Heilbrigðisþjónusta
Miðvikudaginn 22. nóvember 1989


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins þakka hæstv. ráðherra fyrir þau svör sem hann gaf við þeim athugasemdum og fyrirspurnum sem ég lagði hér fyrir hann. Það er rétt sem kom fram í máli hv. 14. þm. Reykv. að það voru ekki skýr svör við þeim athugasemdum sem ég gerði við 10. gr., þ.e. skipulagið í Reykjavík, hvernig því verður fyrir komið varðandi heimilislæknana. Hann sagði að þetta mál væri í skoðun, en viðurkenndi samt sem áður að þarna væru atriði sem þyrfti að skoða. Ég vildi aðeins með þessum orðum mínum leggja áherslu á það að þetta er mikilvægt atriði að ég tel fyrir Reykvíkinga, að þeir geti áfram valið um læknastöðvar heimilislæknanna eða heilsugæslustöðvar samkvæmt þessu skipulagi. Þetta vildi ég aðeins leggja áherslu á.