Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Hæstv. forseti. Till. sú til þál. um íslenska heilbrigðisáætlun sem hér er lögð fram á sér langan aðdraganda. Till. er hér flutt á þskj. 149 og er 145. mál Sþ. Till. var einnig lögð fram í lok seinasta þings en því miður svo seint að þá vannst ekki tími til að mæla fyrir henni.
Sl. áratug hafa verið miklar umræður á alþjóðavettvangi, einkum á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, um það hvaða ráðum á að beita til að ná meiri árangri í heilbrigðisþjónustu en nú er. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin setti fram ákveðið markmið sem kallað hefur verið ,,Heilbrigði allra árið 2000``. Gerði það ráð fyrir að hvert starfssvæði stofnunarinnar tæki málið til athugunar miðað við aðstæður hjá sér og setti sér síðan markmið í samræmi við heilsufar og aðstæður þeirra þjóða sem á svæðinu starfa.
Á fundi Evrópusvæðis Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar 1984 voru samþykkt markmið sem þjóðirnar töldu að þær gætu sameinast um. Markmið Evrópuþjóðanna eru alls 38 og af ýmsu tagi og sum þeirra eru raunar þess eðlis að Íslendingar hafa þegar fyrir löngu náð þeim, svo sem um lífslíkur við fæðingu og um ungbarnadauða. Önnur eru þess eðlis að þau stefna að því að ná á áratugnum fram til aldamóta betra heilsufari og færri ótímabærum dauðsföllum en verið hefur nú um hríð.
Þessi áætlun Evrópusvæðisins gerir ráð fyrir því að hvert land fyrir sig geri sérstaka heilbrigðisáætlun, setji sér sérstök markmið til að ná þessari áætlun og miði markmiðssetninguna við næstu aldamót.
Í ársbyrjun 1986 heimsótti framkvæmdastjóri Evrópusvæðis Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar Ísland, hitti ráðherra að máli og kynnti fyrir þeim og heilbrigðisstéttum samþykktir Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Í framhaldi af þessari heimsókn lagði þáv. heilbrrh. Ragnhildur Helgadóttir fram í ríkisstjórninni til samþykktar tillögu um að unnið skyldi að landsáætlun í heilbrigðismálum með hliðsjón af stefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar í þeim tilgangi að stórauka forvarnir gegn sjúkdómum og slysum og örorku og ótímabærum dauðsföllum af þeim sökum. Lögð var áhersla á það af hálfu ráðherra að vinna hratt að málinu. Skipaði hún til starfsins þrjá lækna sem skiluðu tillögum sínum til ráðherra vorið 1987 og í apríl það ár lagði ráðherra þá áætlun fram sem skýrslu til Alþingis.
Skömmu eftir að ég tók við sem heilbrrh. ákvað ég að stefna að ítarlegri athugun og eftir þörfum endurskoðun þessarar áætlunar og jafnframt að á heilbrigðisþingi, sem haldið er lögum samkvæmt, skyldi áætlun þessi tekin til umræðu og var það gert hinn 5. febr. 1988. Fyrir þingið hafði farið fram ítarleg athugun og endurskoðun á áætluninni. Skipaðir höfðu verið sjö vinnuhópar, samtals um 50 manns,
sem fengu það verkefni að yfirfara áætlunina. Á heilbrigðisþingið sem haldið var í febrúar 1988 var boðið yfir 200 manns. Þar áttu sæti fulltrúar allra löggiltra heilbrigðisstétta, heilsugæslustöðva, stærri sjúkrahúsa, annarra heilbrigðisstofnana, sveitarfélaga, líknarfélaga, þingflokka, svo og formenn heilbrigðis- og trygginganefnda Alþingis auk allra þeirra sem unnið höfðu að áætluninni og fyrr eru greindir og fulltrúar fjölmiðla auk starfsmanna landlæknis og heilbrrn. Áður en þingið var haldið hafði áætlunin verið send til umsagnar fjölmargra aðila innan heilbrigðisþjónustunnar og utan og allar umsagnir sem bárust voru meðal þingskjala á heilbrigðisþinginu. Að loknu þessu þingi hefur verið unnið að því að samræma áætlunina þeim skoðunum sem þar komu fram og í athugasemdum á þinginu.
