Karvel Pálmason:
Virðulegur forseti. Ekki er það mín ætlan að draga neitt á langinn málsmeðferð á þessu máli eða drepa því á dreif. Þetta er hins vegar svo mikið mál að mínu viti að menn þurfa að gefa sér nokkurn tíma til þess að ræða það. Þetta er það mikilsvert fyrir svo marga og ætti þá kannski að harma það að málið hefur ekki fyrr komið fyrir Alþingi.
En út af því sem hér hefur komið fram --- það er í fyrsta lagi út af hæstv. menntmrh. Það hefði verið gott að eiga orðaskipti við hann núna, hæstv. menntmrh. og, muni ég rétt, fyrrv. heilbr.- og trmrh. og fyrrv. formann Alþb., allt saman rétt. Mér fannst hann ekki vera mjög víðsýnn í sinni umræðu um þetta mál. ( GHG: Hann hefur aldrei verið víðsýnn.) Það kann vel að vera, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson. Þú þekkir manninn miklu betur en ég og getur skilgreint hann betur. Það sem mér fannst standa upp úr í máli hæstv. menntmrh. var þetta: Þetta frv. er númer eitt fyrir Reykjavík. (Gripið fram í.) Ég er út af fyrir sig ekki að gagnrýna það að menn geri vel við Reykjavík og mín orð voru ekki mælt á þann veg hér í upphafi að ekki þyrfti að gera vel við Reykvíkinga, og kannski þarf ekki síður að gera vel við þá en aðra landsmenn, af ýmsum ástæðum. En mér fannst hæstv. ráðherra taka málið mjög einfaldlega, á þennan veg. Hér er auðvitað um miklu víðtækara mál að ræða en að bara sé verið að fjalla um Reykjavík í frv.
Ég sagði áðan að ég óttaðist að hér væri verið að draga vald úr höndum dreifbýlis og eftir því sem ég hugleiði þetta mál frekar styrkist sú skoðun mín að svo sé. Muni ég rétt eru það átta læknishéruð sem eru með héraðslækna núna. Nú á einvörðungu að setja í þrjú, þ.e. eins og 3. gr. gerir ráð fyrir, töluliður 6.2.: ,,Ráðherra skipar héraðslækni í Reykjavík, í Norðurlandshéraði eystra og Reykjaneshéraði. Skulu þeir vera sérmenntaðir embættislæknar.`` ( Heilbr.- og trmrh.: Lestu áfram.) Já, já, ég er ekki búinn. Ég er bara ekki hraðlæsari en þetta, hæstv. ráðherra. ( GA: Þú þarft að fara á námskeið.) Já, svo kann að vera að menn þurfi á námskeið til lækna, ef hv. þm. á við það, úr sinni stétt. ( GA: Öllum þingmönnum var boðið á hraðlestrarnámskeið.) ,,Skulu þeir vera sérmenntaðir embættislæknar eða hafa jafngilda menntun til starfsins.`` --- Var það þetta sem hæstv. ráðherra vildi heyra? ( Heilbr.- og trmrh.: Nei, næsta málsgrein.) Enn þá meira, já, enn þá meira. --- ,,Annars staðar skipar ráðherra einn af starfandi heilsugæslulæknum héraðsins sem héraðslækni til fjögurra ára í senn.`` ( Heilbr.- og trmrh.: Nákvæmlega eins og það er og engin breyting á lögunum.) Það er breyting í fyrri málsliðnum, hæstv. ráðherra, ,,sérmenntaða`` í þrjú kjördæmi eða með sérstaka menntun. Með þessu er að mínu viti verið að gera upp á milli læknishéraða. Hér er ekki verið að skipa mönnum á svipaðan bekk, á Vestfjörðum, á Vesturlandi og í öðrum þeim kjördæmum sem hér eru ekki nefnd, og þessum þremur. Hér eiga að vera betur
menntaðir læknar en í hinum héruðunum. ( Gripið fram í: Öðruvísi.) Eðlilega.
