Flm. (Níels Árni Lund):
Hæstv. forseti. Á þskj. 160 hef ég leyft mér að bera fram till. til þál. um könnun á fjölþættum möguleikum Bláa lónsins við Svartsengi. Tillagan er svohljóðandi:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera könnun á möguleikum á uppbyggingu við Bláa lónið við Svartsengi með það að markmiði að nýta þá möguleika sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Einkum skal beint sjónum að hvernig megi nýta lækningamátt lónsins fyrir Íslendinga og útlendinga, svo og að fyrirhuguð starfsemi tengist ferðamannaþjónustu almennt.
Við þetta starf verði haft náið samstarf við Hitaveitu Suðurnesja, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Ferðamálasamtök Suðurnesja, landlæknisembættið, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga og aðra þá sem málinu kunna að tengjast.``
Tillögunni vil ég fylgja úr hlaði með svohljóðandi greinargerð:
Bláa lónið svokallaða varð til er gufuaflsstöð Hitaveitu Suðurnesja við Svartsengi hóf starfsemi sína þar. Nafn sitt dregur það af hinum sérkennilega bláa lit sem kísilleirinn í botni þess gefur.
Vatnið í Bláa lóninu er í raun jarðsjór úr 200--2000 m djúpum borholum. Hann kemur upp á yfirborðið sem 240 gráðu heit gufa sem notuð er til að hita ferskvatn fyrir Hitaveitu Suðurnesja. Eftir að því lýkur þéttist gufan og frá orkuverinu kemur hún út sem 80--100 gráðu heitt affallsvatn og er leitt út í hraunið við stöðina.
Við kólnunina fellur m.a. út kísilleir sem þéttir botn hraunsins og hefur við þetta myndast heitt uppistöðulón úr jarðsjó sem almennt er kallað Bláa lónið.
Um 1980 bárust fréttir af því að einstaklingur með sjúkdóminn psoriasis teldi sig hafa fengið mikla bót á sjúkdómnum með því að njóta heitra baða í lóninu. Fljótlega fóru fleiri psoriasis-sjúklingar að reyna þetta og virtust böðin gefa góða raun. Þetta varð til þess að árið 1981 fluttu þingmenn Reykjaneskjördæmis svohljóðandi till. til þál.:
,,Alþingi ályktar að fela heilbrrh. að láta nú þegar fara fram könnun á lækningamætti jarðsjávar við Svartsengi.
Leiði könnunin til jákvæðrar niðurstöðu verði þegar unnið að því að koma upp aðstöðu fyrir þá sjúklinga sem að læknisráði er talið rétt að noti jarðsjóinn til baða.
Við könnun þessa verði haft samráð við samtök lækna, samtök psoriasis- og exemsjúklinga, svo og samtök annarra sjúklinga sem not gætu haft af slíkum böðum.``
Tillagan var samþykkt og það sama ár fól þáv. heilbrrh., Svavar Gestsson, landlækni að annast rannsókn á lækningamætti jarðsjávarins við Svartsengi. Þær rannsóknir hófust ekki fyrr en sumarið 1983 m.a. vegna aðstöðuleysis við lónið. Það ár var sett upp
rannsóknaráætlun og var áformað að rannsóknin færi fram um haustið. Hins vegar tókst ekki að fá nægan fjölda þátttakenda í rannsóknina og dróst hún til ársins 1985. Það ár stóð hún yfir frá því í júlí og þar til í nóvember og tók 21 einstaklingur þátt í henni.
Niðurstöður þessarar rannsóknar liggja fyrir hjá landlæknisembættinu. Í stuttu máli sagt gefa þær vísbendingu um að böð í Bláa lóninu bæti líðan psoriasis-sjúklinga.
Í framhaldi af þessari rannsókn stóð landlæknisembættið fyrir annarri rannsókn í samvinnu við húðlækningadeild Landspítalans á árunum 1986--1987. Í þeirri rannsókn var annars vegar borinn saman árangur af daglegum böðum í Bláa lóninu í þrjár vikur og hins vegar hefðbundin meðferð á psoriasis á göngudeild húðlækningadeildar Landspítalans.
