Heilbrigðisþjónusta
Miðvikudaginn 22. nóvember 1989


     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegur forseti. Ég vil fyrst segja það sem mína skoðun að það liggur ljóst fyrir að þetta frv. felur í sér aukna miðstýringu. Það felur í sér aukin afskipti ríkisins. Það liggur í augum uppi. Ég tel það ekki til bóta út frá því sjónarmiði séð og einnig hlýtur maður að vekja athygli á því, sem kemur að vísu mjög skýrt fram í grg., að það eru hin peningalegu sjónarmið ríkisvaldsins sem eru í fyrirrúmi en ekki þau sjónarmið sem við hefðum haldið að ættu að skipa fyrirrúm sem er læknaþjónusta gagnvart þeim sem þurfa á þessari þjónustu að halda.
    Það er alrangt sem hæstv. menntmrh. sagði hér áðan þegar hann hélt því fram að þetta frv. þjónaði fyrst og fremst hagsmunum Reykjavíkur. Það er ekki rétt. Ég vil að það komi hér skýrt fram. Alla vega get ég ekki lesið það út úr þessu frv. En það eru einkum þrjú atriði sem ég vildi gjarnan fá upplýst frá hæstv. heilbrrh.:
    Í fyrsta lagi fannst mér hæstv. ráðherra ekki svara 6. þm. Reykn. Salome Þorkelsdóttur nægilega skýrt þegar hún spyr m.a. um það hvort áfram verði valkostur um val heimilislækna. Ráðherra svaraði því ekki nægilega skýrt fannst mér í sinni ræðu áðan. Hann sagði eitthvað á þá leið, og talaði þá um stöðu Reykjavíkur, að núverandi kerfi í Reykjavík verði að skoða sérstaklega. Og hann undirstrikaði að í þeim efnum væri nokkur áherslumunur. Ég vildi gjarnan óska eftir því að hæstv. ráðherra skýrði það nánar á þessu stigi hvað hann á við með áherslumun. Í hverju er þessi áherslumunur fólginn, annars vegar frá hans sjónarmiði séð og svo frá sjónarmiðum annarra varðandi þetta atriði?
    Einnig vildi ég í þessu sambandi spyrja hæstv. ráðherra að því hvort núverandi heimilislæknakerfi geti ekki gengið samhliða eða verið rekið samhliða því heilsugæslukerfi sem frv. gerir ráð fyrir. Það þýðir raunverulega að ég er að varpa fram þeirri spurningu hvort við getum ekki átt kost á því sem búum hér í Reykjavík að velja okkar eigin heimilislækni án tillits til þeirra ákvæða í þessum lögum sem varða skiptingu borgarinnar í heilsugæslusvæði.
    Ég vil einnig taka undir það atriði sem kom fram hjá hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur að ef samskiptin milli læknis annars vegar og sjúklings hins vegar verði styttri með tilkomu þessa frv., þá tel ég það vera til hins verra hvað þjónustu áhrærir og einnig með tilliti til þarfa og óska sjúklingsins. Ég vil þess vegna fá fram skoðun hæstv. ráðherra á því hvort hann telji að þetta sjónarmið hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur hafi hér eitthvert gildi sem beri að skoða ítarlega. Þetta er mjög mikilvægt atriði því að það sem við erum að fjalla um er fyrst og fremst þjónusta við sjúklinga en ekki endilega að vera að ræða um það út frá sjónarmiði peninga eða stjórnsýslu eins og mér virðist einkenna þetta frv. mjög.
    Þá er það þriðja atriði sem ég vildi fá skýrt. Mér líkar það ekki alls kostar vel þegar verið er að gefa til kynna í athugasemdum með þessu lagafrv. að

Reykjavíkurborg, þ.e. borgarstjórnarmeirihlutinn í dag, hafi tekið afstöðu með því sem er í þessu frv. en ef maður les grg. og það sem segir um 10. gr., þá væri hægt að skilja það svo að borgarstjórn Reykjavíkur mæli með þessu frv. Með leyfi forseta vil ég lesa fyrst það sem segir um 10. gr.: ,,Hverfaskipting sú, sem lögð er til í 10. gr., er í samræmi við þær tillögur sem þegar hafa verið samþykktar á vegum borgarinnar en ekki hafa komist til framkvæmdar enn þá.`` En fyrr um þessa grein segir, með leyfi forseta: ,,Það liggur ljóst fyrir að eldra kerfi heimilislækninga og heilsuverndar í Reykjavík hefur staðið í vegi fyrir nýju skipulagi heilsugæslu samkvæmt lögunum, ekki síst hverfaskiptingu heilsugæslunnar. Á vegum Reykjavíkurborgar hefur verið unnið að þessu máli og fór sú vinna aðallega fram á árunum 1979--1983 en á þeim árum samþykkti borgarstjórn í þrígang samhljóða að óska eftir breytingum við ríkið en ekki gat orðið af þeim, m.a. vegna ýmissa árekstra sem upp komu við þá starfsemi sem þegar var fyrir hendi.`` Mér finnst þetta villandi og ég vildi gjarnan að hæstv. ráðherra upplýsti, þ.e. að hann dagsetti hvenær Reykjavíkurborg hefði mælt með þessum breytingum, þ.e. á tímabilinu 1979--1983. Það er verið að gefa til kynna með óbeinum hætti að borgarstjórnarmeirihluti Reykjavíkur til dagsins í dag hafi tekið afstöðu til þessara breytinga. Ég vil gjarnan fá þetta skýrt.
    Ég vek einnig athygli á því, virðulegi forseti, að á árunum 1978--1982 var borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík öðruvísi samsettur en hann er í dag.
    Að lokum vil ég taka undir það sjónarmið sem fram kom hjá hv. þm. Sveini G. Hálfdánarsyni um það að þetta frv. verði sent sem víðast til umsagnar þannig að það verði vandað til þessa verks.