Ekki efast ég um vilja hæstv. heilbrrh., hann dreg ég ekki í efa, en það er nú einu sinni svo að ráðherrastólar eru fallvaltir og það er ekki einu sinni vitað hvað hæstv. núv. heilbrrh. mun sitja lengi. Það sem ég óttast er að hann ráði ekki við kerfið. ( Gripið fram í: Hvaða fréttir ertu með?) Ég er ekki með neinar fréttir. Ég hugsa, og það hygg ég að aðrir hv. alþm. ættu að gera svona annað slagið a.m.k., ég hugsa til framtíðarinnar. Það sem ég óttast er að þó að hæstv. heilbr.- og trmrh. sé mjög vel innrættur í þá veru að vilja valddreifingu ráði hann ekki við kerfið þegar þetta er komið á, og það segir okkur mörgum, a.m.k. þessum eldri mönnum í sveitarstjórnum og pólitík, að það er oft erfitt að eiga við það kerfi sem einu sinni er búið að koma á.
Að því er varðar Reykjavík er mér um það kunnugt að borgarlæknir hefur mjög miklar athugasemdir við þetta frv. og dregur ýmsa þætti þess í vafa, að þeir eigi fram að ganga. Og mér er spurn: Er með frv. verið að breyta einhverju að því er varðar ráðningarsamninga lækna í heilbrigðiskerfinu sem mér er sagt að hafi kostað hundruðum milljóna meira en eðlilegt hefði verið á undangengnum árum. Er einhver breyting frá því í þessu frv.? Eða ætla menn að halda áfram að feta þá sömu braut að semja á þann máta við lækna eins og verið hefur? Um þetta veit ég ekki, en þessu vildi ég velta hér upp.
Ég tek að sjálfsögðu undir með hæstv. ráðherra þegar hann segir: Það er ekki síður þörf á að skipa sérstaka héraðslækna í hinar dreifðu byggðir og kannski fremur. Ég lít svo á, a.m.k. að því er varðar Vestfirði sem ég þekki best til, að það sé fullt starf héraðslæknis að vera þar. Ég hygg að það væri ekki til hins betra að fara að skipa málum á þann veg að einn og sami héraðslæknir gegndi fleiri en einu læknishéraði eins og þau eru skilgreind núna.
Eitt er það í viðbót sem ég held að sé nauðsynlegt að velta hér upp --- og kannski er það miklu fleira þó að mönnum hafi ekki gefist kostur á því enn sem komið er. Það er varðandi 18. gr. en þar segir:
,,Stjórnir heilsugæslustöðva ráða starfslið stöðvanna og fer um laun þeirra samkvæmt kjarasamningum við opinbera starfsmenn.``
Hvað þýðir þessi grein? Hvernig á að skilgreina hana? Það ég best veit eru margs konar samningar í gildi við starfsfólk sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva. Það er á vegum sveitarfélaganna og það er á vegum þess sem menn kalla hið opinbera, opinberra starfsmanna, BSRB. Ef þetta ætti að fara allt í þann farveg varðandi BSRB, þá fullyrði ég að þetta hefði í för með sér launalækkun hjá fjölda fólks, ef ég skil þetta rétt. Um það skal ég ekkert fullyrða. En ég held að menn ættu að skoða þessa grein ásamt með öðrum sem í þessu frv. eru. Ég a.m.k. ætla að lýsa því yfir hér að sé minn skilningur réttur þá mun ég ekki standa að samþykkt svona greinar í væntanlegri löggjöf og svo kann að vera um fleiri greinar í þessu frv. En ég ítreka enn, mér hefur ekki gefist nægilegt
tækifæri til þess að kynna mér það þannig að ég geti fullyrt, en mér
sýnist þetta vera nokkuð augljóst að því er varðar laun þessa fólks og þá er ég ekki að tala um lækna, ég er að tala um venjulegan launamann á heilsugæslustöð eða sjúkrahúsi.
Ég skal, herra forseti, ekki lengja þessar umræður. Mér þykir slæmt að hæstv. menntmrh. skyldi ekki vera hér við þannig að hægt hefði verið að eiga orðaskipti við hann. Ég geri ekki kröfu til þess að reynt verði að nálgast hann. Menn eru nú í ýmsum samningsgerðum í framhaldi af nýframlögðu fjárlagafrv. til þess að breyta og þurfa trúlega þar ýmsum hnöppum að hneppa.