Sú niðurstaða, sem liggur fyrir, gefur ein og sér tilefni til enn frekari rannsókna og í framhaldi af þeim fjölþættri og meiri nýtingu Bláa lónsins en nú er.
Psoriasis er einn algengasti húðsjúkdómurinn. Er talið að um 1,5% manna í heiminum hafi sjúkdóminn, þar af um 6000 Íslendingar. Þannig eru tugir milljóna manna víðs vegar um heim sem þjást af psoriasis-sjúkdómi sem erfitt reynist að ráða bót á. Enginn vafi er á að margir þessara sjúklinga væru tilbúnir til að koma langan veg að ef þeir hefðu von um betri líðan og greiða fyrir það háar upphæðir. Þrátt fyrir að lítið sem ekkert hafi verið gert til þess að kynna Bláa lónið hafa fregnir af því borist víða um heim og þegar hafa margar fyrirspurnir borist til ýmissa aðila, m.a. til landlæknisembættisins, um Bláa lónið og lækningamátt þess.
Nú þegar koma árlega á staðinn á milli 50.000 og 60.000 manns. Aðstaða fyrir þessa gesti er lítil. Hitaveita Suðurnesja byggði fyrir fáum árum lítið baðhús sem hefur leyst brýnustu þörf baðgesta og skammt frá er rekið lítið hótel í eigu einstaklinga. Því fer fjarri að þessi aðstaða sé nægileg til að taka á móti miklum fjölda gesta eða í þeim mæli og með þeim hætti sem nauðsynlegt er ef auglýsa á staðinn og markaðssetja hann sem slíkan á erlendum vettvangi.
Full ástæða er til að kanna fyrir alvöru hvort ekki sé hagkvæmt að reisa
fullkomið heilsuhótel á staðnum að svipaðri fyrirmynd og víða þekkist erlendis þar sem gestir njóta hvíldar og endurhæfingar undir eftirliti sérfræðinga. Nú kann einhverjum að þykja það óþarft að ríkið standi fyrir slíkri athugun og eðlilegra sé að það verði gert af einstaklingum eða félögum. Því er til að svara að heilsugæsla á Íslandi er opinber og staður sem þessi yrði að vera viðurkenndur af heilbrigðisyfirvöldum. Því er réttast að þau séu með í ráðum
frá upphafi. Þá er einnig sú hætta fyrir hendi að erfitt reyndist fyrir einstaklinga að fá heilbrigðisyfirvöld til að leggja fjármuni til rannsókna ef þau tengdust þeim ekki sjálf.
Auk þessa hníga öll rök í þá átt að staðurinn hefði almennt gildi til þess að laða ferðamenn að landinu og yki á fjölbreytni í ferðaþjónustunni.
Að síðustu skal bent á það sérstaklega að aukin umsvif við Bláa lónið hefðu mikla þýðingu fyrir atvinnulíf á Suðurnesjum, atvinnutækifærum mundi fjölga til muna og atvinnulífið yrði fjölbreyttara en nú er.