Það er skoðun mín að áætlunin eins og hún liggur nú fyrir hafi fengið mjög góða og ítarlega umfjöllun og vona ég að Alþingi geti sameinast um hana án mikilla breytinga. Upphafleg áætlun hafði 33 markmið, en sú sem hér er lögð fram hefur 37 markmið og hefur markmiðum bæði verið breytt og fjölgað í samræmi við þær tillögur sem fram hafa komið. Áætlunin skiptist í níu kafla sem taka til eftirfarandi efnisþátta:
1. Inngangur.
2. Stefna í heilbrigðismálum.
3. Stefna í heilsugæslu- og sjúkrahúsmálum.
4. Heilbrigðir lífshættir.
5. Heilbrigðiseftirlit og umhverfisvernd.
6. Þróun heilbrigðiskerfisins.
7. Framlög til heilbrigðismála og mannafli.
8. Rannsóknir og kennsla.
9. Alþjóðasamstarf.
Það er mjög mismunandi hve mörg markmið eru í hverjum kafla og mun ég nú
rekja stuttlega markmið innan hvers kafla.
Í inngangi eru í stuttu máli skilgreind hugtökin læknisþjónusta, heilsuvernd og heilsurækt og undirstrikað að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sett fram markmið um heilbrigði allra árið 2000 og í þessu sambandi hafi stofnunin
sett fram þrjú markmið sem hornsteina: Að stuðla að heilbrigðu líferni, að draga úr hættum sem valda heilsutjóni og að reka heilbrigðiskerfi sem þjónar fólkinu.
Í markmiði 1, sem er eina markmiðið í inngangi, er undirstrikað að heilbrigðisáætlunin hefur það markmið að bæta heilsufar þjóðarinnar og að tilgangur allrar heilbrigðisþjónustu er að skapa heilsufarslegt jafnrétti. Að bæta árum við lífið, heilbrigði við lífið og lífi við árin.
Í 2. kafla, Stefna í heilbrigðismálum, er lýst hvernig framkvæmd heilbrigðismála hefur verið á síðustu öld og hvernig síðustu 30 árin hafa fyrst og fremst einkennst af uppbyggingu stofnana og að síðustu 20 árin hefur verið sérstakt tímabil uppbyggingar heilsugæslu. Í markmiði 2 er lögð áhersla á endurskoðun á samskiptum ríkis og sveitarfélaga í sambandi við rekstur
heilbrigðisþjónustu, en undirstrikað að enda þótt ríkið beri ábyrgð á heilbrigðisþjónustu geti það gert samninga við félagasamtök um afmarkaða rekstrarþætti sé það hagkvæmt. Þá er gert ráð fyrir því í þessu markmiði að heilbrrh. geri Alþingi grein fyrir framkvæmd áætlunarinnar annað hvert ár.
Í 3. kafla, Stefna í heilsugæslu- og sjúkrahúsmálum, er rætt sérstaklega um heilsugæslustöðvar. Gert er ráð fyrir því að á árinu 1995 hafi allir landsmenn aðgang að heilsugæslustöð og undirstrikað að uppbygging heilsugæslunnar á að miðast við það, ekki síst, að auka heilsuvernd, heimilislækningar og heimahjúkrun og er um þetta rætt í markmiði 3.
Í markmiði 4 er rætt um sjúkrahús. Gert er ráð fyrir að setja nánari reglur en nú er um flokkun sjúkrastofnana, verkaskiptingu og starfssvið og gera sérstaklega greinarmun á sérhæfðu sjúkrahúsi, almennu sjúkrahúsi og hjúkrunarheimili. Þá er gert ráð fyrir að það megi setja reglur um þjónustusvæði einstakra sjúkrastofnana og mönnun þeirra.
Í 4. kaflanum um heilbrigða lífshætti eru alls sex markmið. Í markmiði 5 er rætt um að koma á fót stofnun forvarna- og heilbrigðisfræðslu, í markmiði 6 er rætt um manneldismarkmið, í markmiði 7 er rætt um útrýmingu tóbaksneyslu, í markmiði 8 er rætt um að minnka almenna neyslu áfengis og útrýma ofneyslu og í markmiði 9 er rætt um aðlögun heilbrigðisþjónustunnar að því að fást við geðræn vandamál daglegs lífs. Í markmiði 10 er rætt um líkamsrækt og þjálfun.
