Viðskiptasamningar við Sovétríkin
Mánudaginn 20. nóvember 1989


     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegi forseti. Að gefnu tilefni vil ég taka það fram að á þeim tíma sem ég hef gegnt starfi sjútvrh. sem er að verða sex og hálft ár, hefur aldrei í þeim opinberu viðræðum sem ég hef átt í við sjávarútvegsráðherra Sovétríkjanna, bæði hér á Íslandi og í Sovétríkjunum, verið farið fram á veiðiheimildir í íslenskri lögsögu og Sovétmenn ávallt sýnt Íslendingum skilning og íslenskri sérstöðu í þessum efnum.