Rétt er að benda á að í september sl. var lögð fram skýrsla ráðgjafarnefndar, sem skipuð var af forsrh. 6. jan. 1989, um undirbúning sérstaks kynningarátaks á sviði ferðamála. Í skýrslunni er m.a. fjallað um þá góðu möguleika sem á Íslandi eru til heilsuræktar og segir m.a. í skýrslunni á einum stað, með leyfi forseta:
,,Í jarðvarmanum er mikilvæg heilsulind og heilsustéttirnar eru fjölmennar og vel menntaðar. Á Íslandi eru góðar aðstæður til að stuðla að heilbrigðu lífi í óspilltri náttúru og miklir möguleikar á því að byggja upp heilsuræktarstöðvar þar sem bjóða mætti einstaklingum og hópum aðstöðu til hvíldar og endurhæfingar.``
Í nefndri skýrslu er birt sem fylgiskjal skýrsla DOX Ltd. á hugmyndum um markaðssetningu á Íslandi. Höfundar hennar eru þrír Bretar, þeir Richard Birtchnell, dr. Bruce Dakowski og Nick Daw, allir þekktir athafnamenn á sviði kynningar og markaðsmála. Þeim var boðið hingað til lands af íslenskum stjórnvöldum og stofnunum á sviði viðskipta og ferðaþjónustu. Markmiðið með boði þeirra hingað til lands var að fá álit þeirra á ástandi og horfum á sviði viðskipta og ferðaþjónustu. Í skýrslum þeirra þremenninga segir m.a., með leyfi forseta:
,,Margt auðugt og þekkt fólk á Bretlandi leitar hælis á svokölluðum heilsubæjum. Hægt væri að fá þetta fólk til að koma til Íslands í staðinn. Það gæti hér unað í óspilltri náttúru, dvalið á raunverulegum heilsuhótelum. Það væri mun fýsilegri kostur.``
Og á öðrum stað segja Bretarnir í skýrslu sinni, með leyfi hæstv. forseta:
,,Vitaskuld á þjóð sem býr í afar heilsusamlegu umhverfi að selja heilsubótar- og heilsuræktarþjónustu af ýmsu tagi. Ísland gæti orðið helsta heilsubótarland veraldar fyrir ákveðna hópa fólks. Hér gæti fólk notið endurhæfingar eftir vist á sjúkrahúsum, notið náttúrulækninga af ýmsu tagi, fengið sérstaka meðferð til að megra sig, keypt íslenskt heilsufæði. Vekja þarf athygli á öllu slíku og hefja markaðs- og sölustarf. Sé rétt að verki staðið gæti árangurinn orðið ótrúlega mikill.``
Fleiri rök skal nefna sem mæla með því að ítarleg könnun fari fram á fjölþættum möguleikum Bláa lónsins við Svartsengi.
Keflavíkurflugvöllur er í næsta nágrenni við svæðið. Um hann fara tugir þúsunda erlendra ferðamanna árlega. Flestir þeirra eru að koma til landsins til lengri eða skemmri dvalar en margir hafa þar aðeins skamma viðdvöl á leið sinni yfir hafið. Fjöldi erlendra ferðamanna vex ár frá ári og æ fleiri Íslendingar hafa tekjur af þjónustu við þá. Hvað eftir annað hefur það komið fram að hingað eru þeir komnir til að leita að ósnortinni og sérstæðri náttúru,
ómenguðu umhverfi og hreinu og tæru lofti. Í augum margra Íslendinga hafa Suðurnesin ekki upp á mikið að bjóða sem útlendingar hafa áhuga á og í flestum tilvikum kynnast þeir svæðinu ekki á annan máta en þann að lenda á Keflavíkurflugvelli og aka eftir Reykjanesbraut til Reykjavíkur og síðan sömu leið til baka að dvöl á Íslandi lokinni.
Þetta er þó hinn mesti misskilningur og þeir sem hafa reynt að fara með útlendinga umhverfis Reykjanesskaga og m.a. kynnt þeim Krísuvík, Krísuvíkurbjarg, Ögmundarhraun, umhverfi Reykjanesvita, Garðskaga, Keili og þéttbýlisstaðina á svæðinu og síðast en ekki síst Bláa lónið í Svartsengi, hafa komist að því að allir þessir staðir vekja verðskuldaða athygli erlendra gesta enda gjörólíkir öðru sem þeir þekkja eða hafa áður séð.
Vart mun á annað hallað þó því sé haldið fram að Bláa lónið og umhverfi þess veki hvað mesta athygli enda afar sérstætt náttúrufyrirbrigði. Úfið hraun, upplýst og mikil og sérkennileg mannvirki, gufustrókar sem þeytast hátt í loft með miklum hvin og hið sérkennilega Bláa lón með heitum jarðsjó er nokkuð sem útlendingar hafa ekki áður séð. Ekki spillir þegar getið er um lækningamátt þess.
Það er hugmynd flm. að á svæðinu rísi fjölbreytt þjónusta, bæði hvað varðar dvalargesti sem væru þar nokkurn tíma og einnig fyrir hinn almenna ferðamann sem vildi þar eiga eftirminnilega dagstund. Það gæti t.d. átt við útlendinga
sem hefðu skamma viðdvöl á landinu en vildu kynnast sérstæðri náttúru þess.