Í 5. kafla er rætt um heilbrigðiseftirlit og umhverfisvernd. Í þessum kafla er undirstrikað að tilvist mannkynsins sé háð því að reglulegt jafnvægi haldist í sambýli manns og náttúru og hlutverk heilbrigðis- og umhverfiseftirlits sé að stuðla að heilsusamlegu umhverfi innan húss og utan og fræðslu um þau mál. Í þessum kafla eru sjö markmið. Markmið 11 ræðir um nauðsyn þess að fylgjast með andlegum, líffræðilegum, eðlisfræðilegum og efnafræðilegum áhættuþáttum í umhverfi manna og draga úr skaðlegum áhrifum þeirra. Í markmiði 12 er rætt um eftirlit varðandi heilnæmi vatns, matvæla og neysluvara. Í markmiði 13 er rætt um ráðstafanir sem gera þarf vegna heilbrigðishættu frá eiturefnum og hættulegum efnum. Í markmiði 14 er rætt um þá hættu sem stafað getur frá jónandi geislun og hávaða og hvaða vörnum skuli beita við þessari áhættu. Í markmiði 15 er rætt um umhverfismengun og nauðsyn þess að fylgjast með mengunarþáttum um allt land, svo og þeirri mengun sem berst til landsins með vindum og hafstraumum. Í markmiði 16 er rætt um vinnuvernd og í markmiði 17 er rætt um slysavarnir, bæði vinnuslysa, umferðarslysa, slysa á sjó og heimilum, en einnig rætt um slysahættu sem stafar af áfengis- og vímuefnanotkun.
Í 6. kafla er rætt um þróun heilbrigðiskerfisins. Í þessum kafla eru langflest markmiðin eða alls 12. Í upphafi er rætt um hvernig skilgreina má góða heilbrigðisþjónustu og tekið fram að góð
heilbrigðisþjónusta eigi að vera sveigjanleg til að mæta breytilegum þörfum fólksins. Hún eigi að efla ábyrgð fólks á eigin heilbrigði. Hún eigi að nýta vel fjármuni og vera ekki ofviða efnahag þjóðar og einstaklinga. Hún eigi að þjóna öllum jafnt óháð kyni, aldri, tekjum, stöðu eða búsetu. Hún eigi að vera samfelld og slíta ekki einstaklinginn úr samhengi við fjölskyldu og umhverfi. Hún eigi að byggja á bestu þekkingu á eðli heilbrigðis og sjúkdóma hverju sinni.
Þá er í upphafsgrein þessa kafla rætt um stig þjónustu. Það er rætt um stig sjálfshjálpar og hjálpar sem veitt er af vandamönnum og vinum. Það er rætt um stig almennrar heilbrigðisþjónustu sem veitt er af þeim sem til þess hafa hlotið menntun og er þá aðallega átt við heilsugæslulækningar. Það er rætt um stig sérhæfðrar þjónustu sem oft er veitt skv. tilvísun frá fyrri stigum, bæði innan stofnana og utan og síðan er rætt um stig mjög sérhæfðrar þjónustu sem vegna fámennis okkar er eingöngu hægt að veita á landsvísu og í sumum tilfellum er ekki hægt að veita hér á landi, en þarf að sækja til annarra landa.
Í markmiði 18 er lögð sérstök áhersla á að byggja upp heilsugæslukerfið og jafnframt að halda sérfræðiþjónustu á því háa stigi sem hún er nú. Þá er undirstrikuð nauðsyn þess að draga úr þeim mismun sem er á möguleikum fólks til heilbrigðisþjónustu eftir búsetu. Í markmiði 19 er lögð áhersla á nauðsyn þess að hafa meðferð samfellda og gera heilbrigðisþjónustuna persónulegri en
hún er í dag. Í markmiði 20 er rætt um mönnun heilsugæslustöðva. Er þar gert ráð fyrir því að gera mönnunaráætlun fyrir heilsugæslu og reyna að byggja upp sérhæfða þjónustu á heilsugæslustöðvum eftir upplýsingum um heilbrigðisástand á hverju svæði. Í markmiði 21 er gert ráð fyrir að fyrir árið 1995 verði völ sérfræðiþjónustu á öllum stærri heilsugæslustöðvum og það sé gert með tvennu móti: Annaðhvort með skipulögðum ferðum sérfræðinga eða ráðningu sérfræðinga. Í markmiði 22 er gert ráð fyrir að komið sé á fót endurhæfingarstarfsemi í hverju heilsugæsluumdæmi við heilsugæslustöð eða sjúkrahús. Lögð er áhersla á nauðsyn mjög sérhæfðrar endurhæfingarstarfsemi í Reykjavík og á Akureyri.
