menn að gera sér ljóst.