Út frá staðnum væri hægt að ákvarða skemmtilegar gönguleiðir og lítill vafi væri á að hestaleiga yrði vinsæl ef hún yrði rekin á staðnum og þannig mætti lengi telja.
Þá er líklegt að flugfélög mundu notfæra sér staðinn og skipulegðu ferðir til og frá honum í tengslum við ferðir sínar til landsins.
Í umræðum um Bláa lónið hefur margoft verið bent á að nauðsynlegt væri að færa aðstöðuna úr því lóni sem nú er og lengra frá staðnum. Enginn vafi er á að ef fullkominni heilsuaðstöðu verður komið upp á svæðinu er flutningur á jarðsjónum nauðsynlegur.
Í skýrslu sem Albert Albertsson og Júlíus Jónsson, framkvæmdastjórar Hitaveitu Suðurnesja, tóku saman 1986 settu þeir fram rök er mæla gegn staðsetningu baðhúss við Bláa lónið svo og rök er mæla með gerð sérstaks baðlóns í góðri fjarlægð frá Bláa lóninu. Í skýrslu sinni vitna þeir m.a. til slysahættu á núverandi baðstað. Vegna stærðar lónsins og gufu sem yfir það leggur sé ógerningur að hafa yfirsýn og gætur á því.
Helstu rök sem mæla með flutningi baðlóns í góða fjarlægð frá núverandi lóni nefna þeir eftirfarandi, með leyfi forseta:
,,1. Byggingu baðlóns má haga þannig að unnt sé að hafa góða yfirsýn yfir lónið og þar með er unnt að hafa góðar gætur á baðgestum.
2. Unnt er að halda hitastigi baðlónsins stöðugu og stýra því með þvingaðri hringrás jarðsjávarins í lóninu. Um lagskiptingu lónsvatns yrði ekki að ræða.
3. Engin slysahætta er af yfirhituðu þéttivatni eða jarðsjó eins og nú er.
4. Baðlón og mannvirki tengd því rýra ekki á neinn hátt eðlilegt athafnarými orkuveranna sem þau þurfa í bráð og lengd.
5. Nýtt baðlón í góðri fjarlægð frá orkuverunum rýrir ekki á neinn hátt gildi Bláa lónsins sem affallslóns orkuveranna. Hugsanleg mengun Bláa lónsins hefur engin áhrif á baðlónið og er því hæglega unnt að halda því mengunarfríu.
6. Nýtt baðlón með tilheyrandi mannvirkjum rýrir ekki á neinn hátt möguleika til efnaiðnaðar tengdum jarðsjónum.
7. Með nýju baðlóni í góðri fjarlægð frá orkuverinu er mun auðveldara að verjast ágangi gesta en unnt væri ef baðhúsið væri við Bláa lónið.
8. Dæling jarðsjávar í baðlónið gefur mikla möguleika umfram þá sem eru í Bláa lóninu. Með réttu vali á dælum og stjórnbúnaði má dæla jarðsjó svo hann fái næga orku til að mynda flúðir, fossa, vatnsrennibrautir, jarðsjávargos, öldugjálfur, vatnsnudd, kísilleðjunudd o.fl., o.fl.
