Flm. (Sigríður Lillý Baldursdóttir):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. 13. þm. Reykv. Guðrúnu Helgadóttur fyrir hennar orð hér vegna þessarar tillögu og jafnframt fyrir hennar framlag og þeirra annarra sem fluttu tillögu um tæknifrjóvganir á 108. löggjafarþinginu sem hefur orðið til þess að nú þegar hefur farið fram mikið starf til undirbúnings löggjöf um tæknifrjóvganir sem ætti að geta flýtt verulega fyrir starfi þeirra sem mundu búa það frv. til flutnings hér.
Jafnframt þakka ég hv. 3. þm. Reykv. fyrir hennar ábendingar, en vegna orða hennar um orðalag tillögunnar vil ég ítreka að það er mitt mat að það eigi að samþykkja lög um tæknifrjóvganir áður en til glasafrjóvgana komi hérlendis og það er minn klaufaskapur í orðalagi tillögunnar að hún fór fram með þessum hætti.
Það er rétt hjá hv. 3. þm. Reykv. að það skiptir ekki sköpum hvar glasafrjóvganir fara fram. En það breytir ekki því að það þarf að setja einhverjar reglur eða löggjöf um málið. Það að glasafrjóvganir verða teknar upp hér á landi þýðir að hér á landi koma til með að verða til umframfósturvísar og það eitt hlýtur að krefjast einhverrar lagasetningar.
Hitt er annað að mér finnst rétt að við notum líka þetta tækifæri sem við fáum hér með þessum glasafrjóvgunum til þess að fá fram lög um tæknifrjóvganir. Tæknifrjóvganir hafa verið framkvæmdar í landinu frá því 1979, í 10 ár, og réttarstaða aðila hefur verið ótrygg. Þegar félagsfaðir eða sá faðir sem skráður er faðir barns er ekki um leið erfðafræðilegur faðir þess, eins og hann getur verið við tæknisæðingar, getur hann farið fram með vefengingarmál og fengið sannað að hann sé ekki faðir barnsins. Slíkt hefur ekki gerst hér til þessa, en það gæti komið til þess og ég tel að við hljótum að þurfa að koma í veg fyrir þau sárindi sem af slíku gætu hlotist.
Við hljótum að vera sammála um að löggjafar er þörf og það er löngu tímabært. Ég vona því að tillaga þessi fái góða og skjóta meðferð hér á þinginu.