Í markmiði 23 er rætt um tannheilsu og lögð á það áhersla að markmiðið sé að bæta tannheilsu almennings og gera tannheilsugæslu að hluta af almennri heilsugæslu og starfsemi heilsugæslustöðva.
Í markmiði 24 er rætt um sérfræðiþjónustu. Þar er gert ráð fyrir því að gæðum sérhverrar þjónustu sé haldið í þeim háa staðli sem hún er nú og aukin eftir því sem kostur er. Það er gert ráð fyrir því að hlutverk sjúkrahúsa í Reykjavík og Akureyri séu skilgreind sérstaklega, svo og annarra sjúkrahúsa í landinu með tilliti til sérfræðiþjónustu. Lögð er áhersla á tengsl sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva með sérstöku skipulagi og lögð áhersla á að auka göngudeildarþjónustu sjúkrahúsanna sem þá yrði sérfræðiþjónusta.
Í markmiði 25 er sérstaklega rætt um geðlæknisþjónustu. Gert er ráð fyrir því að slík
þjónusta verði veitt á heilsugæslustöðvum og að spítalar í Reykjavík og á Akureyri taki að sér þjónustuhlutverk fyrir ákveðin heilsugæslusvæði.
Í markmiði 26 er rætt um öldrunarlækningar. Það er gert ráð fyrir því að öldrunarlækningadeildir séu í Reykjavík og á Akureyri, en ávallt skuli stefnt að því að aldraðir og sjúkir verði vistaðir á sjúkrahúsum eða hjúkrunarheimilum í sinni heimabyggð. Aðaláherslan er lögð á endurhæfingu aldraðra og að stuðlað sé að því að þeir geti dvalist sem lengst í heimahúsum með aðstoð heimilishjálpar, heimahjúkrunar og aðstandenda.
Í markmiði 27 er rætt um sjúkratryggingar og örorkumat. Í sambandi við sjúkratryggingarnar er sérstaklega rætt um endurskoðun greiðsluforms og greiðsluhluta sjúklinga í hinum ýmsu lækningum, svo og um endurskoðun á sjúkradagpeningagreiðslum og launum í veikindum. Þá er gert ráð fyrir því að sérstaklega þurfi að taka til athugunar mun á aðstöðu fólks eftir búsetu og kostnað við að sækja heilbrigðisþjónustu. Í þessu markmiði svo og markmiði 29 er gert ráð fyrir endurskoðun ákvæða um örorkumat og gert ráð fyrir að hægt sé að setja reglur sem tryggja réttlátara örorkumat með hliðsjón af heilsufarslegum og félagslegum aðstæðum.
Í markmiði 28 er gert ráð fyrir endurskoðun laga um lyfjasölu og lyfjaneyslu og rætt sérstaklega um möguleika heilsugæslustöðva til að annast lyfjasöluna og ráða lyfjafræðinga til að sinna þeim verkefnum á sama hátt og annað starfslið er ráðið. Þá er gert ráð fyrir því að endurskoða hlutdeild sjúklinga í lyfjakostnaði og að apótekum verði falin forvarnarverkefni í samvinnu við heilsugæslustöðvar, skóla og áhugamannasamtök.
Í 7. kafla er rætt um framlög til heilbrigðismála og mannafla. Í markmiði 30 er sett fram sem stefnumið að útgjöld til heilbrigðismála haldist a.m.k. í sama hlutfalli af þjóðarframleiðslu og nú er. Gert er ráð fyrir áætlun um byggingu heilbrigðisstofnana og að miðað sé við að heilsugæslustöðvar eða aðstaða fyrir heilsugæslu sé komin upp fyrir árið 1995 og að á næstu 10 árum verði byggingu stofnana eða útvegun annarrar þjónustu fullnægt.
Í markmiði 31 er gert ráð fyrir því að gera áætlun um mannaflaþörf í heilbrigðisþjónustu fyrir næsta 10 ára tímabil. Þá er gert ráð fyrir því að námsskrár grunn- og framhaldsskóla og skólaheilbrigðisstétta skuli endurskoðaðar með tilliti til þeirrar áherslu sem þarf að leggja á heilsugæslu og heilbrigðisfræðslu og sérstaklega rætt um möguleika á sameiginlegri grunnmenntun þeirra sem starfa í heilbrigðisþjónustu þannig að fólk geti skipt um starf án mikillar viðbótarmenntunar.