9. Baðhús við Bláa lónið á litla vaxtarmöguleika þar sem það er girt á tvo vegu af Bláa lóninu annars vegar og Fitjaæð hins vegar. Auk þess er baðhús við Bláa lónið inni á æskilegu athafnasvæði orkuveranna. Baðlón í góðri fjarlægð frá orkuverunum gæti orðið þungamiðja fólkvangs og útivistarsvæðis með hvers kyns íþrótta- og eða afþreyingarmannvirkjum. Það er brýnt að skipuleggja nú þegar umrætt svæði í góðri fjarlægð frá orkuverunum, svæði sem drægi að fólk úr heimshornum öllum.``
Að síðustu vil ég leyfa mér að vitna til skýrslu sem Óli Jón Ólason ferðamálafulltrúi samdi fyrir Ferðamálasamtök Suðurnesja og var m.a. til umræðu á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Suðurnesjum 1987. Í henni ræðir hann ítarlega ákveðnar hugmyndir um Bláa lónið og uppbyggingu þar. Í skýrslu hans segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:
,,Stærsta tromp Suðurnesjamanna í sambandi við heilsurækt er að mínu áliti tvímælalaust jarðhitinn og Bláa lónið. Á þessu tvennu tel ég að þurfi að gera allsherjarúttekt og ef það reynist jákvætt, sem ég tel miklar líkur á, þarf að gera stórhuga áætlun sem öll sveitarfélögin á Suðurnesjum standa að í samvinnu við erlenda, sérfróða aðila. Vinna þarf að ýmiss konar upplýsingaöflun svo sem:
1. Safna þarf saman öllum upplýsingum sem til eru um lækningamátt leirsins í Bláa lóninu og víðar á Suðurnesjum.
2. Kanna þarf stærð markaðar fyrir ýmsar tegundir heilsuræktar og möguleika á að ná þeim hingað.
3. Kanna þarf hvað í boði er á hinum ýmsu heilsuræktarstöðvum víðs vegar um heim, í Evrópu og Bandaríkjunum, og sjá hvort við getum verið samkeppnisfærir hvað verð og gæði snertir.
4. Kanna þarf hvort við getum boðið upp á eitthvað sérstakt sem þeir geta ekki boðið upp á og hvað þá.
5. Kanna þarf áhuga erlendra aðila á samstarfi við
að koma upp heilsuræktarstöð á Suðurnesjum.
6. Kanna þarf fjármagnsmöguleika.
Ef jákvæð svör fást við áðurgreindum athugunum og öðru sem kemur í kjölfarið þarf að gera áætlanir um uppbyggingu ef fara á út í þetta á annað borð.
Ég vil með örfáum orðum gera grein fyrir því hvernig ég get séð þetta fyrir mér og standa eigi að uppbyggingu slíkrar heilsuræktarstöðvar.`` --- Síðan segir Óli Jón Ólason ferðamálafulltrúi, með leyfi forseta:
,,1. Byggja þarf stóra, fullkomna heilsuræktarstöð með allri þeirri aðstöðu sem þarf til að hægt sé að þjóna bæði sjúklingum og öðrum þeim sem vilja rækta
líkama sinn þó þeir séu ekki sjúkir. Þessi heilsuræktarstöð þarf að vera með mjög fullkominni aðstöðu fyrir lækna, sjúkraþjálfara og annað sérmenntað fólk.
2. Koma þarf læknum og öðru væntanlegu starfsfólki í sérmenntun erlendis.
3. Byggja þarf gistimöguleika fyrir allar tegundir sjúklinga og annarra sem vilja komast í meðferð. Þar þurfa að vera hótel af hærri og lægri verðklassa, gistiheimili, íbúðagisting og gisting á heilsuhælum. Allir, jafnt ríkir sem fátækir, geta notað heilsuræktarstöð en gista í misdýrum og misíburðarmiklum gististöðum eftir efnum og ástæðum.``
Virðulegi forseti. Ég hef nú þegar lokið þessum tilvitnunum mínum í skýrslu Óla Jóns Ólasonar ferðamálafulltrúa og vil að lokum segja þetta:
Flm. lætur þá ósk í ljós að hæstv. Alþingi samþykki þá þáltill. sem hér hefur verið mælt fyrir og hrindi þar með af stað könnun sem leiði af sér framkvæmdir við Bláa lónið, Suðurnesjabúum og landsmönnum öllum til hagsbóta. Nauðsynlegt er að sú athugun sem hér er lagt til að verði framkvæmd sé gerð í fullu samráði og í samvinnu við Hitaveitu Suðurnesja, Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum, Ferðamálasamtök Suðurnesja, landlæknisembættið, Ferðamálaráð, Samtök psoriasis- og exemsjúklinga og aðra þá sem málinu tengjast.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að málinu verði vísað til síðari umr. og allshn.