Möguleikar Bláa lónsins
Mánudaginn 20. nóvember 1989


     Ásgeir Hannes Eiríksson:
    Virðulegi forseti. Ég vil aðeins segja nokkur orð og þakka flm. fyrir þessa ágætu till. sem lýtur að þeirri nýsköpun sem nauðsynleg er í atvinnulífi þjóðarinnar. Núna þegar við horfum á eftir hinum ýmsu nýju greinum sem við höfum tekið upp síðari ár, þegar við horfum á vandræði þeirra, þá hljótum við að velta fyrir okkur hvert við eigum að leita. Ekki treystum við endalaust á sjávarútveginn og þá eru ferðamálin ofarlega í huga enda hefur ríkisstjórnin skipað sérstaka nefnd sem hefur skilað áliti þar sem einmitt er komið inn á þessi svið, þá framtíðarmöguleika sem þjóðfélagið á í heilsurækt. Ég geri ráð fyrir því, þar sem hæstv. heilbrrh. er í salnum, að till. þessi eigi greiða leið að ríkisstjórninni og að þessi mál verði könnuð til þrautar en menn gæti þess að flýta sér hægt þegar kemur að því að fjárfesta.