Skráning og meðferð persónuupplýsinga
Miðvikudaginn 22. nóvember 1989


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um skráningu og meðferð persónuupplýsinga. Frv. þetta kemur frá hv. Ed. á þskj. 186.
    Við afgreiðslu frv. í Ed. voru samþykktar við það nokkrar brtt. sem greinir á þskj. 180. Frv. sem var lagt fram nú í þingbyrjun er að meginefni samhljóða frv. sem lagt var fram á síðasta þingi en varð ekki útrætt. Samkvæmt 31. gr. laga um kerfisbundna skráningu á upplýsingum er varða einkamálefni, nr. 39/1985, bar dómsmrh. að láta endurskoða þau lög og leggja fyrir Alþingi haustið 1988 nýtt frv. um efni laganna, en það var gert í desember 1988. Núgildandi lög um þetta efni falla úr gildi í árslok 31. des. nk. og er því brýnt að það takist að ljúka afgreiðslu frv. fyrir jólaleyfi.
    Brtt. þær sem hv. Ed. hefur samþykkt við frv. tel ég allar vera til bóta. Vil ég leyfa mér að vísa til skýringa á þeim í nál. hv. allshn. Ed. á þskj. 181.
    Veigamesta breytingin varðar reglu um framkvæmd markaðs- og skoðanakannana sem 24. gr. frv. fjallar um. Samkvæmt frv. eins og það var lagt fram var sagt að óheimilt væri að gera markaðs- og skoðanakannanir um atriði sem falla undir ákvæði laganna nema áður hafi verið aflað heimildar tölvunefndar. Samkvæmt þeim breytingum sem nú hafa verið samþykktar í hv. Ed. skulu þeir sem annast slíka starfsemi í atvinnuskyni hafa starfsleyfi frá tölvunefnd en senda skulu þeir nefndinni með tilteknum fyrirvara lýsingu á könnun sem þeir hyggjast gera. Öðrum er óheimilt að annast slíkar kannanir án leyfis tölvunefndar hverju sinni.
    Önnur breyting lýtur að starfsaðstöðu tölvunefndar. Í stað ákvæðis um að starfsmaður dómsmrn. skuli vera ritari tölvunefndar er tölvunefnd nú veitt heimild til þess að ráða sér nauðsynlegt starfslið í samráði við dómsmrh. Af nær átta ára starfi tölvunefndar í nánum starfstengslum við dómsmrn. hefur fengist góð reynsla og mun ég beita mér fyrir því að þau tengsl haldist og nefndin fái áfram þá starfsaðstöðu innan veggja ráðuneytisins sem hún hefur haft, en jafnframt verði leitast við að bæta aðstöðu hennar eftir því sem þörf er á á hverjum tíma.
    Þessum breytingum sem og öðrum þeim er gerðar hafa verið í hv. Ed. vil ég mæla með, enda hefur hv. allshn. unnið hér mjög ítarlega að athugun á frv. og fjallað um það á mörgum fundum ásamt höfundum þess og öðrum sérfræðingum.
    Með frv. þessu sem hér er til umfjöllunar er lagt til að sett verði þriðju lögin um skráningarmálefni hér á landi, en nú eru tæp átta ár frá því að lög nr. 63/1981 tóku gildi og giltu þau í fjögur ár. Voru þau endurnýjuð að mestu óbreytt árið 1985 og tóku gildi 1. jan. 1986 og er gildistími þeirra til ársloka þessa árs.
    Frá því að fyrsta löggjöfin um skráningarmálefni var sett hér á landi hafa menn öðlast aukna reynslu á þessu löggjafarsviði sem áður var mönnum óþekkt. Miðar frv. þetta að því að bæta úr þeim vanköntum