Í 8. kafla er rætt um rannsóknir og kennslu. Í þessum kafla er lögð áhersla á að heilbrigðisþjónustan þurfi að búa við virkt og öflugt upplýsingakerfi og í markmiði 32 er gert ráð fyrir því að fullnægjandi upplýsingakerfi af þessu tagi sé skipulagt og komið á fyrir árið 1992. Tilgangur kerfisins er sá að fram fari reglubundið mat á starfsemi heilsugæslustöðva, sjúkrahúsa, störfum heilbrigðisstétta og einstakra
starfsmanna. Þá er gert ráð fyrir því að heilbrigðisrannsóknir almennt skuli efldar og sérstök rannsóknaráætlun skuli gerð til stuðnings framkvæmd heilbrigðisáætlunarinnar.
Hæstv. forseti. Þetta fer nú að styttast hjá mér, en þetta er hins vegar mjög merkilegt og mikilvægt mál sem ég mæli hér fyrir og tekur auðvitað nokkurn tíma að gera ítarlega grein fyrir því í svo stuttu máli sem þáltill. er í raun ætlað miðað við tímamörk þingskapa fyrir framsögu. En ég hef senn lokið máli mínu.
Í markmiði 33 er gert ráð fyrir að sérstakar ráðstafanir séu gerðar til að fylgjast með nýjungum í læknisfræði og til að nýta þær hér á landi eða í
samvinnu við önnur lönd í þágu forvarna, fyrirbyggjandi lækninga og meðferðar sjúkdóma. Í markmiðum 34 og 35 er annars vegar rætt um nauðsyn þess að efla vísindarannsóknir til að auka þekkingu og skilning á sjúkdómum sem hafa í för með sér alvarleg langvarandi sjúkdómseinkenni og hins vegar að við aukningu á vísindastarfsemi verði aðstaða á rannsóknarstofum nýtt til að mennta og þjálfa stúdenta og vekja áhuga starfsmanna í heilbrigðisþjónustunni á rannsóknum, gildi þeirra og gagnsemi. Í markmiði 36 er rætt um nauðsyn þess, ef einstaklingurinn á að vera virkur þátttakandi í heilbrigðisþjónustunni, að hann hafi þekkingu á undirstöðuatriðum líkams- og heilsufræði og að slíka þekkingu þurfi að byggja upp í skólakerfinu og viðhalda með almenningsfræðslu og símenntun.
Í 9. kafla er síðan rætt um alþjóðasamstarf. Gert er ráð fyrir því að gerð sé um það áætlun í hve miklum mæli og hvernig Ísland getur tekið þátt í alþjóðasamstarfi um heilbrigðismál.
Þetta stutta yfirlit lýsir í eins fáum orðum og unnt er hvað það er sem að er stefnt í þessari heilbrigðisáætlun. Með þáltill. eru tvö fskj., annars vegar fskj. þar sem reynt er að rekja lið fyrir lið þau verkefni sem fram undan eru til að ná fram markmiðum heilbrigðisáætlunarinnar og eru þau hverju sinni tengd við markmiðin. Hins vegar eru sett fram sem fskj. nokkrar tölfræðilegar upplýsingar um stöðu Íslands miðað við Norðurlönd. Eru þær upplýsingar teknar úr riti sem Norðurlandaþjóðirnar gefa út um heilbrigðismál sín. Ég ætla ekki að rekja þessar töflur hér en þær tala sínu máli um þann árangur sem við höfum náð í heilbrigðismálum.
Eins og ég sagði í upphafi er framlagning þessarar þáltill. endapunktur meira en þriggja ára vinnu sem hófst í ráðherratíð Ragnhildar Helgadóttur sem heilbrigðisráðherra og byggir á samþykktum sem Ísland hefur gert á alþjóðavettvangi. Ég tel mikilvægt að Alþingi samþykki á þennan hátt íslenska heilbrigðisáætlun og að hún verði síðan rammi verkefna okkar í heilbrigðisþjónustu næsta áratug.
Hæstv. forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að tillögunni verði vísað til síðari umræðu og hv. félmn.