gildandi löggjafar sem í ljós hafa komið. Þá hefur og við samningu frv. verið horft til réttarþróunar í grannríkjum okkar, en rétt er að leggja á það áherslu að hér er um að ræða lagasetningu á mjög alþjóðlegu sviði og því nauðsynlegt að þróun íslenskra réttarreglna um þetta efni sé samstiga þróun í grannríkjum okkar.
    Eins og áður segir hefur löggjöf um skráningarmálefni það að meginmarkmiði að vernda einstaklingana gegn því að misfarið sé með persónuupplýsingar sem skráðar hafa verið um þá með kerfisbundnum hætti. Í slíkri löggjöf og þar með frv. þessu er reynt að ná þessu markmiði með eftirfarandi úrræðum:
    1. Settar eru reglur um það hvenær og í hvaða tilgangi heimilt er að skrá persónuupplýsingar. Er um það efni fjallað aðallega í II. kafla frv.
    2. Strangar reglur gilda skv. III. kafla frv. um aðgang annarra en hins skráða að skráðum upplýsingum.
    3. Hinum skráða er tryggður aðgangur að upplýsingum er hann sjálfan varða og er um það efni fjallað í IV. kafla frv. Er það gert í því skyni að veita einstaklingunum sjálfum færi á því að hafa að vissu marki sjálfir eftirlit með því að ekki séu skráðar um þá upplýsingar sem óheimilt er að skrá.
    4. Þar sem upplýsingar um fjárhagsmálefni og lánstraust manna eru þeim viðkvæmar eru settar sérstakar reglur um skráningu og meðferð slíkra upplýsinga í V. kafla frv. Eru þær reglur til muna ítarlegri í frv. þessu en í gildandi lögum.
    5. Gert er ráð fyrir áframhaldandi skipan opinberrar eftirlitsnefndar, svokallaðrar tölvunefndar, sem hefur eftirlit með því að til skráningar sé stofnað og með upplýsingar farið svo sem í lögunum segir. Er það jafnframt hlutverk nefndarinnar að veita borgurunum liðsinni við að ná fram leiðréttingu sinna mála ef þeir telja rétt sinn brotinn.
    Auk þessa hefur frv. að geyma ákvæði um notkun nafnaskráa til útsendinga á auglýsinga- og dreifiefni, svo og ákvæði um framkvæmd markaðs- og skoðanakannana um atriði er snerta gildissvið frv. Þá er og í frv. að finna ákvæði um starfsemi þeirra er annast tölvuþjónustu fyrir aðra og ákvæði um
söfnun upplýsinga hér á landi til úrvinnslu erlendis.
    Í III. kafla almennra athugasemda frv. eru raktar helstu breytingar á gildandi löggjöf sem frv. þetta gerir ráð fyrir og verða þær ekki raktar hér nánar. Þó er rétt að leggja á það áherslu að þótt breytingar frv. séu allmargar raska þær þó ekki í neinum verulegum atriðum þeirri umgjörð sem þegar hefur verið sett um þessa einkalífsvernd. Ein veigamesta breytingin sem frv. gerir ráð fyrir kemur fram í 2. mgr. 30. gr. þar sem lagt er til að tölvunefnd og starfslið hennar hafi vegna eftirlitsstarfa sinna aðgang að húsnæði þar sem skráning fer fram eða þar sem skráningargögnin eru varðveitt eða eru til vinnslu án þess að þurfa að afla til þess sérstaks dómsúrskurðar hverju sinni.
    Skv. 66. gr. stjórnarskrárinnar verður húsleit eigi framkvæmd nema eftir dómsúrskurði eða eftir sérstakri

lagaheimild. Nútímatækni gerir það kleift að eyða upplýsingum á tölvum á mjög skömmum tíma og án þess að slíks sjáist nokkur merki. Með hliðsjón af þessu og þeim hagsmunum sem lögum þessum er ætlað að vernda þykir rétt að leggja til að tölvunefnd hafi ótvíræða lagaheimild til þess að gera vettvangskönnun án sérstaks dómsúrskurðar. Er það reynsla frændþjóða okkar að slík heimild sé nauðsynleg til þess að gera eftirlitsstarfið virkara.
    Fyrri löggjöf á þessu sviði hafði fyrir fram afmarkaðan gildistíma eins og áður hefur komið fram. Var það gert til þess að tryggja að nauðsynleg endurskoðun löggjafarinnar færi fram með hæfilegu millibili. Verður að telja að sú reynsla hafi nú fengist á þessu löggjafarsviði að ekki sé þörf á því að hafa löggjöfina tímabundna. Er því ekki gert ráð fyrir því í frv. að það hafi, ef að lögum verður, afmarkaðan gildistíma.
    Hæstv. forseti. Ég hef nú í stórum dráttum gert grein fyrir efni frv. þessa ásamt þeim breytingum sem á því hafa orðið í meðferð hv. Ed. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.
    Ég vil að lokum leggja á það áherslu að brýnt er að þetta frv. verði samþykkt sem lög fyrir jólaleyfi þar sem núgildandi lög falla úr gildi í árslok.